17.2.2013 | 11:16
Trú sem ekki má gagnrýna er ómerkileg og án efa röng
Það er alveg merkilegt að einhver sem fæðist ekki inn í þetta Íslamska samfélagi skuli íhuga Íslam sem mögulega sanna trú. Ef einhver aðhyllist trúfrelsi þá ætti hinn sami að fordæma Íslam. Ef einhver aðhyllist tjáningarfrelsi þá ætti hinn sami að fordæma Íslam og ekki vilja sjá þessa trú á Íslandi. Hérna náttúrulega lendum við í smá mótsögn, að banna trú í nafni trúfrelsis en svona er heimurinn stundum. Ef að einhver trú boðar eitthvað sem fer á móti þeim samfélagslögum sem samfélagið vill halda í, eins og trúfrelsi og tjáningarfrelsi þá er bara eðlilegt að það sem er á móti þessu er ekki velkomið. Síðan viðbjóðsleg hræsni að þetta lið skuli koma til vestrænna ríkja að boða sína trú en banna öllum að boða aðra trú í þeirra löndum.
Í Bandaríkjunum er mikið búið að rökræða lög sem kallast "Acadenic Freedom Bill", sjá: "State of the Union: An Academic Freedom Bill Roundup". Þessi lög gæfu kennurum og nemendum rétt til að tjá sig um umdeild efni en þróunarsinnar berjast með kjafti og klóm gegn þessum lögum. Skondið, maður hefði haldið að alvöru vísindakenningar og vísindamenn hefðu ekkert á móti gagnrýni en það er náttúrulega málið, þetta eru ekki alvöru vísindi heldur trú guðleysingja sem á að þessu leiti eitthvað sameiginlegt með Íslam. Gaman að vita hvort að Darwin myndi hafa staðið við sín orð sem þú sérð hérna á myndinni til hægri.
Handteknir fyrir að boða kristni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Menntun og skóli, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:20 | Facebook
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætla nú ekki að vera með skít eða leiðindi en mér finnst nú bara rétt að benda á nokkuð:
Get nú ekki sagt að ég sé trúaður maður, en hins vegar er ég ekki að velta því mikið mér fyrir því hvað næsti maður trúir á... það bara kemur mér ekki við, enda hefur fólk fullan rétt á að trúa því sem það vill. Hans trú á ekkert að hafa áhrif á mína trú og mín ekki á hans.
En það sem mér finnst hins vegar skondið er að þú talar um að trúleysingjar, sem trúa t.d. á þróunarkenninguna, taki illa gagnrýni á þá "trú". Hef nú ekki beint séð að trúaðir kristnir menn taki gagnrýni á biblíuna létt! Sama hvað menn benda á, þá er orð Guðs hið sanna og ekkert annað getur staðist.
Til að mynda þá hefur maður heyrt frá trúuðu fólki að risaeðlubein sem finnast eru í raun bara leið Guðs til að reyna á trú fólks, því jú eftir allt saman þá voru Adam og Eva í byrjuninni og aldrei minnst á risaeðlur í biblíunni... Það má lengi telja upp sögur sem eru mjög skrýtnar í biblíunni og geta varla staðist, en það er alveg sama, þetta er 100% rétt, enda orð Guðs. Þannig að mér finnst það hræsni að láta það út úr sér, að tala um að trúfrelsi sé af hinu góða, og troða svo á þeim sem trúa ekki á Jesú og hinn mikla himnaföður.
ViceRoy, 17.2.2013 kl. 11:36
Það er aldrei minnst á ketti heldur í Biblíunni, hvað með það? Við síðan búum í samfélagi sem mótaðist af kristni og það má gagnrýni kristni, þótt kannski að einhverjir eru ekki hrifnir af því en ekki þannig að það sé bannað. Hvaða bull er þetta með að troða á þeim sem trúa ekki á Jesú? Ég er hlynntur trúfrelsi og tjáningarfrelsi svo í mínum augum þá hef ég rétt til að tjá mig og segja öðrum frá minni trú og ver rétt annara til að gera hið sama.
Mofi, 17.2.2013 kl. 11:53
Mofi, í Gamla testamentinu er að finna lög sem ganga miklu lengra í því að brjóta á trúfrelsi fólks heldur en þarna í Líbíu. Brutu þau lög ekki gegn trúfrelsi þess fólks? Ef þú vilt vera samkvæmur sjálfum þér, þá finnst mér að þú ættir að fordæma þau lög.
Hjalti Rúnar Ómarsson, 17.2.2013 kl. 17:50
Það var ekki trúfrelsi í Ísrael, ég viðurkenni það alveg.
Mofi, 17.2.2013 kl. 21:33
Og finnst þér það allt í lagi? Því að mér finnst þú vera að hneykslast á þessum atburðum í Líbíu, það hljómar nánast eins og þú teljir trúfrelsi vera mannréttindi.
Hjalti Rúnar Ómarsson, 18.2.2013 kl. 14:14
Ég sé Ísrael miklu frekar sem trúfélag en samfélag og þeir sem aðhylltust ekki trúna áttu að yfirgefa trúfélagið. Í okkar samfélagi þá höfum við komið okkur saman um að fólk hafi rétt til að tilheyra samfélaginu og trúa því sem það vill. Ég kann að meta það. Ég er síðan í færslunni að gagnrýna að það má ekki gagnrýna þessa trú og í staðinn fyrir að taka vel á móti gagnrýni og svara henni á málefnalegan hátt þá á að svara henni með valdi og ég er að gagnrýna það.
Mofi, 18.2.2013 kl. 15:18
Mofi, heldurðu að gagnrýni á trú hafi verið vel tekið í þessu "trúfélagi" Ísrael?
Hjalti Rúnar Ómarsson, 18.2.2013 kl. 21:42
Ekkert í lögunum sem ég veit um sem bannar gagnrýni, sérstaklega ekki frá fólki sem tilheyrði ekki Ísrael.
Mofi, 19.2.2013 kl. 08:06
Mofi, ég er nokkuð viss um að það er ekker í lögum Sádi-Arabíu sem bannar beinlínis gagnrýni, en heldurðu að gagnrýni á múhameðstrú sé vel tekið þar?
Í Gamla testamentinu eru lög á þá leið að það á að drepa þá sem boða aðra trú eða þá sem stunda aðra trú. Ef Líbía hefði Biblíuna sem grunninn að löggjöf sinni, þá ætti að drepa þessa trúboða.
Hjalti Rúnar Ómarsson, 19.2.2013 kl. 13:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.