Hjálparstarf ADRA

_44626929_water_afp226bLangar að benda á ADRA sem er hjálparstarf Sjöunda dags aðventista sem er að safna peningum til að hjálpa fólkinu í Búrma.  Hérna er frétt á þeirra heimasíðu þar sem hægt er að gefa pening til þessa hjálparstarfs, sjá: [ALERT] Cyclone Nargis Devastates Myanmar: ADRA Responds

 

 

images

 


mbl.is Yfir 22 þúsund látnir á Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott framtak :)

Líka gaman að sjá að samtök með svona trúarlegan uppruna, beinlínis neita því að styðja bara kristna (samkvæmt FAQ hjá þeim).

Arnar (IP-tala skráð) 6.5.2008 kl. 14:36

2 Smámynd: Mofi

Arnar, gott að heyra :)    Já, alveg nauðsynlegt að einbeita sér að því að bara hjálpa og hjálpa öllum þar sem enginn er minni eða meiri en einhver annar. Vonandi taka þeir það mjög alvarlega. Og síðan get ég ekki neitað því að mér finnst mikilvægt að vera ekki að troða trú inn á fólk sem vantar hjálp og jafnvel setja trúnna á milli fólks og þeirra hjálpar sem það þarfnast.

Mofi, 6.5.2008 kl. 16:16

3 Smámynd: Eiríkur Ingvar Ingvarsson

Kærar þakkir fyrir þetta Halldór

Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 6.5.2008 kl. 23:03

4 Smámynd: Tryggvi Hjaltason

RSPCT

Tryggvi Hjaltason, 6.5.2008 kl. 23:53

5 Smámynd: Tryggvi Hjaltason

Mofi...




Þar sem ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig þú nálgast hlutina og ég reyni alltaf að nálgast allar hliðar hlutlaust og ég veit hvar þú stendur þá var ég að velta því fyrir mér hvort þú vildir vera svo vænn og taka greiningu á þessu myndbandi fyrir mig? Það kynni ég vel að meta.

http://www.youtube.com/watch?v=R_RXX7pntr8

Virðing

Tryggvi 

Tryggvi Hjaltason, 7.5.2008 kl. 00:46

6 Smámynd: Tryggvi Hjaltason

Hér er líka annað sem ég hef verið að skoða.

http://www.youtube.com/watch?v=7w57_P9DZJ4 

veit ekki hvort þessi vídeó hafi borið áður á góma í umræðunni hjá þér, ef svo er

þá endilega bentu mér á hvar! 

Takk

Tryggvi 

Tryggvi Hjaltason, 7.5.2008 kl. 00:48

7 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það er nóg að gera hérna heima.Þetta er röng forgangsröð.Byrjum á að taka til hjá okkur sjálfum.Skil ekki svona sýndarmennsku.

Haraldur Davíðsson, 7.5.2008 kl. 03:31

8 identicon

Haraldur, geturðu beint mér á eina manneskju á íslandi sem á jafn bágt og fólkið sem lenti í þessum hörmungum?  Einhvern sem hefur misst fjölskyldu, húsnæði, lífsviðurværi.. allt?  Og það eru þúsundir af þeim þarna úti.

Er lítið trúaður (eins og hefur kannski komið fram hérna áður) en myndi halda að það væri siðferðisleg skylda hvers þess sem fylgir boðskap krists að aðstoða nauðstadda, hvar sem þeir eru staddir.

Arnar (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 11:16

9 Smámynd: Mofi

Eiríkur Ingvar Ingvarssonvið þurfum að vera miklu betri í að kynna ADRA því þetta er alveg frábært starf.

Tryggvi,  ég skal taka þetta saman í blogg grein, vonandi í dag.

Mofi, 7.5.2008 kl. 11:29

10 identicon

Svolítið mótsagnakennt að bera mikla virðingu fyrir hvernig Mofi nálgast þróunarkenninguna OG segjast reyna að sjá öll mál frá öllum sjónarhornum ekki satt Tryggvi?  Ég mæli hins vegar með öllum vídeóum frá potholer54. Hann var einmitt að gefa út annað í dag sem heitir "Creation Science Made Easy".

En annars eru öll hjálparsamtök gríðarlega mikilvæg og mér finnst nauðsynlegt að þau taki ekki neitt fyrir 'greiðann' eins og "þið fáið mat ef þið takið trú".

En hvernig er það, eru stjórnvöld í Myanmar að taka við aðstoð frá svona samtökum? 

Sveinn (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 12:34

11 Smámynd: Mofi

Þar sem ADRA segist vera þegar á staðnum að hjálpa þá virðast stjórnvöld vera að leyfa þeim að hjálpa og vonandi hafa ekkert á móti því.  Annars er Eiríkur sá sem að veit mest um starf ADRA hérna á Íslandi ( að ég best veit ).

Mofi, 7.5.2008 kl. 13:34

12 identicon

Andrés:

Sveinn, þekkir þú einhver dæmi um þannig samtök eða þykir þér þetta líkleg hegðun hjá kristilegum samtökum?

Þekki ég dæmi? 

Þykir mér líklegt að þetta sé nokkuð algengt?  Já mér þykir það en þó alls ekki í meirihluta tilvika.  

Sveinn (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 21:56

13 identicon

Já ég ákvað að setja ekki upphaflega linkinn, þar sem þetta er bara hluti af stærri grein, en hérna er þetta.

Nei allt í lagi, ég fullyrði ekkert um hversu algengt þetta er.  Ég er bara að segja að það kæmi mér ekki á óvart, en ég stórefast um að þetta sé venjan.  

Sveinn (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 00:10

14 Smámynd: Mofi

Sveinn
Nei allt í lagi, ég fullyrði ekkert um hversu algengt þetta er.  Ég er bara að segja að það kæmi mér ekki á óvart, en ég stórefast um að þetta sé venjan.

Ég er hræddur um að þetta er allt of algengt og ein af ástæðunum fyrir því að margir í gegnum aldirnar hafa haft mikla andúð á kristni. Þeir sem þurftu hjálp fengu sálmabækur og einhver trúarrit í staðinn fyrir hjálp og það reiddi þá, skiljanlega. 

Mofi, 8.5.2008 kl. 09:36

15 identicon

Hvernig stendur á því að þeir segjast vera komnir til Burma þegar herstjórnin þar hefur ekki hleypt hjálparstofnunum inn í landið?

Arnar (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 10:44

16 Smámynd: Mofi

Í nýlegri frétt um einmitt að herinn væri ekki liðlegur varðandi að hleypa hjálparstofnunum í landið þá kom einmitt fram að einhverjum hefði verið hleypt inn en aðeins að þeim þætti þetta ganga allt of hægt, sjá: http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/05/08/matvaelasendingar_hindradar/

Mofi, 8.5.2008 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 802802

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband