Er ein trú eða menning betri en önnur?

Já, að sjálfsögðu! Aðeins fáfróður, illa innrættur hálfviti gæti verið í vafa.

Hjartað manns hreinlega sekkur þegar maður les svona frétt. Greyið stúlkurnar. Fyrst að verða fyrir óheyrilegu ofbeldi og í staðinn fyrir að fá huggun og stuðning þá voru þær drepnar. Ég vil að hver sá sem vill koma hingað til landsins sverji eið þar sem t.d. kemur fram fordæming á svona hegðun og almennt samþykki á að fara eftir lögum landsins fremur en hvaða trú eða siðir viðkomandi fólk er vant.

Núna eru þessar stelpur í Guðs höndum og sú von að þær verði reistar upp til eilífs lífs. Ef ég hef þessa löngun með minn takmarkaða kærleika þá er ég ekki í neinum vafa um að Guð vill þetta meira en ég nokkur tímann. 


mbl.is Skar þrjár dætur sínar á háls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað og hvar er helvíti?

Stutt kynning á því hvað Biblían kennir um helvíti og kynning á vefi sem fjallar eingöngu um þetta mál, www.helltruth.com 


Er þróunarkenningin staðreynd?

AmericanBaldEagle_11-HuntingÞessi grein er svar við grein Arnar Pálssonar sem má skoða hér: Þróunarkenningin er staðreynd

Hérna er grein sem svarar þessari hugmynd með að þróunarkenningin sé staðreynd, sjá: They said it: “Evolution is a Fact!”

Arnar Pálsson
Rick Perry hefur skipað þrjá síðustu yfirmenn menntasviðs fylkisins, allt yfirlýsta sköpunarsinna. Þetta er áþekkt því að velja í embætti fjármálaráðherra mann sem tryði ekki á reikning

Þetta væri svipað eins og að skipa menn eins og Isaac Newton, Gregor Mendel, James Joule, George Washington Carver, Dr. John Mann, John Ambrose Fleming, James Clerk Maxwell, Joseph Lister, William Thompson, Lord Kelvin, Louis Pasteur, Richard Owen, Michael Faraday, Samuel F.B. Morse svo nokkur nöfn séu nefnd. Hérna sjáum við bara svakalega fordóma gagnvart þeim sem eru ósammála Arnari.  Ótal margir vísindamenn í dag annað hvort efast um þróunarkenninguna eða hafna henni. Eitt skemmtilegt þannig dæmi er að 60% af læknum efast um þróunarkenninguna, sjá: New Darwin Dissent List for the 60% of U.S. Doctors Skeptical of Darwinian Evolution

Arnar Pálsson
Sköpunarsinnar koma í nokkrum blæbrigðum, en sammerkt er að þeir afneita hinni vísindalegu aðferð, og sérstaklega útskýringum þróunarfræðinga á tilurð og eiginleikum mannsins.

Það voru sköpunarsinnar sem bjuggu til hina vísindalegu aðferð, sjá: Sir Francis Bacon   Því miður þá hafa guðleysingjar á síðustu öld reynt að gera guðleysi að hinni vísindalegu aðferð. Að það sé skylda vísindanna að útskýra allt án tilvísunar í Guð, eitthvað sem enginn af stofnendum nútímavísinda hefði verið sammála.  Þetta er bara að ákveða svarið fyrir fram sama hvað staðreyndirnar gefa til kynna. Ekkert vísindalegt við það.

Arnar Pálsson
Menntasvið Texas gerði að undirlagi sköpunarsinna kröfur um efnistök í kennslubókum í líffræði, um útvötnun á útskýringum á þróun og tilvísanir til guðlegrar sköpunar eða vithönnunar "til mótvægis". (sjá einnig: Bilið milli T-rex og Texas).

Frekar að það hefur verið barátta að losna við lygar úr skólabókum og ekki fela vandamálin sem kenningin glímir við og sömuleiðis leyfa opna umræðu um kenninguna.  En nei, staðreyndir og opin umræða þar sem fólk getur látið í ljós efasemdir eða sannfæringu er ekki eitthvað sem þróunarsinnum finnst heillandi. Þeir bara vilja harðan heilaþvott svo að allir trúi eins og þeir trúa.  Að kenna rök með og rök á móti er einmitt það sem hjálpar fólki að skilja viðfangsefnið en skilningur er líka eitthvað sem þróunarsinnum virðist líka illa við.

Arnar Pálsson
Það er semsagt allt í lagi að kenna börnunum

að jörðin sé kúla og pönnukaka,

að svínaflensa sé vegna veiru og afstöðu himintunglanna,

að bólusetningar veiti vernd og valdi einhverfu,

að 2 + 2 = 4 og 5

Það er í lagi að fræða um hvaða kenningar mismunandi hópar aðhyllast. Fræða hver eru rökin með, hver eru rökin á móti og já. Fólk hafi gáfur til að sjá hvort sé rétt. Taki sjálfstæða ákvörðun í staðinn fyrir heilaþvott.

Arnar Pálsson
Markmið skóla er að kenna staðreyndir ekki sköpunarsögur eða tröllasögur sem ákveðnir þrýstihópar grundvalla sína heimsmynd á.

Það væri yndislegt ef að skólarnir myndu aðeins kenna staðreyndir. Láta það vera að kenna sköpun eða þróun heldur bara hverjar staðreyndirnar séu.  Eins og að við höfum sama sem engin gögn um að stökkbreytingar geti búið til nýjar upplýsingar, eins og hvað við finnum í setlögunum sem passar við sköpun ekki þróun og svo mætti lengi telja.  Það væri hreinlega stórkostlegt ef að skólar myndu gera þetta.

Arnar Pálsson
Pharyngula:

Sorglegt að Arnar skuli vitna í einn ógeðfelldasta bloggara okkar tíma, flestum blöskrar hve ómálefnalegur hann er, sjá: NY Times slaps ID foes PZ Myers and other ScienceBlog authors

Myndin af erninum er bara til skrauts en líka til að minna á þá stórkostlegu hönnun og fegurð sem við sjáum í náttúrunni.


Ekkert nema göt og ekki einu sinni botn

Aldrei í sögu mannkyns hefur kenning verið jafn vinsæl með jafn lítið af gögnum til að styðja hana. Í ofan á lag er eins og það eru nornaveiðar á þá sem trúa ekki eins og hinir. Trúfrelsi til að trúa öllu mögulegu en að trúa ekki að þróunarkenningin sé...

Viðtal við Roger Morneau

Maður að nafni Roger Morneau sem hefur skrifað þó nokkrar bækur um reynslu sína af hinu yfirnáttúrulega. Mjög forvitnilegt viðtal og vona að fólk hafi gagn og gaman af.

Lifandi steingervingar finnast í Kína

Enn annað dæmi af lifandi steingervingum. Marglyttur fundust í Kína sem passa við steingervinga sem þróunarsinnar trúa að séu í kringum 200 miljón ára gamlir. Að finna svona lifandi steingervinga, dýr sem hafa ekkert breyst í setlögunum óneitanlega...

Fegurð eða hryllingur?

Þegar við skoðum heiminn í kringum okkur, hvort stendur upp úr? Fegurð eða hryllingur? Þegar ég bendi á stórkostlega hönnun í náttúrunni sem ástæðu til að trúa á hönnuð þá andmæla oft guðleysingjar og vilja fá útskýringu á því vonda. Ekkert að því en...

Ótrúleg hönnun kolkrabbans

Hérna er myndband sem fjallar stuttlega um ótrúlega hönnun kolkrabbans, sjá: http://www.evolutionnews.org/2011/08/this_octopus_is_colorblind049511.html Þetta er algjör snilld, ekki missa af þessu. Ég er forvitinn að vita hvort það reynir á trúarvöðva...

Hvað með illsku Guðs?

Það er ekki nema eðlilegt þegar maður les svona fréttir að sú spurning vakni hvort að þarna hafi menn hafi viljandi af illum ásetningi verið að reyna drepa saklaust fólk. En þó að þarna hafi verið mistök að ræða þá veltir maður því fyrir sér hvort að...

Ættfeður og spámenn - Hvers vegna var syndin leyfð?

Ættfeður og spámenn er bók eftir Ellen White, hérna má sjá meira um hana: Patriarchs and Prophets Þessi bók fer yfir fyrstu kaflana í Biblíunni og varpar ljósi á margt sem við eigum erfitt með að skilja í Gamla Testamentinu. Eftir að hafa lesið þessi bók...

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Ágúst 2011
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband