Hvort stóð sig betur, Romney eða Obama?

Ég hef núna hlustað á allar þrjár rökræðurnar milli Obama og Romney og að endanum þá finnst mér þetta hafa endað í jafntefli. Romney var miklu betri í fyrstu en síðan voru þeir mjög svipaðaðir í seinni tveimur.  Alltaf þegar ég hlusta á Romney þá bergmálar í bakgrunninum rödd sem segir "en hann trúir algjöru rugli". Kannski er málið að Romney trúir ekki því sem Mormóna kirkjan kennir og þetta er bara hluti af hans samfélagi og hann hefur aldrei horfst í augu við hverjar þessar kenningar eru.  Hver trú Obama er, er mér hulin ráðgáta en hans málflutningur hefur vanalega verið mjög veraldlegur. Það fór illa í mig þegar Obama fjallaði um Gaddafi en það var maðkur í mysunni í Líbíu málinu, sjá: Var Gaddafi vondur?

Engin spurning að þessir tveir menn eru öflugir einstaklingar en Obama virðist vera gáfaðri á meðan Romney virðist vera betri í að vinna með öðrum og betri í viðskiptum.  Hérna eru síðustu rökræðurnar:

Þetta myndband hérna verðskuldar líklegast sér blog grein en ég hendi þessu hérna inn fyrir forvitna.  Þetta er áhugavert myndband þar sem Dinesh D'Souza fjallar um af hverju hann trúir því að Obama vill eyðileggja Bandaríkin. Virkar gróft en hann hefur sínar ástæður.


mbl.is Obama heldur betri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þáttur á BBC - Hin leyndi geimur - Lífið inn í frumum

Forvitnilegur þáttur sem sýndur var á BBC sem fjallar um heiminn sem er að finna inn í frumum. Þeir reyndu að gefa Darwin nokkrar fórnir en svakalega virkaði það kjánalega innan um öll verkfræði undrin. Ef að horfa á þessar vélar sannfærir fólk ekki um að það sé til hönnuður þá get ég ekki ímyndað mér að ég geti nokkur tíman sagt eitthvað sem gæti sannfært einhvern.

Secret Universe - The Hidden Life Of the Cell


Bloggfærslur 23. október 2012

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 803356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband