Kristileg predikun Gunnars í Krossinum

Ég horfði á predikun Gunnars í Krossinum sem hann hélt í gær og get sagt með gleði að sú ræða var mér blessun.  Þeir sem vilja hlusta á hana geta gert það hérna: Predikun 5.mars 

Margt í predikunni var mjög gott en það sem mér þótti vænst um var að kynna mig fyrir ljóði sem Davíð Stefánsson orti en það er virkilega fallegt og ég get tekið undir með Gunnari að það má segja að þetta ljóð sé innblásið.

DavidStefanssonÉg kveiki á kertum mínum
Davíð Stefánsson

Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.

Í gegnum móðu' og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.

Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.-
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.

Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.

Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.

 


En þarf að eyða fósturvísum?

pluriRannsóknir þar sem fósturvísar eru eyddir til að ná í stofnfrumur hafa verið mjög umdeildar víðsvegar um heim vegna þeirra siðferðis spurninga sem vakna.  Það sem mér finnst virkilega vanta í umræðuna hér á landi er að nota fósturvísa er ekki eina leiðin. Það eru til aðrar leiðir sem hægt er að fara sem valda ekki þessum siðferðis vandamálum.

Hérna eru nokkrar greinar sem ég hvet lesendur til að kynna sér:

 

 


mbl.is Stofnfrumur lagi heyrnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ókristileg ræða Gunnars í Krossinum

10-commandments-300x299.jpgGunnar í krossinum var með ræðu síðasta sunnudag þar sem hann fjallaði aftur um hvíldardaginn og virkaði eins og hann væri að ráðast á blog greinina sem ég gerði um það sem Gunnar sagði á Omega fyrir nokkru síðan.  Ræðuna má sjá hérna: Ræða Gunnars í Krossinum 24. mars

Ræðan innihélt of margar rökvillur og rangfærslur að mér finnst ég verða að svara henni.  Til einföldunar þá læt ég sem svo að hvert atriði er beint að mér svo ég svara hverju atriði þannig þó að kannski hafi Gunnar verið að hugsa um einhvern annan þegar hann kom með sín rök.

Ef þú heldur ekki laugardaginn sem hvíldardag þá ferðu til helvítis

Ég hef ekki haldið slíku fram. Taka ber fram að það er Gunnar sem trúir að fólk verði hent í eld og verði þar kvalið um miljónir ára en ekki ég.  Ég aftur á móti hef áhyggjur af frelsun fólks sem velur að hlíða ekki boðorðum Guðs; velur frekar hefðir manna en að hlýða Guði.

Kenna að halda sunnudaginn sé merki dýrsins

Ég hef ekki haldið slíku fram.  Minn skilningur á spádómum Biblíunnar er að það mun koma sá dagur að ákveðið veraldlegt ríki mun neyða fólk Guðs að brjóta boðorðin tíu og heimta sunnudags helgi hald. Þegar menn munu standa frammi fyrir þessu vali, að hlíða mönnum og óhlíðnast Guði þá mun þessi spádómur rættast og merki dýrsins verður að raunveruleika. En þetta er sér umræðuefni út af fyrir sig og erfitt að útskýra í fáum orðum.

Megum ekki vera undir lögmáli – þjónusta dauðans

Gunnar talaði um að menn halda að þjónusta dauðans sé til lausnar og það er misskilningur.  Ef einhver heldur að það sé einhver frelsun í því að halda lögmálið þá er ég sammála Gunnari.  Málið snýst ekki um frelsun frá synd heldur um hlíðni því eins og Kristur sagði „ef þér elskið mig, haldið þá boðorð mín“. 

Verk – að Halda hvíldardaginn

Hve öfug snúið er það að halda því fram að sá sem vill að við hvílumst frá verkum okkar og eigum stund með Guði eins og Hann bað okkur um er einhvers konar verk.  Sá sem vill verk en ekki hvíld á sjöunda deginum er Gunnar sjálfur.

Jesú braut helgi hvíldardagsins

Hérna fer Gunnar alveg yfir strikið.  Ég verð að vona að hann viti ekki hvað hann er að gera.  Það sem hann segir hérna er að Jesú var syndugur en ef Jesú var syndugur þá er enga fyrirgefningu að fá í krossinum! 

Auðvitað braut Jesú ekki hvíldardags boðorðið. Hann sýndi hvernig átti að halda hvíldardaginn heilagan með því t.d. að gera góð verk á hvíldardegi en ekki fylgja hefðum manna sem koma lögum Guðs ekkert við.

Trúareglur – cult

Miðað við samhengið þá virðist Gunnar gefa það til kynna að Aðvent kirkjan er cult.  Ef Gunnar vill halda þessu fram og rökstyðja það frekar þá væri fróðlegt að lesa það.  Til að lesa um hvað Gunnar heldur um cult þá er hægt að lesa um það hérna: Túarreglur (cult) á Íslandi

Blogg síður brugðist við með þvílíkum fyrirgangi og formælingum

Gunnar var í sjónvarpinu að segja hluti sem ég er ósammála og ég gagnrýndi rökin hans, ef einhver vill meta hvort að þetta var fyrirgangur og formælingar þá geta þeir lesa greina hérna: Gunnar í krossinum og að hafna lögum Guðs

Ferð ekki lengur í lögmálið til að hreinsa þig heldur í náð Guðs til að hreinsa þig

Það er alveg skýrt í Gamla Testamentinu að lögmálið hreinsar engan, til þess var helgi dómurinn og fórnarkerfið.  Alveg eins og í dag þá sagði lögmálið þeim hvort þeir þurftu að iðrast og þurftu á fyrirgefningu að halda. Á dögum Gamla Testamentissins þá fóru menn til musterisins en kristnir fara að fótum krossins.

Ég held ekki hvíldardaginn til að hreinsa mig ekki frekar en Gunnar myrðir ekki menn til að fá fyrirgefningu frá hans syndum. Ég held hvíldardaginn af því að lög Guðs segja mér að gera það og þar sem Guð skrifar lög sín á hjörtu endurfæddra einstaklinga þá er það mér ánægja að hvíla mig og eiga samfélag með Guði samkvæmt lögmálinu. 

Maðurinn ekki fyrir hvíldardaginn heldur hvíldardagurinn fyrir manninn

Hvíldardagurinn er sannarlega fyrir manninn, manninum til góðs.  Sé ekki hvernig þetta eru rök gegn hvíldardeginum að Guð gaf manninum þetta boðorð til að vera blessun. Allir sem ég þekki sem halda þetta boðorð upplifa mikla blessun og ef það er eitthvað sem okkar samfélag vantar þá væri það að geta hvílt sig frá daglega stressinu og vandamálum heimsins. 

Einn metur einn dag, annar metur annan dag

Páll var ekki að tala um boðorðin tíu þarna svo það er afskræming á orðum Páls að láta sem svo að hann hafi verið að tala um að það væri í lagi að brjóta hvíldardags boðorðið. 

Skapaði Guð heiminn á sex dögum og hvíldist á laugardegi, halló!

Biblían segir aftur og aftur, bæði í boðorðunum og á fleiri stöðum að Guð hvíldist á sjöunda deginum svo ef Gunnar trúir því ekki þá verður hann að eiga það við sjálfan sig; fyrir mitt leiti þá er Gunnar hérna að gefa í skyn að Biblían er að ljúga þegar hún segir að Guð hvíldi sig sjöunda daginn.

Voru undir náð í eyðimörkinni en ekki lögmáli

Eitthvað er Gunnar að ruglast hérna. Gyðingar fengu lögmálið eða boðorðin tíu áður en þeir fóru í eyðimörkina. Guð gaf þeim hvíldardaginn strax í Egyptalandi og áður en þjóðin fékk boðorðin tíu.

Þeir báðu um lögmál og fengu það

Hérna lætur Gunnar eins og að boðorðin tíu voru eitthvað val, að Guði var alveg sama um hvort að fólk laug, eða stal og eða tilbiðja aðra Guði en fólkið vildi boðorð svo Guð neyddist til að setja þeim reglur.

Lögmálið virkar ekki

Lögmálið hefur ákveðna virkni og Biblían talar mjög skýrt um hver tilgangur þess er. Gunnar svo sem talar líka um þann tilgang svo hann virðist vita hver tilgangurinn er en síðan afneitar þeim sama tilgangi í þessari setningu.  Ég sé aðeins of mikið af hringa vitleysu hjá Gunnari í öllu þessu.  Eitthvað þyrfti Gunnar að lesa sér til um hvað Biblían segir um lögmálið, eins og t.d. að það er heilagt ( Róm 7:12  ), það er fullkomið ( Sálmarnir 19:7 ) og það er lögmál frelsisins sem við eigum að halda alla okkar æfi ( Jakobsbréf 10:12 ).

