Hljómfögur útskýring á mormóna trúnni

Mér finnst alveg ótrúlegt hve lítinn þátt mormóna trú Mitt Romney ætlar að spila í þessum kosningum. Að vísu þá spilar trú Obama lítið sem ekkert inn í umræðuna svo kemur ekki á óvart að sumir halda að hann sé bara múslimi. En út frá því þá ætti það ekki að koma á óvart að mormóna trú Mitt Romney skuli ekki spila stærra hlutverk í þessum kosningum.  Engin spurning að Mitt Romney vann nýlegu rökræðurnar við Obama og ég er ekki frá því að hans viðskiptavit gæti virkilega hjálpað Bandaríkjunum. Ég er líka að lesa bókina "The 3rd alternative" sem er virkilega góð en hún er eftir mann sem er mormóni svo eins stór undarleg sem þessi trú er þá er samt mjög gáfað fólk sem tilheyrir þessari kirkju.


mbl.is Romney með 4% forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peppered Moths en engin þróun

peppered%20mothNýleg rannsókn sýndi að vísindalegar rannsóknir á felugetu mölflugna ( við íslendingar vanalega köllum þær fiðrildi en fólk í heitari löndum er ekki alveg sammála ) þarf ekki á þróunarkenningunni að halda. Ég held að flestir sem hafa stúdentspróf þekki þessa sögu af mölflugum þar sem sumar voru ljósar og aðrar voru dökkar. Þegar síðan tré byrjuðu að verða dekkri vegna mengunar í kjölfar iðnbyltingarinnar þá breyttist hlutfall mölflugna þannig að dökkar mölflugur urðu í meirihluta. Þróunarsinnar sögðu að þarna væri hægt að sjá náttúruval að verki og mölflugurnar hefðu "þróast".

Líffræðingar ( þróunarsinnar ) frá Seoul, Suðuer Kóreu mynduðu mölflugur hvílandi á trjám. Samkvæmt PhysOrg þá voru þeir að reyna að skilja hvernig mölflugurnar úti í náttúrunni staðsetja sig á trjám til að fela sig sem best.  Það er töluvert öðru vísi spurningin en margir aðrir líffræðingar höfðu spurt, vanalega voru vísindamenn að leita að ummerkjum um náttúruval meðal mölflugna.  Í þeim gömlu rannsóknum þá var feluleikurinn tilviljun en ekki hegðun mölflugnanna.  Svona var fyrsta málsgreinin í þessari þessari vísinda grein:

Moths are iconic examples of camouflage. Their wing coloration and patterns are shaped by natural selection to match the patterns of natural substrates, such as a tree bark or leaves, on which the moths rest. But, according to recent findings, the match in the appearance was not all in their invisibility… Despite a long history of research on these iconic insects, whether moths behave in a way to increase their invisibility has not been determined.

Í öðrum orðum, aðrir sem rannsökuðu þetta fyrirbrygði tóku ekki tillit til hvernig mölflugurnar hegðuðu sér. Þeir litu á mölflugurnar sem óvirkar þegar kom að þessum þætti, að tilviljun réði því á hvernig yfirborð þær settust á. Þeir héldu að þátturinn sem ýtti undir valið væri umhverfið, ljósar mölflugur sæjust betur á dökku yfirborði en dökkar mölflugur og væru þar af leiðandi auðveldari bráð fyrir fugla.

Þessir vísindamenn aftur á móti fundu út að hegðun mölflugurnnar er mikilvægasta atriðið þegar kemur að blandast saman við umhverfið til að fela sig. Þeir útskýrðu það sem þeir fundu svona:

“found out that moths are walking on the tree bark until they settle down for resting; the insects seem to actively search for a place and a body position that makes them practically invisible.” 
...
To determine whether this final spot indeed made the moth really invisible, the researchers photographed each moth at its landing spot (initial spot) and at the final spot at which the moth decided to rest. Next, the researchers asked people to try to locate the moth from the photograph as quickly as possible. People had more difficulty finding the moths at their final spots than the same moths at their initial landing spots. Amazingly, this was even true for the species (Hypomecis roboraria) that only changed its resting spot on the tree bark without changing its body orientation. Therefore, the researchers concluded, that moths seems to actively choose the spot that makes them invisible to predators. How do they know how to become invisible? The research team is now trying to answer this question as the next step.

Ekki mikið eftir af sögunni sem mörg okkar lærðu í skóla um fiðrildi og afl náttúruvals. Eins og þarna væri sýnishorn af því hvernig náttúruval og tilviljanir gæti útskýrt allt fiðrildið þegar síðan rauninni er að þarna er ekki einu sinni útskýringin á breytingu á fjölda mölflugna sem eru dekkri. 

Fiðrildi og mölflugur sýna öll einkenni hönnunar og er stórkostlegur vitnisburður um skaparann, sjá: Hönnun fiðrilda

Þessi grein var lauslega þýdd héðan: http://crev.info/2012/07/peppered-moths-without-evolution/


Bloggfærslur 9. október 2012

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 803356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband