Þjófurinn og Kristur

Ímyndið ykkur þjóf sem er staðinn að verki, handtekinn og sektaður um heilmikla fjárhæð og ef hann getur ekki borgað hana þá þarf hann að sitja inni í dágóðan tíma.  Faðir þjófsins veit að hann á þetta skilið en vill samt hjálpa og ákveður að borga sektina.  Núna má segja að þjófurinn er undir náð en ekki lögmáli eða refsingu lögmálsins, hann er frjáls.  En er hann frjáls til að stela aftur?  Sumir líklegast reka staur augu þegar þeir lesa þessa spurning, "frjáls til að stela aftur?", hvers konar rugl spurning er það.  Hvernig gæti dottið í hug önnur eins vitleysa? 

Já, það er góð spurning, hverjum datt í hug þessi vitleysa?  Vill svo til að nokkvurn veginn hinn kristni heimur eins og hann leggur sig datt í hug þessi vitleysa.  Ótrúlega margir kristnir vilja meina að þegar Biblían talar um að við erum núna undir náð en ekki lögmáli þýðir annað hvort að við megum brjóta lögmálið eða lögmálið sé ekki lengur í gildi.  Eins og að þegar faðirinn borgaði sektina fyrir þjófótta son sinn að þá voru lögin um að það væri glæpur að stela uppfyllt og þar af leiðandi ekki lengur í gildi!

Flestir kristnir eru líklegast ekki sáttir við þetta og vilja ekki kannast við þessa afstöðu en hún kemur mjög flótlega upp þegar kemur að boðorðinu um hvíldardaginn.  Jesús sagði þetta:

Matteusarguðspjall 12:50
Hver sem gjörir vilja föður míns, sem er á himnum, sá er bróðir minn, systir og móðir.

Vilji föðurins er að finna í lögmálinu sem Hann gaf sínu fólki og alveg grunn kjarninn í því er boðorðin tíu og þar á meðal hvíldardagsboðorðið.

Hérna er áhugavert myndband um óheiðarleika og þótt þetta er ekki kristið myndband þá kemur það inn á mjög kristna hugmyndafræði og hvernig best er að berjast gegn þessari þróun sem fréttin fjallar um.


mbl.is Greinir á um þróunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband