Er rangt að óska þess að þær verði afhöfðaðar sjálfar?

Ég glími við blandaðar tilfinningar þegar ég les svona fréttir. Að einu leiti þá vorkenni ég þessum stúlkum, sé ekki betur en þær eru fórnarlömb heilaþvotts. Að öðru leiti þá heyri ég orð Jesú um að ég á að elska óvini mína. En að enn öðru leiti þá finn ég til haturs gagnvart fólki sem vill drepa annað fólk, að vilja afhausa annað fólk, hvað á þannig fólk annað skilið en að finna fyrir eigin meðali?  Það sem gerir þetta enn grófara er að þetta eru stúlkur sem lifðu í Englandi svo þær ættu að þekkja helling af fólki sem eru "kafirs".  Verður maður sjálfur vondur þegar maður bregst illa við mannvonsku eða væri maður einmitt vondur ef maður bregst ekki við mannvonsku?

En samt aðallega situr eftir hryggð yfir hvers konar ástand þetta er.


mbl.is Afhöfðanir og ruslfæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að fá góða sjón án hjálp gleraugna?

Ég vorkenni Roseanne, það hlýtur að vera hræðilegt að horfast í augu við að missa sjónina og eiga von á að lifa í myrkri það sem eftir er.

En, að minni spurningu, er hægt að fá góða sjón jafnvel ef maður þarf í dag að nota gleraugu?  Mitt svar er já, það er hægt.  Ég keypti þessa bók hérna: Quantumvisionsystem

Eftir að fara í gegnum leiðbeiningarnar í bókinni þá er mín sjón búin að margfalt batna. Ekki alveg 20/20 en örugglega mjög nálægt því og ég er viss um að ég mun ná því eftir nokkra daga í viðbót.  Líður dáldið eins og ég er bara að auglýsa vöru ...sem ég er að gera en ég get ekki annað eftir að vera að upplifa þetta síðustu daga; þetta er einfaldlega snilld! 

 

 


mbl.is Roseanne Barr er að verða blind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit Guð framtíðina?

Í mörg þúsund ár hafa menn glímt við hvernig Guð getur verið góður en heimurinn vondur. Ég hef áður skrifað um þetta eins og t.d. hérna: Vondur heimur sama sem vondur Skapari?

En það er samt óleyst eitt vandamál við þetta sem er að þegar Guð var að setja saman alheiminn, búa til jörðina og mennina þá t.d. vissi Hann af þeim þúsundum börnum sem verða fyrir misnotkun, pyntuð og drepin og Hann valdi samt að setja heiminn af stað vitandi að þetta myndi gerast.  Fyrir mig og marga aðra þá er þetta mjög stórt vandamál, hvernig hægt er að samræma kærleiksríkan Guð og að Hann vísvitandi lagði þessar þjáningar á saklaus börn.

Ein möguleg lausn á þessu er það sem er kallað "Open theism". Það viðhorf er það að Guð veit ekki framtíðina. Guð er alvitur en aðeins að því leiti um það sem hægt er að vita og framtíðin er ekki til heldur verður til eftir því sem tíminn líður og mjög margt af því sem gerist á þessari jörð mótast af frjálsum ákvörðunum okkar mannana.

Út frá þessum sjónarhóli þá skapaði Guð góðan heim, án illsku en það var möguleiki að einhverjar af þeim frjálsum verum sem Guð skapaði myndi nota þann vilja til að gera öðrum illt en það var ekki víst og hvað þá hve mikil illskan yrði. Það útskýrir af hverju Guð sagði t.d. þetta:

Jeremía 7
30 
Júdamenn hafa gjört það, sem illt er í mínum augum _ segir Drottinn _, þeir hafa reist upp viðurstyggðir sínar í húsi því, sem kennt er við nafn mitt, og saurgað það 
31 og byggt Tófet-fórnarhæðir í Hinnomssonar-dal til þess að brenna sonu sína og dætur í eldi, sem ég hefi ekki boðið og mér hefir ekki í hug komið!

Hérna fyrir neðan er þessi hugmynd kynnt, forvitinn að heyra hvað fólki finnst.

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

mbl.is Lík Buckley fundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með þá sem vilja breytast?

Það er hluti af samkynhneigðum sem óska þess að hafa ekki þessar kenndir, er fólk virkilega á móti því að það leiti sér hjálpar? Auðvitað er ég á móti því að fólk sé sent í slíkar meðferðir á móti sínum vilja, það segir sig sjálft. Annað sem ég sé hjá...

Svo nálægt því að vinna í Lottó

Það sem Ellen Stofan segir er eins og heimilislaus maður að segja að hann er mjög nálægt því að vinna í Lottó. Af hverju heimilislaus, af því að hann hefur varla efni á því að kaupa miða. Aðeins myndun próteina er svo ólíkleg að við eigum varla von á því...

Bendir frjálsvilji til tilvistar Guðs?

Áhugaverð rök fyrir tilvist Guðs. Það sem ég er 100% sammála myndbandinu er að besta útskýringin á tilvist okkar huga er annar hugur sem er æðri okkar.

Eru Páskar biblíuleg hátíð?

Svo mikið af fólki er mjög einlægt í því sem það gerir en mjög oft er það sem það gerir uppspunni manna en á engan grundvöll í Biblíunni. Í þessu tilfelli er það lang flestum augljóst að það að krossfesta sig er ekkert annað en móðgun við Jesú því það...

Hver gerði brjóst kynferðisleg?

Út um allan heim þá klæða konur sig á þann hátt að brjóstin...fái að njóta sín. Af hverju? Kannski af því að þær vita að brjóst hafa áhrif á karlmenn? Það er fyndin sena í myndinni "Nottinghill" þar sem parið liggur upp í rúmi og gaurinn leikinn af Hugh...

Tilviljun að sólmyrkvinn er aðeins sjáanlegur á jörðinni?

Vegna þess að hlutföllin milli fjarlægðar sólar og tungls og stærðar þeirra þá er þetta fyrirbæri sólmyrkvi mögulegt. Fyrir þá sem hafa gaman af stærðfræði: http://creationwiki.org/Solar_eclipse The sun's distance for Earth (149,597,870 km) is...

Annað lögmál Varmafræðinnar bendir til upphafs alheimsins

Eitt af því sem bendir mjög sterklega til þess að alheimurinn er ekki eilífur er annað lögmál varmafræðinnar en það segir að nýtileg orka í alheiminum er alltaf að minnka, sjá: Second law of thermodynamics Í einangruðu kerfi þá leitar kerfið alltaf í...

Heilaþvottur fjölmiðla

Þegar fólk er búið að lesa í áratugi hluti eins og þessa frétt þar sem staðhæft er um hve gamalt eitthvað er og hvernig eitthvað varð til þá getur orðið erfitt að einu sinni greina að hérna er ekki um staðreyndir að ræða heldur ályktanir byggðar sem oft...

Smá gagnrýni á trúboða Þróunarkenningarinnar

Það er búið að vera hellings vinna fyrir sköpunarsinna að leiðrétta allan þann misskilning sem Neil deGrasse hefur orsakað með sínum þáttum. Það sem sést þegar það sem Neil deGrasse segir er að hann er trúboði fyrir efnishyggju og darwinisma. Að...

Fjallar Daníel 8 um Róm eða Antiochus IV Epiphanes?

Hérna er stúdering þar ég skoða hvort að Daníel 8 lýsir gríska konunginum Antiochus IV Epiphanes eða hvort að valdið sem um ræðir er Róm. Inn í þessa umræðu blandast líka Daníel 11 en það er alveg sér stúdering út af fyrir sig. Þar sem megnið af hinum...

Ætli þau séu óhult?

Það er uppörvandi að sjá þessa múslíma sýna stuðning við þá sem eru undir árásum og sérstaklega þar sem um er að ræða gyðinga. Ég hef áhyggjur af því að þetta fólk gæti átt hætt á árásum frá þeirra eigin fólki. Þegar morðinginn var borinn til grafar þá...

Ungir múslímar mynda friðarhring um bænahús gyðinga

Á Vísir er frétt um að hópur ungra múslíma vill sýna að þeir vilja gyðingum vel svo á morgun ætla þeir að mynda friðarhring um eitt af þeirra bænahúsum: Ungir múslímar mynda friðarhring um bænahús gyðinga í Ósló Ég get ekki neitað því að mér þykir mjög...

Neanderdalsmenn voru menn eins og við

Því meira sem okkar þekking á Neanderdalsmönnum eykst því meira kemur í ljós sú mynd ða þeir voru alveg jafn mennskir og við. Það er margt sem fer ekki hátt í fjölmiðlum og bókum þróunarsinna þegar kemur að Neanderdalsmönnum en mig langar að benda á...

Á hvaða grundvelli getur fólk sagt að þetta sé rangt?

Á hvaða grundvelli geta kristnir, guðleysingjar eða hvað annað sem fólk kann að kalla sig, sagt að það sé rangt fyrir dóttur að stunda kynmök með föður sínum?

Hver er hissa á að hann var múslími?

Þegar þú ert með miljónir sem telja að það eigi að drepa þá móðga Múhameð þá er ekki nema von að einhver ákveði að gera akkúrat það. Þetta mun ekki enda nema að hinn almenni múslími byrja að predika að svona hegðun er syndsamleg og örlög slíkra er...

Og munurinn á þessu og fóstureyðingu er hver?

Það er alveg hryllilegt að fólk getur verið svona sjálfselskt að það er tilbúið að myrða nýfætt barn þegar það kemur í heiminn en... er virkilega eitthvað mikill munur á því sem þessi kona gerði og allar þær konur sem fara í...

Út frá sköpun þá er ekki þörf á neinu hulduefni

Hérna er fyrirlestur sem fer yfir gallana við Miklahvells kenninguna og hvernig út frá sköpun er engin þörf á þessu hulduefni sem enginn veit hvað er. Annar fyrirlestur en hérna er ekki fókusað á hulduefni heldur aðal gallana við Miklahvells...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 803194

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband