Er þetta þeirra sannfæring?

alfrednobel.jpgMér finnst í allt of mörgum málefnum að fólk skipti sér í fylkingar, ekki vegna sannfæringar sinnar heldur vegna hópsins sem það tilheyrir.  Mér finnst þetta mjög óheppilegt, ef satt er en óneitanlega finnst mér sönnunargögnin benda mjög sterklega í þessa átt.  Ég á t.d. erfitt með að ímynda mér að þessar þjóðir eru sannfærðar að Liu Xiaobo eigi ekki skilið friðarverðlaun Nóbels. Miklu frekar að þetta eru vinar þjóðir Kína og eru að láta undan þrýstingi.

Mig grunar að hið sama eigi við þegar kemur að mörgum trúarlegum atriðum eins og kenningin um helvíti. Líklegast sú hugmynd sem ég hata einna mest því að hún gerir Guð að einhverju pyntingar skrímsli.  Ég skil vel þá sem eru ekki kristnir að hafa hafnað þessum Jesú sem sumir kristnir boða, enda minnir hann á Allah Kóransins, sjá: Helvíti gerir guð sumra kristna að guði Kóransins

Flestir sjá strax ósamræmið milli þess að kvelja einhvern í eldi að eilífu og að vera kærleiksríkur en... af einhverju mjög brengluðum ástæðum þá er til fólk sem reynir að verja þetta með kjafti og klóm.

Heimurinn væri miklu betri, ef að fólk fylgdi sinni sannfæringu um hvað sé rétt, þótt að það bakaði þeim óvini, þótt það væri þeim persónulega óþægilegt og þótt það þýddi að missa vini. Það hefðu hvort sem er, ekki verið merkilegir vinir ef að þeir yfirgefa þig bara af því að þú ert ósammála þeim í einhverjum atriðum.

 


mbl.is Nítján þjóðir hunsa Nóbelsathöfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

"Flestir sjá strax ósamræmið milli þess að [fyrirskipa og fremja þjóðarmorð] og að vera kærleiksríkur en... af einhverju mjög brengluðum ástæðum þá er til fólk sem reynir að verja þetta með kjafti og klóm."

Hjalti Rúnar Ómarsson, 7.12.2010 kl. 19:41

2 Smámynd: Mofi

Hjalti, algjörlega ósammála, fáránlegt að líkja þessu saman. Mér finnst þetta vera svo skrítið að ég á erfitt með að trúa að þú ert að meina þetta.

Mofi, 7.12.2010 kl. 20:59

3 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Ætli þetta svar sanni ekki athugasemd Hjalta? ;)

Sveinn Þórhallsson, 7.12.2010 kl. 21:59

4 Smámynd: Mofi

Mér finnst hérna þið vera að dæma aðgerðir Guðs út frá því að Guð sé ekki til.  Út frá sjónarhóli Guðs þá er dauðinn aðeins svefn, enda líkir Biblían dauðanum við svefn mjög oft. Ástæðan er auðvitað sú að frá sjónarhóli þess að Guð er til, þá hefur Guð vald til að reisa fólk frá dauðum, gefa því aftur líf. Sömuleiðis þá eru þið oft þeir hinir sömu sem gagnrýnið Guð fyrir að stöðva ekki vont fólk þegar það skaðar aðra, en síðan hrópið upp yfir ykkur þegar Guð gerir það. 

Mofi, 7.12.2010 kl. 22:08

5 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti, algjörlega ósammála, fáránlegt að líkja þessu saman. Mér finnst þetta vera svo skrítið að ég á erfitt með að trúa að þú ert að meina þetta.

Það er náttúrulega endalaust verra að kveljast að eilífu, en setningin sem ég skrifaði er auðvitað hárrétt. Flest fólk sér ósamræmi á milli þess að vera kærleiksríkur og þess að fremja og fyrirskipa þjóðarmorð, en þú reynir að verja það með kjafti og klóm vegna brenglaðra ástæðna.

 Sömuleiðis þá eru þið oft þeir hinir sömu sem gagnrýnið Guð fyrir að stöðva ekki vont fólk þegar það skaðar aðra, en síðan hrópið upp yfir ykkur þegar Guð gerir það.  
Mofi, að stöðva vont fólk er ekki það sama og að fremja og fyrirskipa þjóðarmorð. Svo eru ástæður guðs oft ekki þessar, stundum eru þær þær að hin útvalda þjóð þurfti Lebensraum og þá þurfti að hreinsa landið af óæskilegum þjóðum.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 7.12.2010 kl. 22:21

6 Smámynd: Mofi

Hjalti, ég lít alltaf á þetta frá þeim sjónarhóli að Guð er til, eitthvað sem þú virðist ekki vera fær um og kannski skiljanlegt þar sem þú ert guðleysingi.

En, frá mínum sjónarhóli þá er um að ræða eftirfarandi:

  • Viðkomandi fólk var illt og Guð ákvað að stöðva það.
  • Ef einhver á meðal þeirra var það ekki, þá var Guð að forða viðkomandi frá vondu lífi og mun veita því eilíft líf á hinni nýju jörð þegar að því kemur.

Mofi, 7.12.2010 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband