Athugasemdir

1 identicon

Borgar sig stundum að lesa fréttina.

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 10:11

2 Smámynd: Mofi

Mikið rétt, Darwin spáði vitlaust fyrir; alveg eins og darwinistar spáðu vitlaust fyrir um afgangslíffærin, héldu að þau væri fleiri en hundrað en núna vitum við að sú spá var röng.

Mofi, 4.3.2008 kl. 10:13

3 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Góður

Guðrún Sæmundsdóttir, 4.3.2008 kl. 10:33

4 identicon

Oft hefur þú nú verið tæpur mofi... en sloppið hingað til

En núna nota ég "tilkynna um óviðeigandi tenging við frétt" hnappinn

Sigmar (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 10:35

5 identicon

Fyrirsögnin ætti að vera eitthvað nær: "Kenning Darwins um uppræna hænsna lítillega lagfærð". Ekkert nema lélegur fréttaflutningur af hálfu moggans.

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 10:54

6 identicon

En ég er ekki sammála því að þetta sé óviðeigandi tenging við frétt, því þarna er fyrst og fremst alveg sérstaklega lélegur fréttaflutningur af hálfu moggans á ferð. Mofi er bara samur við sitt. Ekki það að Mofi hafi rétt fyrir sér samt, alls ekki.

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 11:03

7 Smámynd: Linda

jæja, einhverjir er í afneitun, svona er lífið

Linda, 4.3.2008 kl. 11:51

8 Smámynd: Mofi

Sigmar, ekki mér að kenna að þeir höfðu titilinn svona.

Guðrún, ég fékk smá hjálp :)

Jóhann, sammála.

Linda, mikið rétt...

Mofi, 4.3.2008 kl. 12:36

9 Smámynd: Ari Björn Sigurðsson

"En ég er ekki sammála því að þetta sé óviðeigandi tenging við frétt, því þarna er fyrst og fremst alveg sérstaklega lélegur fréttaflutningur af hálfu moggans á ferð."

Og getiði hvaða menntun höfundur greinarinnar státar af ....jú hún er guðfræðingur    skín þarna örlítil óskhyggja í gegn eða hvað?

En Mofi, þú ert ekki að standa þig ...þetta er þrigja daga gömul frétt, ertu nokkuð lasinn ?

Ari Björn Sigurðsson, 4.3.2008 kl. 15:08

10 Smámynd: Mofi

Ég ætlaði ekkert að blogga um þessa frétt en var síðan tjáð að einhverjum fannst alveg skammarlegt að ég hefði ekki sagt neitt.    Svo ég ákvað að skammast mín og skella einhverju einföldu inn :)

Gaman væri að vita hvað höfundi greinarinnar ( Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur ) finnst um þetta mál...

Mofi, 4.3.2008 kl. 15:23

11 identicon

he he, ég hugsaði til þín þegar ég sá fyrirsögnina í blaðinu, en svo var þetta bara smávægileg misgáta um hænsni

Jakob (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 16:04

12 Smámynd: Mofi

hehe :)     já, þetta var varla þess virði að blogga um nema bara hvað titill fréttarinnar var áhugaverður en síðan stór vonbrigði.

Mofi, 4.3.2008 kl. 16:28

13 Smámynd: Guðmundur Kristjánsson

"jæja, einhverjir er í afneitun, svona er lífið"

Afneitun??? Af-neitun ??? a f n e i t u n ? AFNEITUN !!!!!!!!!!!!!???????    nei ok nenni ekki einu sinni......

Guðmundur Kristjánsson, 4.3.2008 kl. 18:16

14 identicon

Mikið rétt, Darwin spáði vitlaust fyrir; alveg eins og darwinistar spáðu vitlaust fyrir um afgangslíffærin, héldu að þau væri fleiri en hundrað en núna vitum við að sú spá var röng.

Einu sinni spurði ég Mofa hvaða líffæri hann væri að tala um. Ef þessi meintu "afgangslíffæri" eru fleiri en hundrað þá segir sig sjálft að ekki eru mörg líffæri eftir í mannskepnunni þegar búið er að taka þau frá.

Að sjálfsögðu gat Mofi engu svarað, byrjaði að tala um einhverja innkirtla sem aldrei hefur verið lýst sem leifum þróunarinnar.

Lárus Viðar Lárusson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 18:29

15 Smámynd: Jón Ragnarsson

Lesa fréttir, ekki bara fyrirsagnir.

Jón Ragnarsson, 4.3.2008 kl. 22:37

16 Smámynd: Mofi

Lárus
Að sjálfsögðu gat Mofi engu svarað, byrjaði að tala um einhverja innkirtla sem aldrei hefur verið lýst sem leifum þróunarinnar.

Já, man eftir þessu og gott að þú minntir mig á þetta.  Í Scopes réttarhöldunum þá var fenginn darwinisti til að vitna og eitt af þeim rökum sem hann kom með var þetta með afgangslíffærin.

Ham, Ken, and Carl Wieland. 1997. Your appendix... it’s there for a reason. Creation, Vol. 20 No. 1 (Dec 1997—Feb 1998), pp. 41
There are, according to Wiedersheim, no less than 180 vestigal [sic] structures in the human body, sufficient to make of a man a veritable walking museum of antiquities. Among these [is] the . . . appendix . . . . These and numerous other structures of the same sort can be reasonably interpreted as evidence that man has descended from ancestors in which these organs were functional. Man has never completely lost these characters; he continues to inherit them though he no longer has any use for them

Scadding, S. R. 1981 (May). Do ‘Vestigial Organs’ Provide Evidence for Evolution? Evolutionary Theory, Vol. 5, pp. 175
I would suggest that the entire argument that vestigial organs provide evidence for evolution is invalid on two grounds, one practical, the other more theoretical. The practical problem is that of unambiguously identifying vestigial organs, i.e., those that have no function. The analysis of Wiedersheim’s list of vestigial organs points out the difficulties. . . . Wiedersheim could list about one hundred in humans; recent authors usually list four or five. Even the current short list of vestigial structures in humans is questionable

Þetta virðist svo sem vera flókin saga og menn með mismunandi skilning á hvað "vestigial" þýðir en það breytir því ekki að menn listuðu alls konar líffæri upp sem vestigial og gerði það að verkum að líffæri eins og botnlanginn var fjarlægður úr fólki að óþörfu með tilheyrandi skaða.  Líklegast ekki hægt að saka Darwin sjálfan um svona því hann taldi aðeins upp einhverj sex sjö afgangslíffæri. 

Mofi, 5.3.2008 kl. 09:44

17 identicon

Scopes réttarhöldin voru á þriðja áratug síðustu aldar, sem betur fer hefur þekking okkar aukist mikið á þessum tíma.

Sveinn (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 11:21

18 Smámynd: Mofi

Sveinn, alveg sammála.  Það er samt mjög lærdómsríkt að lesa um þau og hvaða rök voru notuð fyrir darwinisma þá og bera þau saman við þau sem eru notuð í dag.

Mofi, 5.3.2008 kl. 12:25

19 identicon

Var botnlanginn oft fjarlægður úr fólki að óþörfu með tilheyrandi skaða?

Þór (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 16:01

20 identicon

Svo að einhver hélt því fram á þriðja áratug síðustu aldar að þessi líffæri væru 180, ég er engu nær um hvaða líffæri þetta eiga að hafa verið.

Auðvitað geta menn haft rangt fyrir sér, sérstaklega í tilvikum eins og Wiedersheim sem vitnað er í en fyrsta útgáfa af verkum hans varðandi þessi líffæri kom út árið 1893. Vísindamenn hafa oftar rangt fyrir sér heldur en rétt, eðlilegur hluti vísindalegrar framþróunar.  

Skil ekki afhverju sköpunarsinnar reyna ekki að kenna hrörnuninni um öll þessi líffæri sem hafa tapað mestu af tilgangi sínum.

Botnlanginn er þekkt dæmi, það veldur engum skaða að fjarlægja hann úr fólki. Hér er dæmi um 10 svona líffæri, bæði hjá plöntum og dýrum. 

Lárus Viðar Lárusson (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 19:14

21 Smámynd: Mofi

Þór, já, getur lesið meira um allt þetta hérna: http://www.answersingenesis.org/tj/v14/i2/vestigial.asp

Lárus, væri forvitnilegt að sjá þennan lista já. Sé síðan að sami skaði og þessi hugmyndafræði olli er ennþá á kreiki... frekar sorglegt, hreinlega bjóst við meiru af þér Lárus.  Í mörgum tilfellum þá tel ég augljóst að um hrörnun er að ræða eins og fuglar með vængi sem virka ekki og blindir fiskar. Önnur þyrfti meiri rannsóknir, eins og nokkrir þróunarsinnar hafa bent á þá er ekki með neinni vissu hægt að fullyrða að líffæri hafi engann tilgang eða virkni. Sumt er síðan bara gott að hafa í sérstökum aðstæðum og kannski koma þær ekki upp á þinni æfi eða þess sem er að rannsaka þetta.

Mofi, 5.3.2008 kl. 19:47

22 Smámynd: Mofi

Botnlanginn hefur síðan tilgang, sjá: http://www.answersingenesis.org/creation/v20/i1/appendix.asp

Mofi, 5.3.2008 kl. 19:48

23 identicon

Alltaf kemur fram þessi sami misskilningur varðandi þessi líffæri, að þau séu eins og ónauðsynlegir aukahlutir sem fleygja má léttilega. Vissulega á það við um nokkur þeirra eins og botnlangann en ekki öll. Eftirfarandi skilgreiningu má lesa á síðunni sem ég vísaði til hér að ofan.

The Oxford English Dictionary (OED) defines vestigial organs as organs or structures remaining or surviving in a degenerate, atrophied, or imperfect condition or form. This is the accepted biological definition used in the theory of evolution.

Þetta á ekki einungis við um líffæri heldur getur einnig átt við um gen sem tapað hafa virkni sinni, atferli dýra o.fl.

Sköpunarsinnar virðast halda að með því að finna einhverja virkni í líffæri, jafnvel blóðflæði til þess, þá sé það ekki þróunarleg leif. Þannig er það ekki skilgreint. 

Lárus Viðar Lárusson (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 21:11

24 Smámynd: Mofi

Lárus
Þetta á ekki einungis við um líffæri heldur getur einnig átt við um gen sem tapað hafa virkni sinni, atferli dýra o.fl.

Ef líffærið hefur núna virkni hvað þá eiginlega er verið að bulla með að kalla það afgangslíffæri eins og einhver viti að það hafði meiri virkni á öðrum tíma?  Bara svo það komi fram þá hefur botnlanginn virkni svo hann er ekki afgangslíffæri í þeim skilningi að hann hefur enga virkni.

Laissez-Faire
eg hef aldrei sed Mofa nota Ad hominem rokvitleysur t.d.

Það er ekki gaman að þurfa að viðurkenna að ég er því miður sekur um það. En takk samt vingjarnleg orð, við eigum sannarlega að reyna að koma málefnalega og vingjarnlega fram við aðra, hér sem annars staðar.

Mofi, 5.3.2008 kl. 22:25

25 identicon

Alltaf jafn málefnalegur hann Jón Frímann, og vel máli farinn.  Vælir yfir að Mofi skuli voga sér að eyða jafn fáránlegum og heimskulegum athugasemdum og þessa sem eru hvorki í takt við bloggið eða umræðurnar, en læsir svo sjálfur sínu eigin bloggi með lykilorði.  Hræsni eða hvað?

Þetta er maðurinn sem varð þess valdandi að síðastliðið sumar pældum við vinnufélagi minn í því hvers vegna væri ekki hægt að vera með bloggÓvinalista á þessu moggabloggi

 Mofi hefur ótrúlega þolinmæði gagnvart fólki sem er honum ekki sammála og á meðan maður er kurteis og málefnalegur lætur hann það sem maður hefur að segja standa og fyrir það á hann lof skilið. 

Sveinn (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 14:15

26 identicon

Bara svo það komi fram þá hefur botnlanginn virkni svo hann er ekki afgangslíffæri í þeim skilningi að hann hefur enga virkni.


Vá, ég nenni þessi ekki lengur, ekkert virðist komast til skila af því sem ég segi. Ekki ein arða.

Lárus Viðar Lárusson (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 20:03

27 Smámynd: Mofi

Svo sammála þér Lárus, þú virðist ekki vera fatta þetta. 

Mofi, 7.3.2008 kl. 09:29

28 Smámynd: Mofi

Fjarlægð ómálefnaleg athugasemd Jóns Frímans

Mofi, 10.3.2008 kl. 12:19

29 Smámynd: Mofi

Enn önnur ómálefnaleg athugasemd fjarlægð frá Jóni Frímanni.  Ef þú hefur eitthvað til að glíma við, eitthvað efnislegt sem þú getur sett fram án móðganna þá væri það bara ánægjulegt að birta það hérna og reyna að svara því. 

Mofi, 10.3.2008 kl. 16:14

30 Smámynd: Mofi

Endilega útskýrðu hvað þú átt við Jón...

Mofi, 10.3.2008 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 802829

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband