Verið að höggva niður tré lífsins sem Darwin skáldaði upp

Tree of lifeTvær fróðlegar greinar birtust nýlega þar sem nokkrir vísindamenn gagnrýna tré lífins sem Darwin teiknaði í "Uppruni tegundanna". Þetta var eina teikningin í bókinni og hefur orðið nokkurs konar táknmynd fyrir þróunarkenninguna en núna eru þó nokkrir vísindamenn sem vilja það burt; segja það villandi þegar kemur að því að skilja hvernig hinar mismunandi tegundir dýra eru skyldar.

Hérna eru greinarnar tvær: Charles Darwin's tree of life is 'wrong and misleading', claim scientistsWhy Darwin was wrong about the tree of life 

Greinarnar innihéldu nokkrar skemmtilegar tilvitnanir eins og t.d. þessa hérna:

Dr. John Dupre
If there is a tree of life it’s a small irregular structure growing out of the web of life.

Dr Eric Bapteste
For a long time the holy grail was to build a tree of life. We have no evidence at all that the tree of life is a reality

Þetta eru allt vísindamenn sem aðhyllast Þróunarkenninguna svo það er ekki eins og þeir eru að hafna henni; þeir  telja aðeins að þetta tré lífsins gefur ranga mynd af stöðunni og þeir vilja aðra táknmynd sem gefi betri mynd af raunveruleikanum.  Samt fyrir mig þá er þetta aðeins staðfesting á því hve Þróunarkenningin passar illa við raunveruleikann.

Fyrir þá sem hafa enga löngun til þess að þessi kenning Darwins sé sönn þá er bara gaman að sjá hana hrynja smá saman; ekki að hún hafði einhvern tíman einhvern trúverðugleika, menn aðeins völdu að trúa henni af því að þeim langði til þess.  Menn ættu að taka öll svona fagnandi, góðu fréttirnar sem Guðspjöllin segja frá eru sannar og dauðinn hefur verið sigraður og eilíft líf í boði fyrir hvern þann sem iðrast og vill þyggja þá gjöf. Aðrir geta haldið áfram að rembast við að trúa þessu, þrátt fyrir að það boði aðeins dauða og tortýmingu fyrir þá sjálfa og alla þá sem þeim þykir vænt um.


Darwin’s Original Sin

fuller256Vísindamaður að nafni Steve Fuller hélt fyrirlestur í Oxford  um tengsl Darwins við vísindi og áhrif trúar á vísinda rannsóknir.  Hann veltir fyrir sér ástæðunum fyrir því að vísindabylting gerðist, hvort að trú fólks hafði áhrif á hvort það lagði fyrir sig vísinda rannsóknir eða ekki.  Hann kemur með góð rök fyrir því að hin Biblíulega trú var aðal hvatinn fyrir vísindabyltinguna sem leiddi til nútíma vísinda.

Hérna er linkur á fyrirlesturinn og vona að þið hafið gaman af: Darwins Original Sin


Lifi byltingin?

Byltingar valda straumhvörfum í samfélaginu en þær eru vanalegar mjög sársaukafullar.  Þær sem við þekkjum úr mannkynssögunni kostuðu líf svo spurning hvort að sú bylting sem vofir yfir okkar samfélagi þarf að kosta svo mikið.  Ég sannarlega vona ekki og vona að stjórnvöld sýni smá manndóm og boði til kosninga.  Það sem almenningur er aðallega að mótmæla er að fólkið sem ber ábyrgðina á þessu rugli er enn við völd. 

Kannski endar þetta á þessa leið?  

 

rev

Fékk þessa mynd í pósti og veit ekki hver er listamaðurinn en vona að það sé í lagi að nota hana
mbl.is Mótmælt við þinghúsið á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setti hann heilt land á hausinn?

Það væri gaman að vita hvort að forseti Íslands hefur svona vald. Ef einhver veit það þá væri gaman að heyra í honum. Það er auðvitað ekki hægt að segja að einhver einn ráðherra ber ábyrgð á því að Ísland fór á hausinn en þegar allt fer í steik þá eru...

Hvað á maður að blogga um?

Núna er blogg árið að byrja og mig vantar smá hjálp við að ákveða mig hvað ég á að reyna að blogga um þetta árið. Ef einhver vill hjálpa mér þá væri það vel þegið. Hvaða efni langar þér að heyra mína skoðun á? Það eru nokkur atriði sem ég er að hugsa um...

Sumir trúa því að Guð muni pynta fólk að eilífu

Líklegast og vonandi myndu kristnir almennt fordæma pyntingar eins og Amnesty er þarna að fjalla en hvernig stendur síðan á því að þessir sömu "kristnu" einstaklingar halda því fram að Guð muni pynta fólk að eilífu? Auðvitað skil ég fólk mjög vel sem...

Hið frábæra félag Vantrú

Það kemur kannski einhverjum á óvart að mér finnst margt virkilega gott við félagið Vantrú en mér finnst margt af því sem þeir eru að "berjast" fyrir mjög gott. Frábært er kannski aðeins of sterk til orða tekið :) Ég vildi að mínir kristnu félagar og...

Guð er löngu búinn að yfirgefa Ísrael

Þrátt fyrir að ég styðji tilverurétt Ísraels og er almennt á þeirra bandi þá samt ber manni að fordæma svona voðaverk. Því miður eru sumir kristnir að mála sig sem sérstaklega kærleikslausa með því að afsaka svona morðæði. Ísrael var Guðs útvalda þjóð...

GPS sem Guð hannaði

Í Science Daily er fjallað um prótein vél sem kölluð er cilium en flestar frumur í mannslíkamanum hafa svona vél. Þessi vél lítur út eins og loftnet og virkar eins og GPS tæki. Alveg eins og GPS hjálpar skipum að staðsetja sig og finna í hvaða átt þau...

Því miður, stundum hlutdrægur heilaþvottur

Fyrst vil ég taka fram að mér finnst Wikipedia vera alveg meiriháttar og hef gaman af því að lesa í henni. Því miður samt þá er eins og þegar kemur að umdeildum málefnum í samfélaginu þá getur hún verið mjög hlutdræg. Þegar umfjöllun um eitthvað efni er...

Ísrael er ekki lengur útvalin þjóð Guðs

Í Biblíunni þá lesum við um sögu Ísrael og Biblían af afskaplega hreinskilin varðandi þjóðina. Þjóðin var útvalin af Guði en marg oft þá brást þjóðin og leiddist út í alls konar illsku. Svo langt gékk þjóðin að Guð yfirgaf hana og hún var leidd í ánauð...

Spádómur um araba sem rættist á jólunum

Þótt að mér finnist leiðinlegt þetta jólasveina dæmi á jólunum þá átti þessi prestur ekkert með það að gera að vera að segja börnunum þetta. Leyfa foreldrum að ráða slíku. Mig langar aftur á móti að benda á spádóm sem rættist á jólunum. Líklegast ekki í...

Penn - guðleysingi sem kann að meta trúboð

Ég hafði gaman af þessu, Penn kom með nokkra mjög góða punkta og gott að vita að það eru til kristnir sem geta komið vel fram.

Galileó var ógn við páfadóm en ekki Biblíuna

Margir líta á deilur Galileó við Kaþólsku kirkjuna sem dæmi þar sem vísindi voru undir árás frá kristinni trú en það á engan grundvöll í mannkynssögunni. Málið er miklu flóknara en það og sem dæmi um það þá var Galileó mjög virtur áður en þessar deilur...

Sigurlag jólalagakeppni Rásar 2

Í dag heyrði ég hvaða lag vann jólalagakeppni Rásar 2 og mér til undrunnar þá var um mjög flott lag að ræða með mjög kristinn texta. Lagið sem vann heitir Betlehem og er eftir Gretu Salome Stefánsdóttur Hérna er hægt að sjá lista af þessum lögum og...

Myndir þú frekar skrá þig inn á Klepp en að trúa á Guð?

Mér finnst alveg ótrúlegt hve margir eru svo á móti tilvist Guðs að ef Guð myndi heimsækja þá, þá myndu þeir frekar skrá sig inn á geðdeild á Kleppi en að trúa að Guð væri til. Einn af þeim sem hugsa svona er hinn alræmdi mogga bloggari DoctorE en í...

Draumar sem drepa

Sjálfsvíg eru með því sorglegasta sem ég veit um og með því erfiðara að tala um og skilja. Þótt ég geti aðeins giskað á hvað það var sem olli því að Paula Goodspeed framdi sjálfsmorð þá held ég að það hafi verið draumar um veraldlega velgengni sem síðan...

Ég veit um 6000 ára gamalt úr

Það verður fróðlegt að fylgjast með þessum rannsóknum; hvort að um alvöru 400 ára gamalt úr er að ræða eða gabb eða kannski eitthvað enn annað. Fólk frá fornum samfélögum hefur afrekað margt ótrúlegt svo fyrir mig er þetta alls ekki óhugsandi. Menn hafa...

Okkar skapaða tungl

Eitt af því sem gerir okkur kleyft að lifa á þessari jörð er tilvist tunglsins. Fyrir utan að vera virkilega fallegt og þá sérstaklega undanfarna daga þá þjónar það ákveðnum tilgangi fyrir okkur íbúa jarðarinnar. Hérna eru nokkur dæmi um hvernig tunglið...

Börn fæðast með trú á Guð

Rannsóknir gerðar hjá Oxford fundu sannanir fyrir því að börn meðfædda tilhneigingu til að trúa á Guð eða yfirnáttúrulega veru. Ástæðan fyrir þessu er sú náttúrulega ályktun að allt í þessum heimi varð til vegna einhvers tilgangs og var þess vegna...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband