McGrath og Penrose um M-kenningu Stephen Hawking’s

Hérna er smá útdráttur úr viðtali við Roger Penrose og Alister McGrath um nýju bók Stephen Hawkings. Aðalega fjalla þeir um hans hugmynd að alheimurinn geti orðið til af sjálfu sér vegna þyngdaraflsins og m-theory. Penrose gengur svo langt að kalla m-theory ekki kenningu og ég er sammála honum. Hann segir þetta vera samansafn af hugmyndum og ég held að þar hitti hann naglann á höfuðið.

 

Hérna er allur þátturinn: http://www.premierradio.org.uk/listen/ondemand.aspx?mediaid={320D8898-A8F0-4433-8934-D64DDEB8A21C}


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert sammála honum já... ertu búinn að lesa bókina hans HAwkins?

Elín Árnadóttir (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 12:27

2 Smámynd: Mofi

Elín, ég las Brief History of Time og kannski les ég þessa nýju en er ekki búinn að því.  Ert þú sammála Hawkings?

Mofi, 4.10.2010 kl. 12:31

3 identicon

Er ekki búinn að lesa hana, ætla bíða með að mynda mér skoðun fyrr en ég er búinn að því... svo er ég heldur ekki eðlisfræðingur reyndar

Elín Árnadóttir (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 18:04

4 Smámynd: Mofi

Elín, maður getur myndað sér skoðun á einhverri hugmynd án þess að lesa heila bók um þá hugmynd. Maður náttúrulega situr eftir með það að hafa ekki farið í gegnum rökin fyrir þessu en maður þarf ekki að lesa allar bækur sem koma með ótrúlegar fullyrðingar til að hafna þeim fullyrðingum. Ég að minnsta kosti hafna fullyðringu Hawkings að alheimurinn geti orðið til úr engu.

Mofi, 5.10.2010 kl. 09:37

5 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Maður verður náttúrulega að lesa bókina til að geta myndað sér skoðun á henni Halldór, að halda öðru fram er fjarstæða. Ef þú hefur aðeins óljósar hugmyndir um hvað stendur í bókinni þá geturðu aldrei sagst hafa myndað þér upplýsta skoðun á efni hennar, þetta liggur í augum uppi.

Ég meina VEISTU raunverulega hvað stendur í bókinni?

Svo er þessi setning hjá þér mjög þversagnakennd:

Maður náttúrulega situr eftir með það að hafa ekki farið í gegnum rökin fyrir þessu en maður þarf ekki að lesa allar bækur sem koma með ótrúlegar fullyrðingar til að hafna þeim fullyrðingum.

Eh jú, þú þarft einmitt að lesa rökin fyrir fullyrðingunum til að geta hafnað þeim, annars ertu sekur um óupplýsta fordóma.

Sveinn Þórhallsson, 5.10.2010 kl. 12:39

6 Smámynd: Mofi

Sveinn, ég sagði "hugmynd", ekki bók. 

Sveinn
Eh jú, þú þarft einmitt að lesa rökin fyrir fullyrðingunum til að geta hafnað þeim, annars ertu sekur um óupplýsta fordóma. 

Hve margar bækur sem færa rök fyrir sköpun og syndaflóðinu hefur þú lesið?

Mofi, 5.10.2010 kl. 12:44

7 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Sveinn, ég sagði "hugmynd", ekki bók. 

Já, en þú veist ekki hvernig hugmyndin er eða hvaða rök eru færð fyrir henni fyrr en þú hefur lesið hana, er það? 

Spurning er raunar; ertu alveg viss um að þú vitir hver hugmyndin er? Ég fyrir mitt leiti veit það ekki, ég hef ekki rekist á hana eða þá rökin fyrir henni enn. Það eina sem ég hef rekist á er fullyrðingaglaða trúvarnarmenn sem reyna hvað þeir geta til að gera lítið úr hugmyndinni í þeirri von um að fólk láti sér það nægja og kynni sér ekki hugmyndina þegar bókin kemur út.

Hve margar bækur sem færa rök fyrir sköpun og syndaflóðinu hefur þú lesið?

Ég sagði "rök", ekki "bækur". Ég tel mig þekkja rökin nokkuð vel.

Sveinn Þórhallsson, 5.10.2010 kl. 13:34

8 Smámynd: Mofi

Sveinn
Já, en þú veist ekki hvernig hugmyndin er eða hvaða rök eru færð fyrir henni fyrr en þú hefur lesið hana, er það?

Ég veit það í grófum dráttur eftir að hafa hlustað á aðra fjalla um þetta.

Sveinn
Það eina sem ég hef rekist á er fullyrðingaglaða trúvarnarmenn sem reyna hvað þeir geta til að gera lítið úr hugmyndinni í þeirri von um að fólk láti sér það nægja og kynni sér ekki hugmyndina þegar bókin kemur ú

Veistu hver Roger Penrose er?

Sveinn
Ég sagði "rök", ekki "bækur". Ég tel mig þekkja rökin nokkuð vel.

Enda hafði ég ekkert á móti því að lesa hver rökin eru. 

Mofi, 5.10.2010 kl. 13:45

9 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Ég veit það í grófum dráttur eftir að hafa hlustað á aðra fjalla um þetta.

Allt í lagi, ég vil meina að það séu fordómar að dæma hugmynd án þess að vera viss um hvað felist í henni - t.d. með því að kynna sér eingöngu mál andstæðinga hennar.

Veistu hver Roger Penrose er?

Já það veit ég, og vil í því samhengi nefna að mjög margir eru ósammála honum þegar kemur að M-theory.

Sveinn Þórhallsson, 5.10.2010 kl. 14:45

10 Smámynd: Mofi

Sveinn, já sammála.

Sveinn
Já það veit ég, og vil í því samhengi nefna að mjög margir eru ósammála honum þegar kemur að M-theory. 

Þá veistu að hann er ekki "trúvarnamaður". Síðan alveg óþarfi að láta sem svo að þeir sem trúa á Guð eru eitthvað að reyna að gera lítið úr þessari hugmynd í einhverri von um að fólk lesi ekki einhverja bók.

Kannski þeir bara hafa lítið álit á þeirri hugmynd að margir alheimar eru til og að alheimurinn okkar geti orðið til úr engu bara vegna þyndaraflsins?

Mofi, 5.10.2010 kl. 14:57

11 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Kannski þeir bara hafa lítið álit á þeirri hugmynd að margir alheimar eru til og að alheimurinn okkar geti orðið til úr engu bara vegna þyndaraflsins?

Að því gefnu að þetta er raunverulega öll hugmyndin þá já, kannski hafa þeir bara lítið álit á henni af einhverjum öðrum ástæðum en trúarlegum.

En kannski, og það þykir mér líklegra, vilja þeir ekki horfast í augu við möguleika sem lýsir upp síðasta skúmaskotið sem gvuð þeirra hefur falið sig í - við erum nefnilega að tala um trúmenn sem samþykkja m.a. þróunarkenninguna.

Sveinn Þórhallsson, 5.10.2010 kl. 16:24

12 Smámynd: Mofi

Sveinn, ehh... kannski :)

Mofi, 5.10.2010 kl. 16:39

13 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Ég er með hugmynd að færslu fyrir þig þessu tengdu; Kalam-rökfærsla W.L.C.

Hugsa að við gætum lært margt, a.m.k. um skoðanir hvers annars, á því.

Sveinn Þórhallsson, 6.10.2010 kl. 13:14

14 Smámynd: Mofi

Sveinn, já, góð hugmynd!

Mofi, 6.10.2010 kl. 13:42

15 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Hvernig lítur annars listinn þinn yfir fyrirhuguð blogg út? Nú ertu duglegri en flestir þegar kemur að þessu og ég tel mig vita að það er margt sem þig langar að fjalla um.

Bara að forvitnast :)

Sveinn Þórhallsson, 6.10.2010 kl. 15:47

16 Smámynd: Mofi

Sveinn, tja...  :)   það eru nokkur sem hafa setið á hakanum sem er kominn tími á. Guðsteinn Haukur vildi grein sem fjallaði um hvort að þróunarkenningin samræmdist kristni. Einn vinur minn talaði um að gerð setlaganna væri eitt af því sem honum finnst mest sannfærandi fyrir syndaflóðinu svo mig langaði að skrifa um það. Eitt sem stóð eftir í umræðu um jarðfræði var hvort að það væru risa grafreitir í setlögunum; mig langaði að gera grein sem færi yfir það mál.  Ég er síðan að lesa "Signature in the Cell" og er að vona að eitthvað skemmtilegt blogg efni komi úr henni. Sömuleiðis á ég að vera með lexíu eftir tvær vikur sem fjallar um virði einstaklinga. Ætla að gera blog um hana því ég er mjög forvitinn að heyra álit guðleysingja á því...

Þetta er svona það sem ég man eftir í augnablikinu :)    þetta og...ahh, ein grein sem ég gerði þar sem ég bað um hugmyndir að blog greinum; ég þarf að skoða hana aftur :/

Mofi, 6.10.2010 kl. 16:50

17 Smámynd: Mofi

Ef þú ert með einhverjar hugmyndir þá "I'm all ears".

Mofi, 6.10.2010 kl. 16:51

18 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Ég læt þig vita ef mér dettur eitthvað í hug

Sveinn Þórhallsson, 6.10.2010 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 802828

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband