Óbeint spáð fyrir um Titanic

titanicÁrið 1898, fjórtán árum áður en Títanic fór í sína jómfrúarferð þá gaf út maður að nafni Morgan Robertson bókina "Futility of the Wreck of the Titan". Þetta var saga af ósökkvanlegu risa skipi eins og Titanic og fór í sína jómfrúarferð frá Bretlandi til New York í apríl mánuði með 2000 manns um borð. Skipið í sögunni reyndi að fara þessa ferð á met tíma og lenti á ísjaka og sökk alveg eins og Titanic. Ekki nóg með að nafnið á skipinu í bókinni hefði verið svipað eða "Titan", þá fórust flestir um borð vegna þess að það vantaði björgunarbáta.

Sagan af Titanic hefur ákveðnar hliðstæður við hjálpræðis áform Guðs fyrir mannkynið. Alveg eins og lúxus skipið Titanic sökk í kalda gröf, fullt af fólki sem var að njóta lífsins þá er þessi heimur hægt og bítandi að sökkva í hendur dauðans. Alveg eins og aðeins þeir sem voru um borð sem trúðu því að þeirra líf væri í hættu leituðu að björgunarbátum þá eru aðeins þeir í þessum heimi sem skilja að þeirra líf er í hættu að leita að björgunarbáti í þessu lífi. Stóri ísjakinn sem dregur þennan heim og alla í honum niður í ískalda gröf er Lögmál Guðs eða Boðorðin Tíu eða frekar okkar brot á þeim. Hérna eru sannanir fyrir því að við erum að sökkva: Jesús sagði að ef við bara horfum með losta til annars en maka okkar þá erum við að halda fram hjá í hjarta okkar og ef við höfum hata einhvern þá erum við morðingjar í hjarta okkar. Sá sem síðan brýtur eitthvað af Boðorðunum Tíu er orðin sekur hvort sem það eru lygar, þjófnaður eða öfund. Enginn sem er sekur getur öðlast eilíft líf. Ef við yfirgefum ekki þetta sökkvandi skip þá munum við farast á dómsdegi þegar allar okkar syndir, jafnvel þær sem við aðeins hugsuðum, munu koma fram sem sönnunargögn fyrir okkar sekt.

Sem betur fer er Guð kærleiksríkur og tilbúinn að gefa okkur náð. Í staðinn fyrir að yfirgefa þennan heim og leyfa honum að eyða sjálfum sér og öllum sem búa í honum þá ákvað Guð að senda Son Sinn til að borga fyrir gjald syndarinnar. Dauðinn og þjáningarnar sem ættu að lenda á þér og á mér lentu á Jesú Kristi og á þriðja degi þá reis Kristur upp frá dauðum og sigraði þannig dauðann fyrir mig og þig. Þannig geta allir þeir sem iðrast sett traust sitt á Jesú og það sem Hann gerði öðlast fyrirgefningu og eilíft líf. Andartakið sem við biðjum Guð um fyrirgefningu og setjum traust okkar og trú á Krist þá förum við af vegi sem liggur til glötunnar yfir á veg sem liggur til lífs. Enginn veit hvenær sinn tími kemur svo það er ekki eftir neinu að bíða. Það var sagt frá því að sumir björgunarbátarnir fóru hálftómir frá Titanic en það var vegna þess að sumir hreinlega neituðu að trúa því að hið ósökkvanlega skip væri að sökkva. Þeir fórust vegna þess að þeirra trú var afvegaleidd, vertu viss um að gera ekki hið sama! Lestu Matteusarguðspjall og reyndu að meta af fullri alvöru hvort að Jesú var ekki að segja satt því ekkert er mikilvægara en þitt eigið líf.

Markúsarguðspjall 8:36
Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en glata sálu sinni?


mbl.is Öld liðin frá smíði Titanic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig varð DNA kóðinn til?

central_dogma_v2DNA kóðinn er flókið tungumála kerfi þar sem stafirnir og orðin hafa meiningu sem er ekki tengd eiginleikum efnanna sem "stafirnir" eru búnir til úr.  Alveg eins og upplýsingarnar sem þú ert að lesa hérna er ekki vegna efnislegu eiginleika bleks eða pixlana á skjánum.

Hvaða annað tungumálakerfi hefur verið til sem varð til án vitrænnar hönnunar?  Hvernig varð svona kerfi af kóða til án þess að hafa verið skapaður?  Meira hérna: http://creation.com/genetic-code-intelligence

Segjum sem svo að þú fengir leiðbeiningar um hvernig á að búa til fluvél en leiðbeiningarnar væru á rússnesku, hve erfitt væri það fyrir þig að búa til flugvélina og heldur þú að það reyndi á þína vitsmuna?

Þetta er akkúrat það sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að lífverum. Við erum með upplýsingarnar um hvernig á að búa þær til en við skiljum ekki upplýsingarnar og höfum ekki tæknigetuna til að framkvæma það sem leiðbeiningarnar segja að þarf að gera. Ef við þurfum á öllum okkar vitsmunum til að skilja DNA kóðann þá er eina vísindalega niðurstaðan sú að það þurfti vitsmuni til að búa hann upprunalega til. Ekki einhver endanlegur vísindalegur sannleikur en einfaldlega það sem staðreyndirnar passa best við, miðað við núverandi þekkingu.


Hvíldardags boð fyrir kristna í Hebreabréfinu

SabbathMargir kristnir halda að eina boðorðin af boðorðunum tíu sem ekki var endurtekið í Nýja Testamentinu var hvíldardagsboðorðið  og þess vegna hafa kristnir ekki ástæðu til að halda það. Fyrir utan hina augljósu villu að láta sem svo að Kristur hafi hent öllu því sem Gamla Testamentið kenndi í ruslið sem passar engan veginn við það sem Hann kenndi þá er skýrt boð til kristinna í Nýja Testamentinu um að halda hvíldardaginn heilagann.

Til að skilja þau vers Hebreabréfsins í Nýja Testamentinu almennilega þá er gott að skoða versin í Gamla Testamentinu sem höfundur Hebreabréfsins er að vísa til.

Esekíel 20:12
Ég gaf þeim einnig hvíldardaga mína sem tákn um sáttmálann milli mín og þeirra svo að þeir skildu að ég, Drottinn, helga þá. 13En Ísraelsmenn risu gegn mér í eyðimörkinni. Þeir fóru ekki að lögum mínum og höfnuðu reglum mínum þótt hver sá sem hlýðir þeim lifi vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína stórum.  Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá þarna í eyðimörkinni og tortíma þeim...
16Þetta gerði ég af því að þeir höfðu hafnað reglum mínum og ekki fylgt lögum mínum og vanhelgað hvíldardaga mína því að hugur þeirra var bundinn skurðgoðum

Hérna lesum við um af hverju þjóðin sem var leidd út úr Egyptalandi dó í eyðimörkinni og ein af aðal ástæðunum var  að þjóðin vanhelgaði hvíldardaga Guðs.

Á öðrum stað lesum við um eina af ástæðunum fyrir því að Jerúsalem var eytt:

 Jeremía 17:21
Svo segir Drottinn: Gætið yðar, líf yðar liggur við. Berið enga byrði á hvíldardegi og flytjið ekkert inn um hlið Jerúsalem. 22Berið engar byrðar úr húsum yðar á hvíldardegi og vinnið ekkert verk. Haldið hvíldardaginn heilagan eins og ég bauð feðrum yðar.“
...
27En ef þér hlýðið ekki á boð mitt að halda hvíldardaginn heilagan með því að bera engar byrðar um hlið Jerúsalem á hvíldardegi þá kveiki ég í hliðum Jerúsalem og eldurinn mun gleypa hallir Jerúsalem og ekki verða slökktur

Aftur er það að vanhelga hvíldardaginn sem vekur upp reiði Guðs og dóm yfir þeim sem vanhelga það sem Guð gerði heilagt.

Þá komum við að Hebreabréfinu í Nýja Testamentinu.

Hebreabréfið 3:15
Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.“ - 16Hverjir voru þá þeir sem heyrt höfðu og gerðu þó uppreisn? Voru það ekki einmitt allir þeir sem Móse hafði leitt út af Egyptalandi? 17Og hverjum „var hann gramur í fjörutíu ár“? Var það ekki þeim sem syndgað höfðu og báru beinin á eyðimörkinni?
18Og hverjum „sór hann að eigi skyldu þeir ganga inn til hvíldar
hans,“ nema hinum óhlýðnu? 19Við sjáum að sakir vantrúar fengu þeir eigi gengið inn.

Hérna sjáum við tilvísunina í fólkið sem dó í eyðimörkinni og að það var vantrú og óhlýðni við að halda sjöunda daginn heilagan sem orsakaði að það gékk ekki inn í fyrirheitnalandið.

Hebreabréfið 4:1
Fyrirheitið um að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkurt ykkar verði til þess að dragast aftur úr
...
4Því að einhvers staðar er svo að orði kveðið um hinn sjöunda dag: „Og Guð hvíldist hinn sjöunda dag eftir öll verk sín.“ 5Og aftur á þessum stað: „Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.“ 6Enn stendur því til boða að nokkrir gangi inn til hvíldar Guðs. Þeir sem áður fengu fagnaðarerindið gengu ekki inn sakir óhlýðni.

Hérna talar höfundurinn um hinn sjöunda dag og að okkur stendur enn til boða að ganga inn til þessarar hvíldar Guðs.  Tökum eftir því að þetta fólk heyrði fagnaðarerindið en misstu af því vegna óhlýðni við hvíldardagsboðorðið.

Hebreabréfið 4:7
Því ákveður Guð aftur dag einn er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: „Í dag.“ Eins og fyrr hefur sagt verið: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.“

Þessi beiðni Guðs um eiga stund með þeim sem segjast vilja fylgja Honum mætir merkilega oft mikilli andstöðu. Þess vegna koma þessi orð, þegar þið heyrið þetta kall um að halda hvíldardaginn, ekki herða hjörtu ykkar.

Hebreabréfið 4:9
Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs. 10Því að sá sem gengur inn til hvíldar hans fær hvíld frá verkum sínum eins og Guð hvíldist eftir sín verk.

Gríska orðið þarna sem er þýtt sem "sabbatshvíld" er "sabbatismos" og  er bein tilvitnun í fjórða boðorðið um að halda hvíldardaginn.  Tökum eftir því að hérna er höfundurinn að tala til kristinna, áratugum eftir krossinn og hann segir að þeir eiga að halda hvíldardags boðorðið.

Hebreabréfið 4:11
Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar til þess að
enginn óhlýðnist eins og þeir og falli.

Eina leiðin til að hvílast ekki og að það sé óhlýðni er að brjóta hvíldardags boðorðið sem er eitt lengsta boðorðið af boðorðunum tíu sem Guð skrifaði á steintöflur sem settar voru í sáttmálsörkina sem var geymd í hinu allra helgasta.  Svo hérna er einlægt kall frá höfundi Hebreabréfsins að hinir kristnu vanhelgi ekki hvíldardaginn svo þeir falli ekki eins og þeir sem ráfuðu um í eyðimörkinni í 40 ár og dóu þar.

Hebreabréfið 4:12
Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.

Fyrir mig þá sé ég þetta birtast á mjög raunverulegan hátt þegar kemur að hvíldardagsboðorðinu. Menn eiga í engum vandræðum með hin níu og að kalla þau synd en þegar kemur að hvíldardsagsboðorðinu þá sér maður hjörtun bókstaflega herðast á andlitum þeirra sem maður segir frá þessu.  Öll hin boðorðin eru augljóslega rétt en hvíldardagsboðorðið er þannig að frá mannlegum viðmiðum þá getur það virkað órökrétt. Eins og hvaða máli  skiptir það, á hvaða degi maður heldur hvíldardag? Ástæðan fyrir því af hverju það skiptir máli er sú að hérna birtist í okkar hegðun hverjum við hlýðum, hver er okkar Guð. Hlýðum við mönnum eða hefðum eða hlýðum við Guði?

Ég bið að sem flestir mættu velja að hlýða boðorðum Guðs svo þeir mættu ekki falla í óhlýðni og glatast.


Pat Condel og Ísrael

Ég hef alltaf gaman af Pat Condel, jafnvel þegar hann gagnrýnir sköpunarsinna. Hérna fer hann á kostum um Ísrael.

1. Hvernig varð lífið til?

Á næstu dögum mun ég fara yfir nokkrar af þeim spurningum sem sérhver vitsmunalega sáttur guðleysingi ætti að vilja hafa svör við. Þetta mun vera lauslega þýtt frá creation.com, af þessu skjali hérna:

C14 mælingar sem passa ekki við miljónir ára

Langar að benda á grein þar sem fjallað er um C14 mælingar á sýnum sem eiga að vera margar miljón ára gömul en C14 mælingarnar segja 20.000 til 30.000 ára aldur, sjá: Carbon Dating of '70 Million Year Old' Mosasaur Soft Tissues Yields Surprising Results...

Geta vísindin ályktað um yfirnáttúru?

Hvað þarf til að við getum ályktað um yfirnáttúru? Gæti guðleysingi ályktað að yfirnáttúra væri til ef að hann hefði verið vitni þegar Ísraels þjóðin gékk í gegnum Rauðahafið? Það er áhugavert að margir svo kallaðir fræðimenn vilja meina að sumar bækur...

Heimsendir á morgun?

Maður nokkur að nafni Harold Camping heldur því fram að heimsendir verður á morgun. Útreikningar hans eru vægast sagt stórfurðulegir og fara á móti einföldu opinberun Krists varðandi þetta efni: Matteusarguðspjall 24:36 En þann dag og stund veit enginn,...

The Final Theory

Fyrir nokkrum árum las ég bókina "The Final Theory". Höfundur bókarinnar er með vef um þetta, sjá: http://thefinaltheory.com/ Ég sannfærðist engan veginn um að höfundurinn, Mark McCutcheo, væri búinn að svara stóru spurningunum í eðlisfræði en ég hafði...

Er flagellum mótorinn ekki óeinfaldanlegur?

Þetta er svar við greininni: Evolution myths: The bacterial flagellum is irreducibly complex sem mér var bent á fyrir nokkru. Evolution myths: The bacterial flagellum is irreducibly complex The best studied flagellum, of the E. coli bacterium, contains...

Larry Moran og drasl DNA

Í umræðu um drasl DNA var mér bent á blog Larry Moran þar sem hann gagnrýnir nýju bók Jonathan Wells, "The Myth of Junk DNA". Í þeirri bók fjallar Jonathan Wells um hugmyndina að megnið af okkar DNA er rusl. Hann fer yfir sögu hugmyndarinnar og núverandi...

The God Within documentary - exposing the false philosophy of modern science

Langar að benda á áhugavert myndband: http://naturalnews.tv/v.asp?v=E3B38227225F9FC62BAEA9CC81BE1D12

Getur þróunarkenningin yfirstígið 'Stökkbreytinga verndunar þversögnina'?

Ný rannsókn sem birtist í tímaritinu " The Open Evolution Journal "* lýsti alvarlega vandamáli við þeirri þróunartrú að frum agnir urðu að frum mönnum. Þeir kölluðu vandamálið " The mutation protection paradox ". Rannsóknirnar leiddu í ljós að bæði í...

Darwinismi órökrétt trú fyrir 50 árum og ekkert hefur breyst

Hérna er skemmtilegur bútur úr bókinni Did Darwin Get It Right?: Catholics and the Theory of Evolution eftir George Sim Johnston. George Sim Johnston, Did Darwin Get It Right?: Catholics and the Theory of Evolution (OSV, 1998), p. 22. Around 1959, the...

Hvernig vitum við að Osama er látinn?

Ég tel að fólk almennt hafi lítið hugsað út í hvernig við vitum eitthvað fyrir víst. Hvernig t.d. vitum við hvort að Osama Bin Laden er dáinn? Allt í lagi, við höfum vitnisburð en þeir geta verið að ljúga. Það geta allir logið, það er alltaf möguleiki að...

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2011
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 803357

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband