9.1.2012 | 10:07
Nýji sáttmálinn og kvöldmáltíðin
Fyrir nokkru gerði ég grein sem ég kallaði Nýja Testamentið tilheyrir ekki nýja sáttmálanum. Ég sá ekki betur en að fyrst að Jesú innsiglaði nýja sáttmálann á krossinum þegar NT hafði ekki verið skrifað að þá gæti NT ekki verið hluti af nýja sáttmálanum.
Síðan síðasta hvíldardag þá var kvöldmáltíð í kirkjunni minni og fótaþvottur. Þegar ég síðan sat þarna og tók þátt í athöfninni, þegar einn af vinum þvoði fæturnar á mér sem er hluti af fótaþvotta athöfninni að þá fattaði ég að þessi athöfn er hvergi í Gamla Testamentinu. Jesú síðan segir þegar kemur að borða brauðið og vínið að þetta er nýji sáttmálinn, að í staðinn fyrir fórnir þá kemur kvöldmáltíðin í staðinn og það er nýji sáttmálinn. Það var dálið upplifun að vera að gera eitthvað sem sýndi mér svart á hvítu að ég hafði haft rangt fyrir mér og þessi rök ganga ekki upp.
Minn nýji skilningur er núna sá að Jesú kenndi lærisveinunum hver nýji sáttmálinn væri og Hann innsiglaði það á krossinum og síðan áttu lærisveinarnir að gera eins og Jesú sagði þeim, að kenna þeim allt sem Hann hafði kennt þeim.
Þá vaknar upp sú spurning hvort að það þýðir að mín niðurstaða að það sem GT kenndi eins og t.d. hvíldardagurinn og hátíðirnar sé enn gild og ég tel svo vera. Það eru enn nóg af rökum fyrir því og mjög veik á móti að mínu mati þó ég er enn að rannsaka þetta.
Guð sjálfur sagði að þetta væru Hans lög, Jesú hélt þessi lög og sagði okkur að halda lögin eins og Hann hélt lögin og Jesú sannarlega hélt hvíldardaginn og hátíðirnar. Við höfum síðan hvergi skýra skipun um að þetta hafi breyst svo ég sé ekki betur en þetta standi.
Fyrir þá sem vilja skýr svör og engan vafa þá er líklegast pirrandi að lesa bloggið mitt þar sem að ég er enn í því ferli að rannsaka og skilja betur en fyrir þá sem vilja rannsaka og skilja þá vona ég að þetta hafi verið fróðlegt og skemmtilegt.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkur: Trúmál | Facebook
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 803195
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að þessu og þessum pælingum. Eitthvað sem ég hef ekki skoðað mikið. Skemmtilegt að læra eitthvað nýtt, og svo held ég að það sé góður eiginleiki að vera tilbúinn að breyta um skoðun ef rök eru fyrir því.
kv. Kalli
Karl Jóhann Guðnason, 9.1.2012 kl. 16:10
Kalli, það er örugglega erfitt fyrir okkur öll að skipta um skoðun og ég engin undantekning. Ég samt reyni að nálgast þessa hluti með því hugarfari að reyna að vera opinn og reyna að vera tilbúinn að viðurkenna að ég hafi rangt fyrir mér. Kannski af því að það er það sem ég vil af mörgum þeim sem ég tala við svo ef ég vill að aðrir séu til í að þetta þá verð ég að vera til í þetta líka. Höldum áfram að stúdera þetta, þar sem synd er lögmálsbrot þá skiptir máli að við leitumst eftir því að vita hvað er synd og hvað ekki og rannsókn á lögmálinu er lykil atriði í þeim efnum.
Kv,
Halldór
Mofi, 9.1.2012 kl. 16:28
Já, stoltið í manni getur verið hindrun fyrir því að skipta um skoðun. Svo er líka held ég miklu erfiðara fyrir eldra fólk að skipta um skoðun en við sem eru yngri. Datt í hug vers í orðskviðunum, man ekki hvar það er núna, en segir að ef maður lærir eitthvað þegar maður er ungur þá heldur maður því allt lífið. Það er eins og stefnan í lífinu er sett þá og erfitt að breyta henni eða það kostar mikið erfiði svo auðveldast fyrir fólk að halda þeirri stefnu á eldri árum einnig.
Það er svo margt hægt að læra svo ég held að ef maður segir að maður veit allt um eitthvað efni þá er það vísbending að maður hafi mjög líklega rangt fyrir sér. Og ef maður segir að maður viti allt þá er varla ástæða til að læra meira og leita. En maður sér vonandi alltaf meira af réttu heildarmyndinni með því að nota rök og reynslu.
Karl Jóhann Guðnason, 9.1.2012 kl. 17:13
Guð sjálfur svaraði þér þarna Mófi, er hann ekki yndislegur!
Linda, 9.1.2012 kl. 19:26
Ég bara tárast.
Linda, 9.1.2012 kl. 19:27
Karl Jóhann, já, góður punktur með þetta úr Orðskviðunum. Við getum líklegast bara vonað að við erum á réttri leið og ef að maður ásetur sér að rétta leiðin er það sem skiptir mestu máli en ekki stollt eða pólitík þá hljótum við að geta verið vongóðir.
Mofi, 9.1.2012 kl. 20:32
Linda, ég fór bara að brosa þarna í miðri athöfninni þegar ég kveikti á perunni; það var eitthvað svo kómískt við þetta :) Kannski já var Guð sjálfur að svara.
Mofi, 9.1.2012 kl. 20:33
Sæll og gleðilegt "nýtt ár
" Hefur þú skoðað Luk 16.16-17.16Lögmálið og spámennirnir ná fram til Jóhannesar. Þaðan í frá er flutt fagnaðarerindi Guðs ríkis, og hver maður vill ryðjast þar inn.
17En það er auðveldara, að himinn og jörð líði undir lok, en einn stafkrókur lögmálsins falli úr gildi.
Hér gæti virst vera þversögn, en það er það ekki. Náðartímabilið byrjar með fagnaðar erindinu um Guðs ríkið. Lögmálið er eins og breytist ekki, og er ennþá sá grundvöllur sem við höfum fyrir rétt og rangt.
Hins vegar var það lagt til hliðar, þegar Kristur dó og fortjaldið rifnaði og vegurinn inn í hið heilaga opnaðist.
Ég man ekki hvaða ár við skiptum úr vinstri umferð í hægri , en ég man eftir deginum. Það má segja að lögin fyrir vinstri umferð hafi verið lögð til hliðar og umferðarlögin breyttust. Samt eru enn þessi vinstri lög í Bretlandi.
Galatbréfið segir:4En þegar fylling tímans kom, sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli,
5til þess að hann keypti lausa þá, sem voru undir lögmáli, og vér fengjum barnaréttinn.
Jesús Kristur þjónaði undir lögmáli, þegar hann læknaði líkþráa manninn, þá sagði hann honum að fara og sýna sig prestunum og færa þá fórn sem Móse bauð. Matt.8.4
Í Postulasögunni 3 kafla, lesum við að Pétur segir við lamaðan mann,: ...það sem ég hef gef ég þér: "Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk."
Hér er ekki lengur talað um að sýna sig prestunum, nýtt tímabil var hafið.
Það sem ég vildi segja í framhaldi, að ef þú hefðir spurt Jesú um lögin fyrir vinstri umferð, áður en skipt var, þá hefði hann sagt þér að halda þau og að þau breyttust ekki. Fyrir mig þá skýrir það bæði Lúk 16.16 , Matt 5.17 og Matt 23.3
Kristinn Ásgrímsson, 11.1.2012 kl. 21:25
Ég tel Gamla Testamenntið vera mikilvægari rit og gefur meira Guðlega inspiration.
Nýja Testamentið hefur aldrei náð flugi og má hvíla.
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2012 kl. 04:14
Þá ætti einhver sem telur sig vera kristinn að vera jákvæður gagnvart því þegar einhver bendir á hvað lögmálið segir ekki satt?
Hvað þýðir þetta fyrir þig, "lagt til hliðar"?
Skoðum aðeins hvað lögmálið segir til að átta okkur á því hvað var lagt til hliðar ( geri þetta á ensku til að spara mér sporin ):
be kind to strangers, widows, and fatherless children.
Thou shalt not follow a multitude to do evil; neither shalt thou speak in a cause to decline after many to wrest judgment:
Thou shalt not wrest the judgment of thy poor in his cause.
Thou shalt not go up and down as a talebearer among thy people: neither shalt thou stand against the blood of thy neighbour; I am the LORD.
Thou shalt not hate thy brother in thine heart: thou shalt in any wise rebuke thy neighbour, and not suffer sin upon him.
18 Thou shalt not avenge, nor bear any grudge against the children of thy people, but thou shalt love thy neighbour as thyself: I am the LORD.
If there be among you a poor man of one of thy brethren within any of thy gates in thy land which the LORD thy God giveth thee, thou shalt not harden thine heart, nor shut thine hand from thy poor brother:
Love the LORD your God with all your heart and with all your soul and with all your strength.
Var þetta lagt til hliðar? Var þetta birgði á fólkinu? Var þetta neglt á krossinn og Jesú, losaði okkur við þessi leiðindi?
Er ekki lang eðlilegast að skilja þetta eins og þetta er sett fram í Hebreabréfinu sem segir:
Hebreabréfið talar um hve miklu meiri okkar löngun til að syndga ekki ætti að vera í ljósi náðarinnar. Að vera undir náð þýðir þarna að það er miklu alvarlegra að syndga og synd er lögmálsbrot
Það varð breyting á prestdóminum, í staðinn fyrir jarðneskt musteri og að menn þjónustu sem prestar þá varð Jesú æðsti prestur allra.
Er ekki undarlegt að segja við lærisveinana og fólkið að hlýða þegar lesið er upp úr lögum Guðs sem Guð gaf Móse ( Matteus 23 ) þegar það átti bara að gilda kannski í nokkra mánuði í viðbót?
Er ekki eðlilegra að það var það sem þeir áttu að gera en sumt væri að hætta, renna sitt skeið eins og fórnarkerfið, musterið og prestakerfið?
Mofi, 12.1.2012 kl. 10:18
Kristinn, og auðvitað, sæll og gleðilegt ár :)
Mofi, 12.1.2012 kl. 12:39
Sæll Halldór, þér finnst erfitt að vera sammála þótt mér sýnist að við séum nú næstum sammála núna. Ég held, (er að vinna núna og hef ekki flett því upp) að öll boðin sem þú telur upp í mósebókunum megi líka finna í N.T.
Af hverju er svona erfitt að skilja þetta með "barnaréttin"
N.t . segir að dómurinn byrji á húsi Guðs, þannig að Guðs barn sem syndgar af ásettu ráði...fær sinn dóm, ef ekki kemur iðrun.
Er ekki undarlegt..... jú vissulega undarlegt, en þannig er það nú samt með öll lög, þau eru í fullu gildi þar til þau er afnumin eða leyst af hólmi með betri lögum.
Kristinn Ásgrímsson, 12.1.2012 kl. 15:01
Allt í lagi, dæmi um atriði sem eru ekki í NT:
"Thou shalt not curse the deaf, nor put a stumbling block before the blind
3. Mósebók 23:22
And when ye reap the harvest of your land, thou shalt not make clean riddance of the corners of thy field when thou reapest, neither shalt thou gather any gleaning of thy harvest: thou shalt leave them unto the poor, and to the stranger: I am the LORD your God.
Thou shalt not deliver unto his master the servant which is escaped from his master unto thee
Thou shalt not see thy brother's ox or his sheep go astray, and hide thyself from them: thou shalt in any case bring them again unto thy brother.
Judges and officers shalt thou make thee in all thy gates, which the LORD thy God giveth thee, throughout thy tribes: and they shall judge the people with just judgment.
The nakedness of thy father, or the nakedness of thy mother, shalt thou not uncover: she is thy mother; thou shalt not uncover her nakedness.
8The nakedness of thy father's wife shalt thou not uncover: it is thy father's nakedness.
9The nakedness of thy sister, the daughter of thy father, or daughter of thy mother, whether she be born at home, or born abroad, even their nakedness thou shalt not uncove
Do not turn to mediums or seek out spiritists, for you will be defiled by them. I am the LORD your God.
Þeta eru allt hlutir sem að ég best veit eru ekki í NT og hlutir sem ég held að þú sért sammála. Síðan atrði varðandi hreinlæti sem hefði getað bjargað þúsundum í gegnum aldirnar en hinn svo kallaði kristna kirkja leit á sem úreldar reglur og það kostaði gífurlega þjáningar og dauða.
Atriði sem mig grunar að þú ert ósammála eru kaflarnir um óhreint kjöt, tíund og hátíðirnar.
Ég tel mig skilja hann og þig misskilja hann. Að öðlast þennan barnrétt var að fá hlutdeild í loforðinu sem Guð gaf Abraham og það er núna opið öllum í gegnum trú á Jesú. Ekki að með barnréttinum að þá hverfi það sem orð Guð skilgreindi sem vilja Guðs, það sem skilgreindi synd og rétt frá röngu. Eins og að barnrétturinn væri rétturinn til að syndga og hverfa frá lögum Guðs.
Ég spurði hvort það væri ekki undarlegt að Jesú væri að segja sínum fylgjendum að fara eftir því sem Guð gaf Móse ef það ætti aðeins við í nokkra mánuði og minnast ekkert á að það væri bara í stutta stund og síðan kæmu tvö þúsund ár af því að fara ekki eftir því sem Guð gaf Móse. Ég sé bara að fara beint á móti því sem Jesú kenndi og mín samviska leyfir það ekki.
Mofi, 12.1.2012 kl. 16:02
Mín skoðun er að þegar Kristur dó og reis frá dauðum þá hafi það verið til að auðvelda mannkyninu að frelsast. Aðferðafræði breyttist, en reglurnar eru þær sömu í raun. Guð slakaði ekki á "reglunum". Afleiðingarnar eru þær sömu einnig.
Kristur kom í staðinn fyrir fórnarkerfið og musterið. Það er athyglisvert þegar maður stúderar musterið í gamlatestamentinu að allt í byggingunni er tákn fyrir Krist.
Svo til að frelsast þarftu einungis að trúa á Krist, það eru engar forkröfur. Þú getur komið til hans eins og þú ert, sem syndari og ófullkominn. En við það að virkilega að trúa, þá samþykkir þú líka allt sem Kristur stendur fyrir, og afleiðing trúarinnar og iðrun synda er alger umbreyting á einstaklingi.
Munurinn á fyrir og eftir Krist er einungis hvenær refsingin átti að verða. Eftir Krist verður það í eitt skipti, á dómsdegi en fyrir Krist var það daglega þar sem Ísrael var útvalda þjóð Guðs á jörðu.
Kannski þið hafið aðrar hugsanir? Þannig sé ég þetta núna.
Karl Jóhann Guðnason, 12.1.2012 kl. 22:34
Ég held ég get tekið undir þetta Karl. Nema kannski eitt. Ég trúi að það er alltaf sama aðferðin sem Guð frelsar menn. Menn fyrir Krist horfðu fram til þess tíma er gjaldið fyrir syndir þeirra yrðu borgaðar af Guði og Guð réttlæti þá fyrir þeirra trú og traust sem þeir settu á loforð Guðs um frelsun. Við eftir Krist horfum til baka og í staðinn fyrir að trúa að Guð muni borga gjaldið fyrir okkar syndir þá trúum við að Guð hafi borgað þetta gjald og vegna þess að við setjum okkar traust á Jesú að Guð reiknar það okkur til réttlætis.
Mofi, 13.1.2012 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.