13.12.2012 | 12:51
Segir Biblían ekki að heimsendir sé í nánd?
Miðað við að Biblían talar oft um heimsenda og að Jesús kemur skjótt aftur þá eru þetta frekar undarleg skilaboð frá Vatíkaninu. Ef skilaboðin eru að spádómur Majana mun líklegast ekki rætast þá tek ég undir það en samkvæmt Biblíunni er heimsendir svo sannarlega í nánd. Held síðan að Majarnir voru í Suður Ameríku en ekki Suður Afríku eins og mbl segir frá.
Miðað við hvað Biblían segir um tíma endalokanna þá er ekki mikið eftir, sjá: Hvað segir Biblían um tíma endalokanna?
En þetta orð "heimsendir" hljómar voðalega neikvætt. Myndin sem Biblían dregur upp er að þessi heimur er að tortýma sjálfum sér og þegar heimurinn mun hreinlega lýsa yfir stríði yfir fylgjendur Guðs þá mun Guð grípa inn í og bjarga sínu fólki. Þá mun þessi heimur ekki beint enda heldur verða endurskapaður og þá munu þessi orð Biblíunnar verða að veruleika:
Opinberunarbókin 21
1 Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til.
2 Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum.
3 Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: "Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra.
4 Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið."
5 Og sá, sem í hásætinu sat, sagði: "Sjá, ég gjöri alla hluti nýja," og hann segir: "Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu."
Þetta eru ein af mínum uppáhalds versum í Biblíunni en nærri því alltaf þegar Biblían er með falleg loforð þá koma líka vers sem fjalla um hina hliðina.
Opinberunarbókin 21
8 En fyrir hugdeiga og vantrúaða og viðurstyggilega og manndrápara og frillulífismenn og töframenn, skurðgoðadýrkendur og alla lygara er staður búinn í díkinu, sem logar af eldi og brennisteini. Það er hinn annar dauði."
Páfagarður: Heimsendir ekki í nánd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Heimspeki, Trúmál | Facebook
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 803195
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mofi, þegar þú talar um að heimsendir sé "í nánd", ertu þá að tala um að það séu ~2000 ár í heimsendi? Þeas að hann verði í kringum árið 4000?
Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.12.2012 kl. 19:15
Ég myndi gíska innan við 50 ár en það svo sem veit það enginn. Tvö þúsund ár virka kannski lengi en það er allt afstætt enda mikið til í afstæðiskennigunni.
Mofi, 13.12.2012 kl. 19:34
Og þegar Nýja testamentið segir að heimsendir sé "í nánd" og að síðustu tímar séu þegar upp runnir þá, þá breytist "í nánd" allt í einu í ~2050 ár ;)
Hjalti Rúnar Ómarsson, 18.12.2012 kl. 19:26
Trúir þú ekki á "theory of relativity" :)
Mofi, 18.12.2012 kl. 22:59
Mofi, afstæðiskenningin bjargar þér ekki. Hérna er skemmtilegt vers handa þér: "Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það er hin síðasta stund." (1Jóh 2.18) "Síðasta stund" er kannski líka bara 2000 ár. ;)
Hjalti Rúnar Ómarsson, 5.1.2013 kl. 21:49
Afsakaðu hve lengi ég var að svara. Er búinn að vera að ferðast aðeins um Evrópu, kíkti t.d. á Örkina hans Nóa í Hollandi, mjög gaman.
Já, höfundar NT töluðu mjög mikið á þann hátt að það væri stuttur tími, engin spurning. En það sem er stuttur tími í augum eins getur verið langur í augum einhvers annars. Við sjáum t.d. Páll fjalla um þetta hérna:
Þótt að Páll talar eins og hinir að það er ekki langur tími þá samt fjallar hann um að sá tími mun ekki koma fyrr en að ákveðnir atburðir eiga sér stað, að maður lögleysis mun koma fram en eitthvað á þeim tíma stóð í vegi fyrir að það myndi gerast. Þannig að Postularnir, að minnsta kosti Páll gerði sér grein fyrir að ákveðin atburðarrás myndi eiga sér stað hérna á jörðinni áður en þessi tími kæmi. Ég heyrði einu sinni í fyrirlestri að einn af kirkju feðrunum hefði sagt að Páll var að tala um Rómarveldi, að það þyrfti að falla áður en þessi maður lögleysis kæmi fram en ég hef ekki fundið neinar heimildir sem styðja það; skal leita betur seinna.
Síðasta stund fyrir viðkomandi sem las bréf Jóhannesar gat verið daginn sem hann las þetta svo...
Mofi, 10.1.2013 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.