Reyna að réttlætast með því að halda lögmálið

Hérna er ég alveg sammála Gunnari, menn réttlætast ekki með því að halda lögmálið. En stóra spurningin er hvort að menn vilji halda lögmálið eftir að þeir eru réttlættir af Guði. Ég spurði Gunnar þessarar spurningar í þessari grein hérna en hann hefur ekki þorað að svara, sjá: Opið bréf til Gunnars í Krossinum
 

Ganga fagnandi – annað en aumingja fólkið sem reynir að halda hvíldardaginn

Hvernig er það birgði að hvíla sig og eiga stund með Guði?  Hvernig getur það verið eitthvað annað en blessun að fara eftir boðorðunum tíu og eiga helga stund með Guði?  Var Guð þá að setja einhverjar byrgðar á fólk fyrir syndafallið með því að gera sjöunda daginn heilagan?

Lögmálið úrelt

Hérna segir Gunnar beint út að boðorðin tíu eru úrelt. Ég get ekki skilið það öðru vísi en að núna skiptir engu máli hvernig kristnir einstaklingar hegða sér því að þeir eru undir náð, ekki lögum. Í náð stela þeir og drýgja hór.  Í þessu samhengi langar mig að benda á vers í Hebreabréfinu:

Hebreabréfið 10
26Því að ef við syndgum af ásettu ráði, eftir að hafa öðlast þekkingu á sannleikanum, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar 27heldur er það óttaleg bið eftir dómi og heitum eldi sem eyða mun andstæðingum Guðs. 28Sá er að engu hefur lögmál Móse verður vægðarlaust líflátinn ef tveir eða þrír vottar bera. 29Hve miklu þyngri hegning ætlið þið þá ekki að sá muni vera talinn verðskulda er fyrirlítur son Guðs og metur einskis blóðið, sem sáttmálinn var grundvallaður á, og smánar anda náðarinnar? 

 

 


En það er í lagi að myrða, við erum ekki lengur undir lögmáli!

Mér þótti það athyglisvert að Gerald Gallant fékk morð beiðnirnar í kirkju; spurning hvort að einhverjir meðlima þeirra kirkju voru á þessari skoðun að það væri í lagi að myrða fyrst að við erum ekki lengur undir lögmáli. Þegar umræða meðal kristna kemur...

Opið bréf til Gunnars í Krossinum

Þann 24. mars flutti Gunnar Þorsteinsson í Krossinum ræðu um hvíldardaginn og lögmálið. Sjá má ræðuna hérna: Ræða Gunnars 24.mars . Gunnar sagði réttilega að maðurinn réttlætist ekki með því að halda boðorðin heldur fyrirgefur Guð manninum af náð sinni...

Það er í lagi að stela, vita þeir ekki að Kristur uppfyllti lögmálið?

Í umræðunni um hvíldardaginn þá koma merkilega margir með þau rök að það má brjóta hvíldardags boðorðið vegna þess að Jesús uppfyllti lögmálið. Með sömu rökum þá hlýtur að vera að mati þessara sömu manna að vera í lagi að stela því það boðorð er hluti af...

Munu heiðingjar brenna að eilífu?

Þetta er alveg frábært framtak hjá heiðingjum í Bretlandi. Þeir eru bæði að vekja fólk til umhugsunar um trúmál og sömuleiðis gagnrýna þá hryllings kenningu Kaþólsku kirkjunnar að heiðingjar og fleiri munu brenna að eilífu í eldi í ólýsanlegum þjáningum....

Nikola Tesla - magnaður vísindamaður

Langaði að benda á grein um Nikola Tesla sem blogg vinur minn Daystar eða Tryggvi skrifaði um fyrir þó nokkru síðan, sjá: TESLA ... Margt fróðlegt sem kemur þarna fram eins og að Tesla á að hafa fundið upp leið til að leiða rafmagn án neinna víra, bjó...

DNA viðgerðir og tilvist hönnuðar

Hvernig er hægt að horfa á þetta og álykta að náttúrulegir ferlar bjuggu þetta til? Ég vil vitna í orð Jesú varðandi trú þeirra sem halda að náttúrulegir ferlar hönnuðu þetta: Matteusarguðspjall 8 10 Þegar Jesús heyrði þetta undraðist hann og mælti við...

Forvitnilegar greinar um Darwin

Darwins predictions Darwin Loves You (and has a wonderful plan for your life!) Was Blyth the true scientist and Darwin merely a plagiarist and charlatan? The Historical Connection from Darwin to Hitler Museum Exhibit Supresses Darwin's Real Views on...

Ellen White reynist sannspá

Ellen White var ein af þeim sem stofnuðu Aðvent kirkjuna en trú kirkjunnar er að hún hafi fengið sýnir frá Guði og þannig hafi hún leiðbeint kirkjunni í rétta átt. Þetta gerðist á árunum 1850-1870 en Ellen White dó 1915. Eitt af aðal atriðunum sem hún...

Gamla Testamentið og Svarti dauði

Þegar fólk heyrir svona ummæli þá gerir það stundum þau mistök að halda að páfinn segi þessa hluti vegna þess að Biblían er á þessari skoðun en svo er ekki í þessu tilfelli. Biblían sannarlega talar um að kynlíf er aðeins í lagi innan hjónabands og engin...

Kemst Fritzl til himna?

Biblían boðar að hver sá sem iðrast og endurfæðist mun öðlast eilíft líf. Þýðir þetta að Fritzl gæti komist til himna? Ég er á því að svarið er já. Gæti jafnvel þetta komið þannig út að Fritzl kæmist til himna en ekki dóttirin sem hann nauðgaði í öll...

Gunnar í krossinum og að hafna lögum Guðs

Af og til þá kíki ég á Omega, því miður verð ég vanalega fyrir vonbrigðum. Í þetta skipti í kvöld þá hlustaði ég á Eirík og Gunnar í krossinum spjalla saman og nokkuð áhugavert kom þar fram. Þeir töluðu um hve mikilvægt það væri að lúta vilja Guðs og...

Yfirlit yfir Daníelsbók

Mig langar að gefa smá yfirlit á Daníelsbók áður en ég reyni að fjalla um þá spádóma sem þar eru að finna. Ég hef áður fjallað um spádóminn í kafla 2 sem er svona grunnurinn að því að geta skilið þá sem koma á eftir; hérna er sú færsla: Uppfylltur...

Framfara spor

Mér finnst nú að þingmenn ættu að vera að glíma við önnur mál en þessi á þessum tímum en samt væri þetta mjög góð breyting og löngu kominn tími til. Mér finnst nauðsynlegt að hver einstaklingur finni sína eigin sannfæringu og þá skrái sig samkvæmt þeirri...

Er trúleysi til?

Ég vil meina að það er ekkert til sem er trúleysi. Þá á ég við það sem orðin sjálf þýða, ekki einhver merking sem mismunandi fólk hefur lagt í þessi orð. Mér finnst einfaldlega að ef einhver trúir ekki á æðra máttarvald þá einfaldlega hefur þá trú að...

Okkar einstaka jörð

Að heyra af svona rannsóknarverkefni gleður mig og það verður gaman að sjá þær myndir sem þessi sjónauki mun taka. Það var líka skemmtilegt að frétta að þeir hjá NASA skýrðu sjónaukann í höfuðið á kristna sköpunarsinnanum Jóhannes Kepler . Til dæmis...

Gunnar í krossinum að bulla á Omega

Vildi svo til að ég kíkti á Omega í dag og sá þá Gunnar í krossinum var að afsaka sunnudags hald og að brjóta hvíldardags boðorðið. Hann talar um að það er dagljóst frá Biblíunni sem er auðvitað algjör fyrra því að það er engan veginn hægt að rökstyðja...

Virka galdrar?

Auðvitað virka galdrar ekki! Af hverju væri þá búðin að loka og eigandinn að leita að annari vinnu? Ef að galdrar virkuðu, myndi þá fólk ekki í hrönnum vilja fá viðkomandi norn til að redda sér vinnu, fá betri náms árangur eða vinna ástina sína? Gott að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband