Eru stökkbreytingar tilviljanakenndar?

Stutta svarið er já en í þeim skilningi að einhverjar eru tilviljanakenndar en með aukinni þekkingu á DNA og stökkbreytingum gefur okkur ástæðu til að ætla að alls ekki allar stökkbreytingar eru tilviljanakenndar.  Hérna er myndband sem fer yfir þetta efni.

Meira hérna: Are Mutations Random?


Frá hönnun til Aðvent kirkjunnar

Stundum þegar ég bendi á hönnun í náttúrunni þá svara sumir með því að segja að þetta sýni ekki fram á að Guð Biblíunnar sé hönnuðurinn. Þetta er auðvitað alveg hárrétt, hönnunar rökin sýna aðeins fram á tilvist hönnuðar en ekki hver hann er; þeir sem trúa að geimverur hafi plantað lífinu hérna á jörðinni geta líka notað þessi rök.

Það sem mig langar að gera hér er að útskýra hvernig ég fer frá hönnunar rökunum til Aðvent kirkjunnar.

1. Hönnun er augljós.

Þar sem alheimurinn hafði byrjun verður sá sem orsakaði tilvist alheimsins að vera til handan alheimsins. Getur ekki verið inn í alheiminum eða af alheiminum, verður sem sagt að vera eilífur og ekki úr efni, að minnsta kosti ekki efni alheimsins. 

Lögmálin sem þessi alheimur hlýðir eru einnig fínstillt sem gefur til kynna að þau voru hönnuð fyrir lífið sem gerir það rökrétt að löggjafinn hafi verið gáfaður að geta gert þetta og einnig viljað orsaka fínstillt lögmál.

Lífið sjálft er síðan ógurlega flókin vél sem les forritunarkóða um hvernig á að búa sig til og athafna; lífið er verkfræðilegt undur sem við mennirnir munum líklegast aldrei ná að herma eftir. Betra dæmi um vitræna hönnun er ekki hægt að biðja um.

Síðan er náttúran full af meiriháttar dæmum, hérna eru nokkur þannig dæmi: Þeir sem eru án afsökunnar og Incredible creatures that defy evolution

2. Guð Biblíunnar.

Biblían lýsir Guði þannig að Hann er fyrir utan tíma, er eilífur og er andi eða ekki búinn til úr efni. Þetta er allt í samræmi við það sem kom hérna á undan. Biblían lýsir Guði einnig sem alvitrum og það sannarlega passar við snilldina sem við sjáum í náttúrunni.  Biblían segir einnig að heimurinn er undir bölvun syndar sem passar við hið vonda sem við sjáum í heiminum.  Þeir guðir sem rómverjar, grikkir og fleiri trúðu á voru ekki eins og Guð Biblíunnar því þeir tilheyrðu þessum heimi. Þeir voru ekki almáttugir og eilífir, oft voru þeir mjög mannlegir og mistækir enda skáldsögur síns tíma sem fæstir tóku alvarlega. 

Fyrst að hægt er að sjá að þessi heimur var hannaður þá er rökrétt að sá sem tók alla þessa orku og vitsmuni að búa þetta allt til myndi líka vilja hafa einhver afskipti af þessu sköpunarverki sínu. Af þeim opinberunum sem mannkynið hefur um Guð þá ber Biblían af að öllu leiti enda lang flestar tilraunir manna til að setja sig upp sem einhvern opinberanda Guðs hafa verið byggðar á Biblíunni, menn eins og Múhammeð og allir á þessum lista hérna: List of people claimed to be Jesus

3. Aðvent kirkjan

Þar sem að fjöldi kirkna sem flokka sig sem kristnar þá virkar það líklega mjög strembið fyrir marga að ætla að velja "réttu" kirkjuna.  Ég tel að vandamálið er í rauninni miklu minna en margir telja. Ég tel að ef menn fara eftir þessum fáu Biblíulegum leiðbeiningum þá ættu þeir að vera búnir að finna þá kirkju sem fer einna best eftir Biblíunni.

  1. Biblían er orð Guðs sem trúarkenningarnar eiga að lúta.
  2. Jesús er Guð og Hann er skapari himins og jarðar.
  3. Við eigum að fylgja boðorðunum tíu og ekki gleyma fjórða boðorðinu sem er að halda hvíldardaginn, sjöundadaginn eða laugardaginn heilagann.
  4. Guð er kærleiksríkur og myndi aldrei kvelja fólk að eilífu, hvorki í eldi eða á nokkurn annan hátt.
Þetta er ekki flókin eða löng leið og ekki skemmir fyrir að hún er einstaklega rökrétt. Tel að það eru aðalega langanir manna, hefðir og stollt sem lætur þetta líta út fyrir að vera flókið.

mbl.is Meirihluti trúir á framhaldslíf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú hefur ekkert elst!

SpiderFossilFyrir þann sem trúir á Biblíulega sköpun þá kemur svona fundur ekki á óvart. Kóngulær hafa alltaf verið kóngulær eins langt og við getum séð. Góðar kenningar spá fyrir um hvað mun finnast þegar farið er út og heimurinn rannsakaður. Þeir sem aftur á móti aðhyllast slæmar eða rangar kenningar, þeir eru alltaf hissa á því sem þeir finna í sínum rannsóknum. Kenning sem gengur út á að dýrin smá saman þróast með tilviljanakenndum breytingum á DNA getur ekki búist við því að í setlögunum finnist forn dýr sem eru alveg eins og dýrin eru í dag. Þessi kónguló er ekki eina dæmið, þetta er hreinlega það sem einkennir steingervingana.

Meira hérna: Living Fossils - Portraits of the Fossilized Past


mbl.is 165 milljóna ára gömul kónguló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðvent kirkjan vex hraðast af kirkjum í Bandaríkjunum

Vinur minn benti mér á áhugaverða frétt sem segir að kirkja Sjöunda Dags Aðventista er sú kirkja sem vex hraðast í Bandaríkjunum, sjá: Adventists' back-to-basics faith is fastest growing U.S. church Í greininni er fjallað um það sem þeir telja sé...

Gjald kærleikans

Ímyndaðu þér að vera viðstaddur brúðkaup og þegar brúðarvalsinn er spilaður kemur brúðurin inn snöktandi og brúðguminn er fyrir aftan hana og hann heldur á byssu. Síðan þegar presturinn spyr hvort hún vilji giftast brúðgumanum þá beinir hann byssunni að...

Badventist

Ég held að maður þarf ekki að vera aðventisti til að sjá spaugilegu hliðina á þessu.

Undarleg bókstafstrú

Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hve alvarlega menn taka þessar tölur sem skeikulir menn gefa einhverjum beinum sem þeir finna. Það væri mikil framfær fyrir vísindalega umræðu að halda sig við staðreyndirnar og forðast að tala um óáreiðanlegar...

Að þekkja fals Krista

Það hefur komið upp í umræðunni sú spurning af hverju ég hafni öllum þeim sem segjast vera Jesú og einn benti á lista yfir alla þá sem hafa sagst vera Jesú, sjá: List of people claimed to be Jesus Þarna eru menn eins og Bahá'u'lláh sem stofnaði Baháí...

Múslimar að slátra kristnum

Af hverju var því sleppt í fréttinni að þetta voru múslimar að slátra kristnum í virkilega óhugnanlegum fjöldamorðum? Meira hérna:

Auðmenn vs almúginn

"Hér er ég, traðkaðu á mér" er það sem mér finnst íslenska þjóðin vera að segja ef hún segir "Já" við nýja Icesave samningnum. Sömuleiðis finnst mér já vera skýr skilaboð til auðmanna og bankamanna víðsvegar að þeir hafa enga ábyrgð og allt svona svínarí...

Fávitar eða snillingar?

Endalaust tal um dauða, hefnd og morð gera það að verkum að mig langar að flokka þessa gaura sem algjöra fávita. Þrátt fyrir það þá er ég líklegast einn af þeirra aðal aðdáendum alveg frá því ég var fimmtán sextán ára. Þegar kemur að tónlist þá eru þeir...

Illskan og þróunarkenningin

Þegar við skoðum náttúruna þá sjáum við margt sem kemur okkur fyrir sjónir sem illska. Við samt ásökum ekki ljónið um illsku þegar það veiðir antilópu eða þegar kónguló veiðir flugu. Ef að þú værir á gangi og þú hrasar um stein þá reiðist maður ekki...

Er þeirra siðferði verra en okkar?

Hérna fjallar John Lennox, stærðfræðingur frá Harvard um siðferði og sérstaklega hvort að guðleysingjar eða þróunarsinnar hafi grundvöll fyrir siðferði. Atheism and morality from CPX on Vimeo .

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2011
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 803358

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband