Stephen Meyer um staðreyndir sem styðja tilvist Guðs - 3

Í þetta skiptið fjallar Stephen Meyer um fínstillingu alheimsins og hvernig það styður að okkar alheimur var hannaður af Guði.  Stephen svarar mjög vel af hverju mótrökin gegn fínstillingunni ganga ekki upp eins og "multiverse" hugdettan.

http://www.lightsource.com/ministry/ankerberg-show/discovery-three-the-universe-has-been-fine-tuned-for-life-222382.html

Nokkrar tilvitnanir sem fjalla um fínstillingu alheimsins eða lögmálanna sem stjórna honum. 

Dr. Paul Davies(noted author and Professor of Theoretical Physics at Adelaide University)
The really amazing thing is not that life on Earth is balanced on a knife-edge, but that the entire universe is balanced on a knife-edge, and would be total chaos if any of the natural ‘constants’ were off even slightly. You see,” Davies adds, “even if you dismiss man as a chance happening, the fact remains that the universe seems unreasonably suited to the existence of life—almost contrived—you might say a ‘put-up job’

Fred Hoyle
A common sense interpretation of the facts suggests that a superintellect has monkeyed with physics, as well as with chemistry and biology, and that there are no blind forces worth speaking about in nature. The numbers one calculates from the facts seem to me so overwhelming as to put this conclusion almost beyond question

George Ellis
Amazing fine tuning occurs in the laws that make this [complexity] possible. Realization of the complexity of what is accomplished makes it very difficult not to use the word 'miraculous' without taking a stand as to the ontological status of the word

Arno Penzias (Nobel prize in physics)
Astronomy leads us to a unique event, a universe which was created out of nothing, one with the very delicate balance needed to provide exactly the conditions required to permit life, and one which has an underlying (one might say 'supernatural') plan


Var hvíldardagurinn aðeins fyrir gyðinga?

ten-commandments.jpgEin af mótrökunum við því að við eigum að halda hvíldardaginn eru þau að hvíldardagurinn var fyrir gyðinga en ekki fyrir kristna. Þeir segja að sjöundi dagurinn, hvíldardagurinn var sambandstákn milli Guðs og Ísraels en ekki fyrir aðra eða ekki fyrir kristna.  Hérna er versið sem talar um hvíldardaginn sem sambandstákn milli Ísraels og Guðs.

2. Mósebók 31:13
Tala þú til Ísraelsmanna og seg: ,Sannlega skuluð þér halda mína hvíldardaga, því að það er teikn milli mín og yðar frá kyni til kyns, svo að þér vitið, að ég er Drottinn, sá er yður helgar. 

Ég ætla að lista hérna upp ástæður fyrir því að hvíldardagurinn er fyrir alla menn, ekki aðeins gyðinga:

  1. Hvíldardagurinn var gerður áður en Ísrael varð til. Meira að segja áður en synd kom inn í heiminn.
  2. Varðandi hvíldardaginn þá segir lögmálið að hvíldardagurinn átti líka við útlendinga
    2. Mósebók 20:10 "en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða ambátt þín eða skepnur þínar, eða nokkur útlendingur, sem hjá þér er innan borgarhliða þinna" 
  3. Jesús sagði að hvíldardagurinn var skapaður fyrir mannkynið, því til blessunar.
    Markúsarguðspjall 2:27-28 "Og hann sagði við þá: "Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins. Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins.
  4. Þegar postularnir voru að predika fagnaðarerindið þá hittu þeir heiðingja á hvíldardegi til að kenna þeim um Jesús
    Act 13:42-43  "And when the Jews were gone out of the synagogue, the Gentiles besought that these words might be preached to them the next sabbath.
    Act 13:43  Now when the congregation was broken up, many of the Jews and religious proselytes followed Paul and Barnabas: who, speaking to them, persuaded them to continue in the grace of God." 
    Nota ensku útgáfuna hérna þar sem að hin íslenska segir að menn báðu þá um að segja þeim meira en málið er að þessir menn voru ekki gyðingar og þeir vildu vita meira en þeir þurftu að bíða til næsta hvíldardags til að heyra meira um Jesú.
  5. Hvíldardagurinn verður haldinn á himninum þar sem allir menn koma fram fyrir Guð
    Jesaja 66:22-23
    "Já, eins og hinn nýi himinn og hin nýja jörð, sem ég skapa, munu standa stöðug fyrir mínu augliti - segir Drottinn - eins mun afsprengi yðar og nafn standa stöðugt. Og á mánuði hverjum, tunglkomudaginn, og á viku hverri, hvíldardaginn, skal allt hold koma til þess að falla fram fyrir mér - segir Drottinn."

Ég trúi að þetta sé eins skýrt og eitthvað getur orðið skýrt; ætti ekki að vera neitt rúm fyrir vafa varðandi þetta mál.  Önnur rök sem eru nátengd þessum eru þau að Jesús uppfyllti lögmálið og þess vegna hafa kristnir aðrar reglur eða lög sem þeir eiga að fylgja.  Mér finnst engan veginn skýrt hvaða reglur þetta eru en oftast fæ ég að heyra að þetta er það sem Jesús sjálfur sagði.  Skoðum þá eitt sem Jesú sagði sínum fylgjendum að gera, við finnum það í Matteusarguðspjalli 23. kafla.

Matteusarguðspjall 23:1-3
Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna:
"Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. Því skuluð þér gjöra og halda allt, sem þeir segja yður, en eftir breytni þeirra skuluð þér ekki fara, því þeir breyta ekki sem þeir bjóða. "

Ætti að vera nokkuð skýrt, þegar fólkið heyrði fræðimennina lesa upp úr lögmálinu þá átti það að fara eftir því. Ein mótrökin sem ég hef heyrt við þessu eru þau að þarna var Jesú að tala við gyðinga og þetta átti því bara við gyðinga. Vandamálið við þessi rök er að Jesú talaði nærri því bara við gyðinga. Það eru aðeins örfá dæmi þar sem Jesú talaði við fólk sem voru ekki gyðingar. Öll fjallræðan var t.d. til gyðinga en ég efast um að hinn almenni kristni maður vill meina að hún eigi ekki við hann vegna þess að áheyrendurnir voru gyðingar.

Út frá þessu þá vil ég skoða versið sem talar um að Jesús muni uppfylla lögmálið. Það er einmitt í fjallræðunni, í Matteusarguðspjalla 5. kafla.

Matteusarguðspjall 5:17-18
Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla.
Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram.

Í fyrsta lagi þá er það mikil afskræming á orðum Krists að láta orðið "uppfylla" þýða það að það er dottið úr gildi þegar Jesús segir skýrt að Hann kom ekki til að afnema lögmálið. Ef að Jesú var þarna að kenna að uppfylla þýddi að Hans fylgjendur þurfa ekki lengur að halda lögmálið þá hefði Hann aldrei staðhæft að Hann kom ekki til að afnema.  Svo hvað þýðir það sem Jesú segir þarna, að Hann kom til að uppfylla?  Orðið sem þarna er verið að þýða er plēroō (πληρόω)

http://www.searchgodsword.org/lex/grk/view.cgi?number=4137
  • to make full, to fill up, i.e. to fill to the full
    1. to cause to abound, to furnish or supply liberally
      1. I abound, I am liberally supplied
  • to render full, i.e. to complete
    1. to fill to the top: so that nothing shall be wanting to full measure, fill to the brim 

Þannig að það sem Jesús var að segja var að Hann kom til þess að fylla á lögmálið. Eins og að lögmálið var ekki alveg komið og Jesús hafi komið með það sem vantaði upp á til að gera það fullkomið. Eins og glas sem var ekki alveg fullt þá kom Jesús og gerði það barmafullt. 

Þar sem að Guð og synd eiga ekki samleið þá ætti það að vera kristnum hið mesta kappsmál að losa sig við synd úr sínu lífi. Andi Guðs mun ekki búa með þeim sem velja að lifa í synd og þar sem synd er lögmálsbrot (  1. Jóhannesarbréf 3:4 ) þá skiptir það miklu máli hvort að brot á hvíldardagsboðorðinu er að valda því að viðkomandi aðskilur sig frá Guði með þeirri synd.

Í þeirri von að það bætist í hóp þeirra sem vilja lifa með Guði og ekki syndga.


Stephen Meyer um staðreyndir sem styðja tilvist Guðs - 2

Skemmtilegt viðtal við Stephen Meyer um uppgvötanir vísindanna síðustu aldar sem benda til tilvistar Guðs. Að við höfum í dag staðreyndir sem benda til yfirnáttúru.  Ein góð tilvitnun sem kemur þarna fram er þessi: 

Frederic Burnham
The idea that God created the Universe is a more respectable hypothesis today than at any time in the last 100 years

http://www.lightsource.com/ministry/ankerberg-show/discovery-two-space-and-time-had-a-beginning-222380.html


John F. Kennedy um leynifélög

Allt þetta umstung í kringum Líbíu minnir mig á ræðu John F. Kennedy um leynifélög. Hvort sem að slíkt er á bakvið það sem gerðist í Líbíu veit ég ekki en allt þetta mál lyktar svakalega illa. Síðan langar að benda á fyrirlestur þar sem fjallað er um...

Af hverju þarf maður fyrirgefningu Guðs?

Þessi frétt minnti mig á spurningu sem ég fékk fyrir nokkru en hún var af hverju þarf maður fyrirgefningu Guðs. Það sem viðkomandi var að velta fyrir sér, af hverju Guð væri að blanda sér inn í það þegar maður hefur gert eitthvað á hlut annars manns....

Fréttirnar sem var ákveðið að sleppa

Er möguleiki að það sem stendur hérna sé satt? Sjá: http://gagnauga.is/index.php?Fl=Greinar&ID=173 Eitt af því sem mér finnst mjög athyglisvert ef satt er, er að það voru ótal mjög fjölmennar kröfugöngur út um alla Líbíu til stuðnings Gaddafi en það fór...

Var Gaddafi vondur?

Ég hef verið að lepja upp allar fréttir af Líbíu og Gaddafi nokkuð gagnrýnislaust en eftir spjall við nokkra vini þá áttaði ég mig á því að það væri önnur hlið á málinu. Kannski var Gaddafi ekki eins og vondur og menn vildu láta og að það væri önnur saga...

Adam og Eva og öll litabrigði mannkyns

Margir hafa velt fyrir sér hvernig allur þessi fjölbreytileiki húðlita mannkyns gæti hafa komið frá einu pari fyrir u.þ.b. sex þúsund árum síðan. Ef menn eru kristnir þá hafa margir velt þessu fyrir sér og margir örugglega sett þetta á hilluna, þ.e.a.s....

John Lennox um bók Stephen Hawking "The Grand Design"

Mjög skemmtilegur fyrirlestur um bók Stephen Hawking "The Grand Design" og af hverju tillögur Hawkings til að losna við Guð þegar kemur að uppruna alheimsins ganga ekki upp. John Lennox fer yfir rökvillurnar í aðal rökum Hawkings. John Lennox er...

Mótor með 100% nýtni

Mótorar sem eru svo litlir að 120.000 geta verið í títiprjónshaus er nógu merkilegt til að maður sitji hljóður í undrun en það er bara byrjunin. ATP mótorinn sem allt líf þarf á að halda er einnig með nýtni nálægt 100% samkvæmt nýlegri Japanskri...

Fyrirlestur um hver Mikael er í Biblíunni

Einnig góð grein um þetta: http://www.creation-science-prophecy.com/michael.htm Mjög fróðlegt þar sem þetta rekur í gegnum margar sögur í Biblíunni og bendar á athyglisverð vers sem flestir hugsa ekki mikið út í.

Vegna þess að lögleysi magnast mun kærleikur flestra kólna

Svona fréttir eru ekki hollar fyrir sálina. Það hreinleg nýstir í mann að horfa á myndbandið, get ekki mælt með því að horfa á það. Vil ekki hafa myndbandið hérna en bloggarinn Gunnar Th. Gunnarsson er með link á það, sjá: Hér er myndbandið Í spádómi...

Stephen Meyer um staðreyndir sem styðja tilvist Guðs - 1

Hérna er forvitnilegt viðtal við Stephen Meyer um vísindi og tilvist Guðs. Hann fer yfir sögu vísinda og þeirra manna sem mótuðu þá heimsmynd sem við sitjum uppi með í dag.

Mega kristnir borða blóðuga steik?

Ég vissi hreinlega ekki að hrá steik inniheldur sama sem ekkert blóð og rauði safinn sem lekur úr steikinni er ekki blóð svo ég hér með leiðrétti þetta. Hérna á eftir kemur færslan en endilega hafið í huga að ég hafði rangt fyrir mér varðandi að steikur...

Nóbelsverðlaunin - það er eitthvað að

Ég rakst a grein sem gagnrýndi hverjum hefði verið veitt Nóbelsverðlaunin i eðlisfræði sem mér finnst ahugaverð, sjá: A Nobel prize in Physics for what? Persónulega finnst mer eitthvað undarlegt í gangi fyrst að Bob Dylan var sniðgenginn fyrir einhvern...

Kostir þess að umskera, minni líkur á krabbameini

Fyrir einhvern sem er kristinn þá ætti hans afstaða að vera að þegar Guð gaf Ísrael leiðbeiningar um hvernig þjóðin ætti að hegða sér þá voru það leiðbeiningar gefnar í kærleika og visku. Allt of oft heyri ég kristna tala um lögin sem Guð gaf Ísrael...

Eiga menn og apar sameiginlegan forföður?

Flestir kannast við þá staðhæfingu að apar og menn eru nærri því eins DNA eða í kringum 98% af DNA manna og apa sé eins og það sanni að menn og apar eiga sameiginlegan forföður. Fyrst vil ég benda á það að rök fyrir sameiginlegum forföður eru ekki mótrök...

Frá guðleysi til kristni - Saga Richard Morgans

Frá guðleysingja til kristins, saga Richard Morgan og hvernig hann fór guðleysi til kristni. Ég persónulega hefði viljað sjá að staðreyndir spiluðu aðal hlutverkið í þessari breytingu en það voru aðalega tilfinningar sem létu Richard Morgan skipta um...

Ron Paul, mjög áhugaverður einstaklingur

Fyrir mörgum árum tók ég eftir Ron Paul og fannst hann vera með mjög áhugaverðar hugmyndir, gáfaður og tilbúinn að vera öðru vísi. Ég líka hugsaði með mér að þessi maður verður aldrei forseti eða fær mikið fylgi. Það væri magnað ef að það reynist rangt....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 803449

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband