19.8.2011 | 13:58
Er þróunarkenningin staðreynd?
Þessi grein er svar við grein Arnar Pálssonar sem má skoða hér: Þróunarkenningin er staðreynd
Hérna er grein sem svarar þessari hugmynd með að þróunarkenningin sé staðreynd, sjá: They said it: Evolution is a Fact!
Arnar Pálsson
Rick Perry hefur skipað þrjá síðustu yfirmenn menntasviðs fylkisins, allt yfirlýsta sköpunarsinna. Þetta er áþekkt því að velja í embætti fjármálaráðherra mann sem tryði ekki á reikning
Þetta væri svipað eins og að skipa menn eins og Isaac Newton, Gregor Mendel, James Joule, George Washington Carver, Dr. John Mann, John Ambrose Fleming, James Clerk Maxwell, Joseph Lister, William Thompson, Lord Kelvin, Louis Pasteur, Richard Owen, Michael Faraday, Samuel F.B. Morse svo nokkur nöfn séu nefnd. Hérna sjáum við bara svakalega fordóma gagnvart þeim sem eru ósammála Arnari. Ótal margir vísindamenn í dag annað hvort efast um þróunarkenninguna eða hafna henni. Eitt skemmtilegt þannig dæmi er að 60% af læknum efast um þróunarkenninguna, sjá: New Darwin Dissent List for the 60% of U.S. Doctors Skeptical of Darwinian Evolution
Arnar Pálsson
Sköpunarsinnar koma í nokkrum blæbrigðum, en sammerkt er að þeir afneita hinni vísindalegu aðferð, og sérstaklega útskýringum þróunarfræðinga á tilurð og eiginleikum mannsins.
Það voru sköpunarsinnar sem bjuggu til hina vísindalegu aðferð, sjá: Sir Francis Bacon Því miður þá hafa guðleysingjar á síðustu öld reynt að gera guðleysi að hinni vísindalegu aðferð. Að það sé skylda vísindanna að útskýra allt án tilvísunar í Guð, eitthvað sem enginn af stofnendum nútímavísinda hefði verið sammála. Þetta er bara að ákveða svarið fyrir fram sama hvað staðreyndirnar gefa til kynna. Ekkert vísindalegt við það.
Arnar Pálsson
Menntasvið Texas gerði að undirlagi sköpunarsinna kröfur um efnistök í kennslubókum í líffræði, um útvötnun á útskýringum á þróun og tilvísanir til guðlegrar sköpunar eða vithönnunar "til mótvægis". (sjá einnig: Bilið milli T-rex og Texas).
Frekar að það hefur verið barátta að losna við lygar úr skólabókum og ekki fela vandamálin sem kenningin glímir við og sömuleiðis leyfa opna umræðu um kenninguna. En nei, staðreyndir og opin umræða þar sem fólk getur látið í ljós efasemdir eða sannfæringu er ekki eitthvað sem þróunarsinnum finnst heillandi. Þeir bara vilja harðan heilaþvott svo að allir trúi eins og þeir trúa. Að kenna rök með og rök á móti er einmitt það sem hjálpar fólki að skilja viðfangsefnið en skilningur er líka eitthvað sem þróunarsinnum virðist líka illa við.
Arnar Pálsson
Það er semsagt allt í lagi að kenna börnunumað jörðin sé kúla og pönnukaka,
að svínaflensa sé vegna veiru og afstöðu himintunglanna,
að bólusetningar veiti vernd og valdi einhverfu,
að 2 + 2 = 4 og 5
Það er í lagi að fræða um hvaða kenningar mismunandi hópar aðhyllast. Fræða hver eru rökin með, hver eru rökin á móti og já. Fólk hafi gáfur til að sjá hvort sé rétt. Taki sjálfstæða ákvörðun í staðinn fyrir heilaþvott.
Arnar Pálsson
Markmið skóla er að kenna staðreyndir ekki sköpunarsögur eða tröllasögur sem ákveðnir þrýstihópar grundvalla sína heimsmynd á.
Það væri yndislegt ef að skólarnir myndu aðeins kenna staðreyndir. Láta það vera að kenna sköpun eða þróun heldur bara hverjar staðreyndirnar séu. Eins og að við höfum sama sem engin gögn um að stökkbreytingar geti búið til nýjar upplýsingar, eins og hvað við finnum í setlögunum sem passar við sköpun ekki þróun og svo mætti lengi telja. Það væri hreinlega stórkostlegt ef að skólar myndu gera þetta.
Arnar Pálsson
Pharyngula:
Sorglegt að Arnar skuli vitna í einn ógeðfelldasta bloggara okkar tíma, flestum blöskrar hve ómálefnalegur hann er, sjá: NY Times slaps ID foes PZ Myers and other ScienceBlog authors
Myndin af erninum er bara til skrauts en líka til að minna á þá stórkostlegu hönnun og fegurð sem við sjáum í náttúrunni.
19.8.2011 | 00:50
Ekkert nema göt og ekki einu sinni botn
Aldrei í sögu mannkyns hefur kenning verið jafn vinsæl með jafn lítið af gögnum til að styðja hana. Í ofan á lag er eins og það eru nornaveiðar á þá sem trúa ekki eins og hinir. Trúfrelsi til að trúa öllu mögulegu en að trúa ekki að þróunarkenningin sé sönn, margir eru ekki alveg til í að leyfa slíkt. Hið virkilega sorglega er að almennt hefur fólk ekki skyn á að greina hvað styður kenninguna og hvað kemur henni sama sem ekkert við. Hérna eru nokkur atriði sem fólk telur upp sem það heldur að styðji þróunarkenninguna:
- Náttúruval. Fólk telur upp hluti eins og náttúruval, lætur sem Darwin hafi uppgvötað náttúruval og að það sé ferli sem geti hannað eitthvað. Darwin uppgvötaði ekki náttúruval heldur sköpunarsinni að nafni Edward Blythe og þetta ferli snýst um að henda og varðveita hvað sem er í gangi í náttúrunni. Hvað sem tilviljanakenndar stökkbreytingar bjuggu óvart til.
- Ónæmi baktería. Hve eymdarlegt er það að þurfa benda á stökkbreytingar sem gera lítið sem ekkert sem aðal stuðningin við það að stökkbreytingar gátu smíðað flottari tæki en við getum hermt eftir.
- Týndir hlekkir. Af og til eru nokkrir sem eru svo vitlausir að reyna að selja þá hugmynd að við sjáum þróun í steingervingunum en slíkt er algjör fyrra. Við sjáum strax í fyrsta setlaginu mikla fjölbreytni, þvert á það sem kenningin spáir fyrir um, sjá: Kamríum setlagið og þróunarkenningin
- Það sem einkennir setlögin og steingervingana er að dýrategundir birtast án þróunarsögu og síðan breytast þær ekki á öllum þeim ímyndaða tíma sem þróunarsinnar hafa töfrað fram úr hattinum sínum. Af og til eru koma þróunarsinnar með heiðarlegar játanir á hver staðan er eins og Stephen J. Gould þegar hann sagði, "The absence of fossil evidence for intermediary stages between major transitions in organic design, indeed our inability, even in our imagination, to construct functional intermediates in many cases, has been a persistent and nagging problem for gradualistic accounts of evolution."
Einn þróunarsinni sem kennir þróunarkenninguna við Oxford sagði þetta: "In any case, no real evolutionist, whether gradualist or punctuationist, uses the fossil record as evidence in favour of the theory of evolution as opposed to special creation. Sem sagt, enginn þróunarsinni með vitglóru í kollinum fer að reyna að nota steingervingana til að styðja þróunarkenninguna og ástæðan er einföld, steingervingarnir passa ekki við hana. Við finnum ekki steingervinga sem sýna hvernig stórar breytingar á dýrategundum gerðust en það er það sem kenningin spáir fyrir um að við ættum að finna. - DNA. Ég get ekki einu sinni byrjað að fatta hvernig sumum dettur í hug að DNA einhvern veginn styður guðlausa þróun. Að uppgvöta að allt lífið byggir á DNA sem virkar eins og stafræn forritunarkóði öskrar vitræn hönnun fyrir hvern þann sem er yfirhöfuð með meðvitund. Ef einhver heldur að DNA styðji þróun þá skal hann útskýra hvernig efnin fóru að því að gefa ákveðni röð af efnum ákveðna merkingu og búa til vélar sem skilja upplýsingarnar og geta farið eftir þeim.
- Homology ( veit því miður ekki íslenska orðið yfir þetta ). Það sem fólk áttar sig ekki á er að sjá að eitthvað sé svipað milli ólíkra tegunda eru rök fyrir sameiginlegum forfaðir þessara tegunda en fattar ekki að það eru ekki rök fyrir þróunarkenningunni. Þróunarkenningin á að útskýra hvernig dýrin og dýrategundir urðu til og hún segir að náttúruval plús tilviljanakenndarstökkbreytingar á DNA er það sem orsakaði allt sem við sjáum í náttúrunni. Ef að dýrategundir eru svipaðar að einhverju leiti þá sýnir það aðeins fram á að kannski áttu þessar tegundir sameiginlegan forfaðir en segir ekkert um hvernig það gerðist. Síðan þá eru þetta rök sem virka alveg jafn sterk fyrir sameiginlegan hönnuð. Við nánari athugun þá eru þessi rök miklu sterkari fyrir sameiginlegum hönnuði því að við höfum mörg dæmi þar sem samskonar hönnun í dýrum er ekki vegna sameiginlegs forföðurs. Þetta er kallað "convergent evolution" og ætti að drepa kenninguna algjörlega en erfitt að drepa trú sem byggist ekki á staðreyndum. Meira um convergent evolution hérna: Similar Features Show Design, Not Universal Common Descent
- Aðlögun dýra. Menn sjá litlar breytingar og telja að það sanni að bakteríur geti breyst í banana eða í menn, bara ef tilviljanakenndar stökkbreytingar og náttúruval fá tíma til að athafna sig. Það er voðalega lítið við þessu að segja. Ef að menn þurfa svona lítið til að trúa svona miklu þá er hér greinilega um að ræða þeirra vilja og sem betur fer er hérna trúfrelsi. Svona óbeint miðað við þessa frétt því það virðist vera þannig að þú sért réttdræpur fáviti ef þú bara dirfist að efast um þessa kenningu. Gregor Mendel er sá sem lagði grunninn að okkar skilningi á erfðum og hann skrifaði á móti Darwin og hans kenningu og hann sá að hans skilningur á erfðum útilokaði þessa endalausu þróun sem Darwin stakk upp á. Því miður var hann munkur sem eilíta þess tíma leit bara niður á svo enginn tók eftir þessum mótmælum eða hans rannsóknum fyrr en löngu eftir hans daga. Mendel sá að dýr erfa eiginleika frá föður og móður og blandar þeim saman á mismunandi hátt en það eru takmörk fyrir þeim eiginleikum sem geta komið út úr þessari blöndun. Nokkuð skýr takmörk. Þegar menn uppgvötuðu rannsóknir Mendels þá áttuðu margir sig á því hvaða vandamál þetta þýddi fyrir þróunarkenninguna en stökkbreytingar áttu að koma til bjargar. Hugmyndafræðilega séð gerðu þær það en það vantar enn staðfestingu á sköpunarhæfileikum stökkbreytinga.
Gögni og rökin fyrir vitrænni sköpun eru endalaus en þetta er orðið nógu langt, læt duga að benda á nokkrar greinar þar sem ég hef fjallað um það sem styður sköpun:
- Mótorinn sem Guð hannaði
- Þeir sem eru án afsökunnar
- Ótrúleg hönnun kolkrabbans
- Rannsóknir á hönnun í náttúrunni
- Hönnun fiðrilda
- Vitræn hönnun fær verðlaun
- Myndbönd sem sýna ótrúlega hönnun í minnstu einingum lífsins
- Myndband sem sýnir sönnunargögn fyrir vitrænni hönnun í DNA
- Sólmyrkvi, dæmi um hönnun Guðs
- Myndbandið sem sannar vitræna hönnun
- Flott myndband af þeirri hönnun sem við sjáum í lífinu
- Hvernig varð DNA kóðinn til?
- Eru tilviljanir líklegar til að forrita gagna þjöppunar reiknirit?
- Getur þróun búið til auga? Ertu alveg viss?
- Getur þróunarkenningin yfirstígið 'Stökkbreytinga verndunar þversögnina'?
- Bestu rök Dawkins, lygi?
- Kóði innan kóðans
- Viðgerða kolkrabbinn inn í þér
- DNA viðgerðir og tilvist hönnuðar
- Sönnun fyrir tilvist Guðs - uppruni lífs
![]() |
Sagði þróunarkenninguna vera kenningu með götum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (73)
Bloggfærslur 19. ágúst 2011
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 803356
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar