Hvaða áhrif hefði það á þína trú ef það finndust sannanir fyrir líf á öðrum hnöttum?

RoswellAlienHoaxAutopsy2Í myndinni Contact þá byrjuðu vísindamennirnir að greina merki sem innihélt prím tölur. Þetta var nóg til þess að þeir ályktuðu að vitsmunalíf hefði búið til þessi skilaboð.  DNA inniheldur mjög flóknari upplýsingar en það en samt eru sumir sem neita að horfast í augu við hvað sú staðreynd þýðir.

En hvað ef við myndum finna sannanir fyrir líf á öðrum hnöttum, hvaða áhrif hefði það á þína trú?  Endilega sem flestir að koma með athugasemdir.  Í gegnum árin þá hafa komið upp alls konar sögur af geimverum og jafnvel myndir sem menn halda fram að séu af geimverum eða geimskipum.

Það eru til of margar sögur af geimverum, draugum og álfum og ég veit ekki hvað og hvað að það er erfitt að segja að allt þetta fólk er ímyndunarveikt eða sé að ljúga.  Það gengur heldur ekki upp að allt þetta fólk er að segja satt svo mín útskýring er á þá leið að hérna eru blekkingar á ferð. Í sumum tilfellum menn að blekkja aðra menn eins og myndin hérna er en í öðrum tilfellum anda verur.  Í þessu samhengi langar mig að benda á blog sem fjallar um reynslu einnar konu af draugum, sjá: Draugasaga úr 101

 

Það kann að koma einhverjum á óvart en Biblían gefur í rauninni til kynna að það eru til aðrir heimar: 

Jobsbók 1
6 Dag nokkurn bar svo til að synir Guðs komu og gengu fyrir Drottin og var Satan á meðal þeirra. 7Drottinn spurði Satan: „Hvaðan kemur þú?“ Satan svaraði Drottni og sagði: „Ég hef verið á ferðalagi hingað og þangað um jörðina.

Síðan við sköpunina þá eru einhverjar verur þegar til en ekkert minnst á sköpun þeirra.

Jobsbók 38
1Þá svaraði Drottinn Job úr storminum og sagði:

2Hver er sá sem hylur ráðsályktunina myrkri
með innihaldslausum orðavaðli?
3Gyrtu lendar þínar eins og manni sæmir,
nú ætla ég að spyrja þig en þú skalt svara.
4Hvar varstu þegar ég grundvallaði jörðina?
Segðu það ef þú veist það og skilur.
5Hver ákvað umfang hennar, veist þú það,
eða hver þandi mælivað yfir henni?
6Á hvað var sökklum hennar sökkt
eða hver lagði hornstein hennar
7þegar morgunstjörnurnar sungu saman gleðisöng
og allir synir Guðs fögnuðu?

Hérna er grein sem fjallar um þetta frá sjónarhóli sköpunarsinna:

God and the extraterrestrials - Are we alone, or is there life elsewhere in the universe?

Ég er ekki sammála því sem þeir segja en fannst fróðlegt að sjá þeirra rök og pælingar um þetta mál. 


mbl.is Vatíkanið segir ekki hægt að útiloka líf á öðrum hnöttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Kristjánsson

Jú það getur einmitt mjög vel verið að allt þetta fólk sé ímyndunarveikt eða hreinlega að ljúga...annað eins sjáum við nú endurspeglast í hugmyndum fólks um ofurdrauginn Guð Job Jehóva heilagan Allah

Guðmundur Kristjánsson, 14.5.2008 kl. 14:24

2 Smámynd: Mofi

Það er rétt Guðmundur að það er alveg möguleiki að allt þetta fólk er ímyndunarveikt; mér finnst það bara mjög hæpið.

Mofi, 14.5.2008 kl. 14:31

3 identicon

Þar sem ég er trúlaus hefur það engin áhrif á trú mína

En hvernig passar það inn í sköpunar söguna, þar sem stjörnunum var svona sáldrað yfir himinninn til að lýsa upp nóttina svona eftir á eða eitthvað álíka.

Arnar (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 15:01

4 identicon

Arnar - það skiptir ekki máli, því það eru bara ákveðnir hlutar sköpunarsögunnar sem eru myndrænir, t.d. þetta með stjörnurnar...

Lýsingin er bara nákvæm í hlutum eins og tímanum sem það tók, rifjastteikinni sem varð að konur og fleiru...

En það er því miður ekki fyrir óinnlimaða eins og okkur 2 að greina á milli þess hvað er satt og rétt og hvað er túlkunaratriði..... slíka visku fá bara menn eins og Halldór - og það sem vöggugjöf

Sigmar (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 15:39

5 Smámynd: Mofi

Ef þú "heldur" eitthvað varðandi tilvist Guðs, hvaðan lífið kom, hvaðan við mennirnir komu og hvað verður um okkur þegar við deyjum, þá hefur þú trú í þessum atriðum því sannarlega veistu ekki svörin við þessum spurningum.

Varðandi sköpunarsöguna þá aðeins að það geta verið til aðrir staðir eins og þessi jörð þar sem er að finna lífverur. 

Mofi, 14.5.2008 kl. 15:40

6 identicon

Tekið af AiG:
The Bible, the revealed written Word of God, teaches that life is only possible through a process of creation. Even if there were other galaxies with planets very similar to earth, life could only be there if the Creator had fashioned it. If God had done that, and if these beings were going to visit us one day, then He would surely not have left us unenlightened about this.

Mófir segir:
Ég er ekki sammála því sem þeir segja.. 

Og ég sem hélt að þú værir bókstafstrúar maður :)

Að 'halda' eitthvað um td. tilvist guðs er ekki nægur grundvöllur fyrir trú, nema þú skilgreinir trú _mjög_ vítt.. sem þú gerir.

Arnar (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 16:44

7 Smámynd: Mofi

Arnar
Og ég sem hélt að þú værir bókstafstrúar maður :)

Að 'halda' eitthvað um td. tilvist guðs er ekki nægur grundvöllur fyrir trú, nema þú skilgreinir trú _mjög_ vítt.. sem þú gerir.

Já, heitasta... ég hélt það líka :)

Þeirra rök eru ansi mikið á þá leið að Guð hefði látið okkur vita og fyrst Hann gerði það ekki þá...  ég aftur á móti bendi á ritningar texta sem mér finnst benda til þess að það eru til fleiri heimar.

Mofi, 14.5.2008 kl. 16:59

8 identicon

Ég vil síður móðga þá sem hafa aðra trú en ég, en...

Það hefur engin áhrif á trú mína þó líf finnist á öðrum hnöttum, því Guð skóp hvorki þennan heim né aðra séu þeir þá til. Það eina sem truflar samband mitt við Guð minn eru öll þessi mismunandi trúarbrögð sem mannskepnan hefur skapað í ófullkomleika sínum. Ekki er til nema einn Guð en við höfum gefið honum mörg nöfn og mörg andlit.

Guð er allstaðar nema kannski síst í hinum ýmsu kirkjubyggingum sem mennirnir reisa í nafni hinna ýmsu söfnuða og trúarbragða.

Kær kveðja

Hans

Hans Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 19:21

9 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Mjög svo merkileg yfirlýsing frá „yfirstjörnufræðingi“ Vatikansins, sjálfum Gabríel Funes og mjög líklega hefur Páfinn, í kjölfar heimsóknar sinnar til USA, lagt blessun sína yfir gjörninginn. Verur frá öðrum sólkerfum eru og hafa alltaf verið í samskiftum við vanmáttuga Jarðarbúa og bara tímaspursmál hvenær þær gera sig sýnilegar öllu mannkyni. Þessari vitneskju hafa geistlegir menn Vatikansins haldið leyndri gegnum aldirnar; sauðsvörtum almúganum er hreinlega ekki treystandi fyrir slíkum sannleik.

En í ljósi þessarar yfirlýsingar frá Vatikaninu er ekki úr vegi að minnast þessara orða: Jóh. 14.12. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri. Og hann mun gjöra meiri verk en þau, því ég fer til föðurins. 

Ásgeir Kristinn Lárusson, 14.5.2008 kl. 21:44

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, hvers vegna heldurðu að Job 1.6-7 bendi til þess að það séu "aðrir heimar"?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 14.5.2008 kl. 22:00

11 identicon

Kanski páfinn hafi komið við á svæði 51 í heimsókn sinni til runnverja.

Halli (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 22:47

12 Smámynd: Mofi

Hans, Kristur sagði að þar sem tveir eða fleiri eru samankomnir í Hans nafni þá væri Hann meðal þeirra. Svo ef kirkja ( saman safn af fólki sem trúir ) er einlæg í sinni trú þá sé ég ekki afhverju Guð ætti að hafa eitthvað á móti þannig kirkju.

Hjalti,  það virkar eins og fulltrúar "heima" eru þarna og þá er Satan fulltrúi þessa heims... þegar þú spyrð svona þá virkar þetta langsótt sem það líklegast er. Hérna kemur inn að mér finnst rökrétt að Guð myndi nota þennan risastóra alheim fyrir meira en okkur...

Ásgeir,  hver heldur þú að hafi skapaði þessar geimverur? Afhverju trúir þú að þær séu til og afhverju heldur þú að yfirvöld leyna almenning þessu?  Þar sem yfirvöld hins vestræna heims eru alltaf að skiptast út í kosningum, er þá ekki líklegt að einhver sem kæmist í valdastöðu myndi láta þennan sannleika leka út?

Andrés,  þú lætur mig vita hvar og hvenær þið verðið með spagettí þjónustu :)

Mofi, 15.5.2008 kl. 09:27

13 identicon

Rakst á skemmtilega lesningu : 

"If you're really eager to find a reference to extraterrestrials in the Bible," he writes, "you can't do better than John 10:14-16. 'I am the Good Shepherd . . . I have other sheep that do not belong to this fold. I must bring them also . . . so there will be one flock, one Shepherd.'"

Other sheep? Aliens, obviously! And it sounds like they are on their way.

The existence of ET life does leave Consolmagno with some head-scratchers. Are they burdened with original sin? Is there a "cosmic Adam" that predates his Earthly clone? Does one baptise an alien?

When little green men finally make themselves known, the Christians will be ready for them. After all, as Consolmagno says, "Having a soul has nothing to do with how many arms or legs or tentacles you have."

Sjá : Did god create little green men?

Arnar (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 10:54

14 Smámynd: Mofi

Arnar, þetta er líklegast eins langsótt og mín tilvísun í Job... :/

Mofi, 15.5.2008 kl. 11:02

15 Smámynd: Flower

Ég fór að pæla í þessu í fyrrasumar eftir að hafa horft á Independence Day. Það er vissulega ekki hægt að útiloka að til sé líf á öðrum hnöttum og ég ætla ekki að gera það. Ef svo er þá er það skapað af Guði eins og við. Sá möguleiki kallar líka á þá spurningu hvort það líf þekkir Guð. En það er alveg ljóst að Guð einn þekkir svörin þannig að ég læt það svar duga :)

Flower, 15.5.2008 kl. 11:31

16 Smámynd: Mofi

Ég skil þig vel Flower :)

Mofi, 15.5.2008 kl. 12:22

17 identicon

Mofi... mig langar bara að segja þér eitt sem tengist þessari frétt svo mikið sem ekki neitt...

Ekki eyða tímanum þínum hér á netinu að blogga fyrir fólk sem er alveg sama um trú þína og rök hennar fyrir lífinu, því að það er ekki að virka sýnist mér...

farðu út í heim og dreyfðu boðskapnum þar sem enginn verður pirraður og einhver hlustar af einhverjum áhuga.

svo er það líka ekki gott fyrir heilsuna að vera að blogga langt fram á nótt.

Kv. Andri.

Andri (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 12:47

18 identicon

farðu út í heim og dreyfðu boðskapnum þar sem enginn verður pirraður og einhver hlustar af einhverjum áhuga.

Heh.. á hann að fara að boða boðskapin þar sem allir eru sammála honum?  Hvar er það, í kirkjunni hans?

Arnar (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 13:04

19 Smámynd: Mofi

Andri, það er aldrei að vita hverjir álpast hérna inn á. Þetta snýst síðan líka um að heyra skoðanir annara. Takk annars fyrir heimsókina.

Mofi, 15.5.2008 kl. 14:35

20 Smámynd: Mama G

Ekki hætta að blogga Mofi. Það er fínt að hafa netið til að spjalla um trúmál - þá getur maður gert það þegar manni hentar og án þess að missa sig, eins og gæti auðveldlega gerst augliti til auglitis.

Svo held ég líka að það sé ekki merki um að fólki sé alveg sama um trúmál ef þú ert með á annað hundrað IP tölur í heimsókn hjá þér daglega. Ef mér væri alveg sama um eitthvað málefni myndi ég ekki heimsækja viðkomandi síðu, svo einfalt er það

Mama G, 16.5.2008 kl. 15:01

21 Smámynd: Mofi

Takk fyrir það Mama G  :)     það er engin spurning í mínum huga, fólk hefur áhuga á trúmálum enda hafa lang flestir skoðanir á trúmálum.

Mofi, 16.5.2008 kl. 15:13

22 identicon

Persónulega þykir mér vægast sagt tölfræðilega ólíklegt að við séum eina vitsmunalífið í alheiminum.

Mér þætti hins vegar vænt um að einhver útskýrði fyrir mér, þrátt fyrir þessi óljósu bíblíuvers sem einhver hafði eftir, hvernig hægt sé að halda fram að hún segir til um að það séu til aðrar vitsmunaverur þarna úti þegar í henni stendur skýrt og greinilega að guð skapaði manninn í sinni mynd?

Fyrir mér hljómar þetta eins og einhverjir bókstafstrúarmenn hafi hugsað aðeins og áttað sig á hugmyndin um að við séum miðpunktur sköpunarinnar og þar af leiðandi eina vitsmunalífið í alheimi (enda sköpuð í mynd guðs) sé tölfræðilega ólíklegt, og eru þannig að reyna að tryggja sig ef ske kynni að við fyndum sannanir á tilvist annarra menningarheima í geiminum á þessari öld.

Sveinn (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 03:51

23 identicon

Já Andrés, ég skil þitt sjónarmið vel, en ég var eiginlega að leita að útskýringu á hinni bókstaflegu nálgun.

Einhver talar um 'hliðarverkefni' fyrir utan okkur.  Segjum að við komumst í samband við vitsmunaverur sem eru talsvert framar okkur að öllu leiti, þess á meðal bæði líkamlega og vitsmunalega.  Þýðir það ekki að guð hefur verið að hygla þeim frekar en okkur?  Ég er bara að spá, ekki að halda neinu fram.

Mörgum, blogghöfundur meðtalinn, finnst hugmyndin um að við höfum sameiginlegan forföður með öpum (já og öllum lífverum Jarðar) rosalega móðgandi, finnst það vera svo óvirðulegt þar sem við vorum jú sköpuð í mynd guðs (hvernig sem menn túlka það).  Hvernig díla þeir við tilvist 'æðri' vitsmunavera? 

Sveinn (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 13:46

24 Smámynd: Mofi

Sveinn
Mér þætti hins vegar vænt um að einhver útskýrði fyrir mér, þrátt fyrir þessi óljósu bíblíuvers sem einhver hafði eftir, hvernig hægt sé að halda fram að hún segir til um að það séu til aðrar vitsmunaverur þarna úti þegar í henni stendur skýrt og greinilega að guð skapaði manninn í sinni mynd?

Afhverju ætti það að útiloka aðrar verur í mynd Guðs?  Ég síðan skil þetta með að vera sköpuð í mynd Guðs sem þannig að við erum persónuar með frjálsan vilja og afl til að skapa.  Sammála því sem Andrés sagði um þetta efni fyrir utan þetta með eilífu sálin; ég trúi því að hún varð til þegar við urðum til og hún hættir að vera til þegar við deyjum. Okkar eina von er að Guð geti búið okkur til aftur.

Ég hafði líka gaman af því að vita hvernig aðrir kristnir sjá þetta efni. Hvort að verurnar væru eins og við eða öðru vísi. Mig grunar að ef það er til líf á öðrum hnöttum þá væri það öðru vísi af því að Guð virðist elska fjölbreytileika en þetta eru bara mínar hugmyndir og trúi þeim ekki einu sinni.

Sveinn
Mörgum, blogghöfundur meðtalinn, finnst hugmyndin um að við höfum sameiginlegan forföður með öpum (já og öllum lífverum Jarðar) rosalega móðgandi, finnst það vera svo óvirðulegt þar sem við vorum jú sköpuð í mynd guðs (hvernig sem menn túlka það).  Hvernig díla þeir við tilvist 'æðri' vitsmunavera? 

Ég myndi ekki segja að það er eitthvað móðgandi, bara að það passar ekki við mína trú.

Mofi, 17.5.2008 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 802829

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband