23.10.2009 | 13:29
Hugleiðing um nekt...
Ímyndaðu þér að þú sért að ferðast í ókunnugu landi. Þegar þú ert á gangi sérðu auglýsingu fyrir framan byggingu sem líkist leikhúsi. Sýningin er bönnuð börnum og sögð ögrandi. Forvitnin nær yfirhöndinni og þú kaupir miða. Þú sest í sæti meðal mikils fjölda fólks, ljósin er slökkt og ljósi varpað á sviðið. Eftir smá bið kemur maður að borði sem er á sviðinu sem er hulið með dúk og þú sérð að það er eitthvað undir dúknum. Hægt og rólega þá byrjar maðurinn að taka dúkinn af borðinu og smá saman sérðu köku koma í ljós. Af hljóðunum í salnum er augljóst að þeim þótti mikið til koma af þessu. Sýningin er búin og þú ferð alveg ringlaður út... hvað var í gangi? Býr fólkið við einhvern mikinn matarskort til þess að framkalla svona afbrigðilega hegðun í kringum eina köku?
Svo hvað er málið með karlmenn og að sjá konu nakta? Eru karlmenn að glíma við einhvern skort? Mér finnst augljóst að það er eitthvað að; þetta bara getur ekki átt að vera svona eða hvað segið þið?
C.S.Lewis var með hugleiðingar um þetta og ég fékk þessa dæmisögu um kökuna úr bókinni Mere Christianity, sjá: C.S. Lewis - Mere Christianity
Seglin rifuð hjá Playboy | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 803193
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Misskilnigur þinn er sá að um afbrigðilega hegðun sé að ræða.
Málið er það, Mofi minn, að við erum dýr hvers eðli segir því að fjölga sér. Til að fá það til að fjölga sér er það búið kynhvöt og fegurðarskyni á líkama hins kynsins.
Okkur þykir líkami kvenna spennandi og fallegur. En samfélagið hefur hag af því að við séum ekki gengdarlaust að velta fyrir okkur holdlegu samneyti svo við klæðum alla þessa fegurð nektarinnar af okkur og þykjumst öll vera kynlaus.
Það gerum við þó ekki til lengdar því ungt og heilbrigt fólk notar gjarnan hvert tækifæri til að klæða þá fegurð aftur á sig með þröngum og eggjandi klæðnaði.
Löngunin eftir nekt og eftirlæti við kynferðislega óra er okkur í blóð borin. Við reynum að hafa stjórn á þessu öllu saman, því við höfum svo marga aðra hagsmuni en að koma frá okkur erfðaefni, en löngunin er ekki afbrigðileg í neinum skilningi.
Kristinn Theódórsson, 23.10.2009 kl. 18:30
Ég spyr þig á móti hvað að því að fólk bæði sýni sig nakið og aðrir sjái nakið fólk?
Cicero (IP-tala skráð) 23.10.2009 kl. 18:33
Er hægt að komast í þessa köku Mofi?
Páll Geir Bjarnason, 24.10.2009 kl. 01:56
Kristinn, þú hefur vonandi tekið eftir því hvernig þú túlkar heiminn í gegnum þína trú að þróunarkenningin er sönn? Ekki taka þessu neitt illa, mér finnst þetta bara gott dæmi hvernig einhver með ákveðna trú túlkar heiminn í kringum sig miðað við þá heimsýn sem hann hefur.
Ég sé þetta þannig að nekt var eðlileg en eftir að syndin kom í heiminn þá brenglaðist þetta. Í staðinn fyrir að löngunin er eðlileg og kærleiksríkt þá er hún óeðlileg og eigin gjörn.
Cicero, ég held að það sé best að beina þessum áhuga að eiginkonu manns en ekki hvaða konu sem er.
Páll, ég leitaði vel og lengi en sú leit hefur ekki borið árangur :)
Mofi, 25.10.2009 kl. 10:46
He he, þetta sýnir bara enn einu sinni að mín skýring virkar, þín ekki.
Kristinn Theódórsson, 25.10.2009 kl. 10:49
Hvað var annars eitt það fyrsta (ef ekki bara það allra fyrsta) sem guð átti að hafa sagt við Adam og Evu?
Hér hitti höfundur þessa kafla úr Biblíunni naglann á höfuðið! (það er þess vegna ótrúlega kaldhæðnislegt hversu margir trúarhópar telja kynlíf vera eitthvað hræðilegt). Það er einfaldlega inngreypt í tilveru hverrar einustu lífveru að vilja fjölga sér - alltaf. Ég skal jafnvel ganga svo langt að segja að helsti tilgangur lífsins er að skapa meira líf. Af hverju heldurðu annars að körlum finnist kvenmannslíkamar svona skemmtilegir að horfa á? .
Lengi vel var mikilvægt að "vera frjósamur" eins fljótt og hægt er, og eins oft og mikið og mögulega, því líkurnar á því að deyja fljótlega voru... miklar. Þess vegna ER eðlilegt að langa í kynlíf!
The cake is not a lie...
Rebekka, 25.10.2009 kl. 11:40
Já, Mofi. Þú hittir þarna naglann á höfuðið. Þetta er ekkert nema illska í manninum eins og kemur fram í 1. Mós 6. kafla:
Þarna iðraðist Guð þess að hafa skapað mennina og allt líf á jörðunnni að því er mér sýnist.
Hvernig ætli honum líði núna? Allt komið í sama farveg. Hann hefur lofað því að grípa ekki aftur til drekkingaraðferðarinnar, en hann hefur ekkert sagt um alla aðra möguleika sem hann getur gripið til.
En svona er sýn þín á þessa misheppnuðu sköpun guðs þíns, Mofi. Við trúfrjálsir lítum ekki svona á 'hugrenningar' lifandi vera á jörðunni. Við lítum á þær sem kynhvöt sem mennirnir reyna með misgóðum árangri að hafa stjórn á eða að svala á æ betri og unaðslegri máta. Aðrar lífverur virðast haga þessu á tiltölulega frjálsan máta. Kynvilla finnst í yfir 250 tegundum lífvera (sá ég einhvers staðar skráð í fræðigrein).
Hér er bara um val hvers og eins að ræða. Hvenær hann misbýður öðrum er svo aftur mál þess sem misboðið er eða forráðamanna, ef um börn eða 'fátæka í anda' er að ræða.
Sumir velja að vera án kynlífs til að vera óháðir og frjálsir sinna ákvarðana. Aðrir velja kynlíf þó það hafi í för með sér ærna skuldbindingu gagnvart mótaðilanum. Sem betur fer getum við valið. Það getur fólk ekki alltaf undir öllum kringumstæðum. Ákveðin pressa fylgir sumum samfélagshópum, trúsöfnuðum eða fjölskyldumynstrum.
Sigurður Rósant, 25.10.2009 kl. 14:26
En það virðist hafa fengið mikið á guð þinn Mofi, er hann varð fyrst var við að mannverur voru að flækjast um naktar í aldingarðinum Eden, hér um árið. Hefur nokkuð sést til Jahve síðan á kveldgöngu?
Sigurður Rósant, 25.10.2009 kl. 17:29
Cicero, ég held að það sé best að beina þessum áhuga að eiginkonu manns en ekki hvaða konu sem er.
Nú eiga ekki allir karlmenn eiginkonur... hvert eiga þeir að beina þessu?
Svo má benda þér á að það eru ekki bara karlmenn sem fíla nekt
Cicero (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 19:57
Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2009 kl. 05:43
Kristinn, ég neita því ekki að þín útskýringin er ekki slæm í þessu tilfelli :)
Mjög sammála :)
En af hverju finnst þá konum lítið skemmtilegt að horfa á karla? Er það kannski rangt hjá mér?
Spurning hvort að ástandið er orðið jafn slæmt og þá. Ég held ekki. Sástu myndböndin þar sem fjallað er um hvað Biblían segir muni gerast rétt fyrir endalok þessa heims?
Atburðir endalokanna
Tók ekkert á Guð, get ekki ímyndað mér að nekt skipti Hann neinu máli.
Mofi, 26.10.2009 kl. 10:24
Óþægilega góð spurning
Mofi, 26.10.2009 kl. 10:37
Mofi skrifar "Ekki taka þessu neitt illa, mér finnst þetta bara gott dæmi hvernig einhver með ákveðna trú túlkar heiminn í kringum sig miðað við þá heimsýn sem hann hefur."
ef þetta er ekki með því fyndnara sem ég hef lesið hjá þér Mofi minn :)
Egill, 28.10.2009 kl. 18:07
"En af hverju finnst þá konum lítið skemmtilegt að horfa á karla? Er það kannski rangt hjá mér?"
Já. Þessi hugmynd er líklega sprottin úr kynótta og kvenfyrirlitningu trúarbragða, sem og þeirrar viktoríönsku hugmyndar að konur hafi ekkert gaman af kynlífi.
Hins vegar er það svo að karlar eru almennt meira 'visual' en konur. Konur virðast flestar kunna betur að meta erótík í rituðu formi en sjónrænu, sem sést greinilega þegar s.k. slash-síður eru skoðaðar.
Annars gæti þetta svosem líka tengst því að kvenmannslíkaminn er almennt fallegri en karlmannslíkaminn - sá síðarnefndi er afskaplega furðulega "hannaður". Prófaðu bara að hoppa nakinn ;)
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 2.11.2009 kl. 02:51
Egill, af hverju?
Tinna, mér finnst nú bæði kvenmanns líkaminn og karla vera virkilega fallega hannaða :) finnst samt eins og við karlarnir þurfum að hafa meira fyrir því að líta almennilega út maður á kannski ekki að vera hugsa svona upp hátt. Varðandi að hoppa nakinn... ég ætla að geyma þá skemmtilegu lífsreynslu fyrir stelpurnar á elliheimilinu :)
Mofi, 2.11.2009 kl. 09:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.