Þú átt ekki að gagnrýna!

Þetta er líklegast að mínu mati ein af vitlausustu setningunum sem fólk getur látið út úr sér. Ef viðkomandi virkilega er á þessari skoðun þá ætti hann að hætta að gagnrýna þá sem eru að gagnrýna. Þetta er setning sem á heima í sama flokki og setningar eins og:

  • Það er ekki neitt til sem er sannleikur!
    Ehhh, er það satt?
  • Ég get ekki sagt eitt orð í íslensku.
  • Allur sannleikur er afstæður - all truth is relative.
    Er það alltaf satt eða er það afstæður sannleikur? - is that a relative truth. 
  • Maður getur ekki vitað neitt fyrir víst.
    Veistu það fyrir víst?

Síðan eru hugmyndir sem eru svipaðar þessum setningum eins og "ég er efasemdamaður". Vandamálið hérna er að viðkomandi ætti þá samkvæmt þessu líka að efast um sínar efasemdir. En því meira sem maður efast um sínar efasemdir því vissari verður maður. Ég veit vel að menn eru ekki vissir um margt en hérna er ég aðeins að benda á að því meir sem þú efast um eitthvað, því meira ertu viss um andstæðu þess.

Það er virkilega sorglegt þegar kristnir grípa vitleysuna að maður á ekki að gagnrýna. Ef viðkomandi er á þeirri skoðun að maður á ekki að gagnrýna þá ætti viðkomandi að minnsta kosti ekki að gagnrýna þá sem gagnrýna. Enn verra er að spámenn Biblíunnar gerðu fátt annað en að gagnrýna. Þeir gagnrýndu t.d. Ísraels þjóðina sjálfa fyrir margt eins og að vanvirða hvíldardaginn eða tilbiðja skurðgoð, eða eins og Jóhannes skýrari gerði en hann gagnrýndi Heródes fyrir að taka sér eiginkonu annars manns.

Svo, til þeirra sem finnst að ég eigi ekki að gagnrýna. Standið við eigin fullyrðingu og ekki gagnrýna mig. Ég aftur á móti er ósammála, ég tel að maður á að gagnrýna það sem maður telur vera rangt og ætla ekki að hætta því.


Íslenska krónan til bjargar!

Eftir hrun bankanna þá heyrðust háværar raddir sem gagnrýndu íslensku krónuna. Eins og núverandi vandamál væru eitthvað henni að kenna. Sömu raddir tala um Evruna sem riddarann á hvíta hestinum sem mun bjarga Íslandi.

Eitthvað finnst mér þeir sem svona tala ekki skilja hlutverk peninga en þeirra hlutverk er aðeins að auðvelda fólki að skiptast á vörum; afskaplega einfalt.

Jefferson_QuoteÍ myndinni The Money Masters sem ég bloggaði um fyrir nokkru var þetta útskýrt, sjá: The Money Masters

Í gegnum aldirnar hefur það verið mikið baráttu mál hver fær að stjórna myndun peninga því sá sem stjórnar því hefur gífurleg völd. Hann getur t.d. stöðvað myndun peninga og búið þannig til skort á mörkuðum þangað til ýmis fyrirtæki lenda í greiðslu erfiðleikum og síðan keypt þau upp á góðu verði. Þannig getur viðkomandi aðili náð stjórn á fyrirtækjum og auðlindum.

Hvað myndi gerast ef íslensk efahagslíf gengi fyrir evrum?   Það fer allt eftir því hve mikið af evrum við gætum fengið. Ef við fengjum of fáar ( sem er lang líklegasta útkoman ) þá myndi íslenskt samfélag stirna upp eins og vél án olíu. Atvinnuleysi myndi aukast eins og við sjáum gerast í mörgum löndum í kringum okkur og menn ættu í erfiðleikum með að kaupa og selja því að peningar væru af svo skornum skammti.

Nei, höldum í íslensku krónuna; að stjórna útgáfu okkar eigin peninga getur hjálpað okkur mjög mikið í gegnum þessa erfiðleika.


mbl.is Spá 9,9% atvinnuleysi næsta ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynning á Signature in the Cell

Hérna er Stephen Meyer að kynna nýju bók sína "Signature in the Cell".  Hann fer stuttlega yfir sögu vísindanna er varðar hönnun eða þróun og hvernig uppruni lífs kemur inn í þá umræðu.

 

http://link.brightcove.com/services/player/bcpid1274179818?bctid=27309263001

 


Ný bók um Vitræna hönnun: Signature In The Cell

Ný bók er komin út sem fjallar um eina af stærstu ráðgátu í líffræði sem er uppruni upplýsinga í fruminni eða uppruni DNA. Bókin heitir Signature In The Cell og ég hvet alla sem eru forvitnir um líffræði og sérstaklega Vitræna hönnun að ná sér í eintak....

Hver vill lifa að eilífu?

Þessi hjú fá prik fyrir eldmóð og áhuga en þessi framkvæmd tókst ekkert voðalega vel upp. Þau munu örugglega fá að heyra brandara um þetta atvik það sem eftir er af þeirra lífi. Þessi frétt lét mig hugsa um atriði sem virðist angra marga sem er að lifa...

HIV og þróunarkenningin

Bloggarinn Rebekka kom með þessa athugasemd sem mig langar að svara: Rebekka Mofi, mig langar að biðja þig að lesa þennan póst ... Þarna lýsir höfundurinn aðeins einu vandamáli sem vísindamenn glíma við, að finna lækningu við HIV vírusnum (eða hér n.k....

Dauðinn bara hluti af lífinu?

Í rökræðum við guðleysingja þá kemur oft sú afstaða upp að dauðinn er bara hluti af lífinu og þeir eru búnir að sætta sig við að dag einn munu þeir deyja og hverfa í eilífðina. Ég leyfi mér að efast um að þeir sem segja þetta geti í raun og veru lifað í...

En ég er í rauninni góð persóna

Duga þau rök frammi fyrir dómara að maður er góður námsmaður? Góður við mömmu sína og traustur vinur? Gefur til líknarmála og vinnur sjálfboðavinnu fyrir heimilislausa? Er það ástæða til að dæma einhvern saklausan af því að misþyrma annarra manneskju...

Er tilgangur í guðleysi?

Dalai Lama er búddisti eins og flestir vita. Sumir átta sig ekki á því að Búddismi er almennt guðleysis trú en þar sem búddismi snýst um að enda þjáningar þá hafa margir komist upp með að vera búddistar og trúa á einhverja guði. Hérna er forvitnilegt...

Eru aldursmælingar áreiðanlegar?

Oft þá sjáum við fréttir eins og þessa þar sem aldur einhverra beina er gefin eins og það er eitthvað sem viðkomandi menn hafa áreiðanlega vitneskju um. Í grundvallar atriðum þá snúast aldursgreiningar aðferðir um að mæla hlutfall efna í viðkomandi sýni....

Trúir þú ekki að margt smátt geri eitt stórt?

Ein af aðal rökunum fyrir þróunarkenninguna eru þau að við sjáum dýrategundir breytast örlítið á þeim tíma sem við höfum fyglst með þeim. Það er enginn ágreiningur um að dýrategundir breytast með tímanum en deilan snýst um hvort að stökkbreytingar og...

Það er mikill munur á lífi og dauða

Það eru margir sem kenna þetta sem Moo-Hyun sagði í bréfi sínu til fjölskyldu sinnar, að það er enginn munur á lífi og dauða, jafnvel sumar "kristnar" kirkjur kenna þetta. Hugmyndin er oftast sirka á þessa leið að þegar þú deyrð þá öðlastu meðvitund sem...

Upphaf er alveg pottþétt en Miklihvellur...

Rökin fyrir því að alheimurinn hafði upphaf eru mjög sterk. Rökin fyrir því að þetta gerðist allt án skapara, að aðeins náttúrulögmál og tilviljanir réðu því hvernig alheimurinn er hér í dag eru mjög veik. Jafnvel ef það væri rétt þá þyrfti að útskýra...

Öll keðjan er ennþá týnd

Því miður þá er umræðan á villigötum þegar menn byrja að tala um týnda hlekkinn. Spurningin er frekar, hvað segir heildarmyndin okkur þegar við skoðum steingervingana. Sýnir hún hvernig dýrategundirnar smá saman urðu til með þá þúsundum "hlekkja" sem...

Afmælisveisla Darwins - svo sorglegt

Ég rakst á þetta myndband þar sem nemendur í Swarthmore skólanum halda upp á 200 afmæli Darwins, sjá: http://www.the-scientist.com/2009/05/1/17/1/#video Margt forvitnilegt kemur fram þarna eins og að náttúruval er eitthvað sem Darwin fann upp en það er...

Ræða um Guðs ótta og náð

Þessa ræðu flutti ég fyrir nokkrum hvíldardögum síðan. Hún er í lengri kantinum og frekar þung en mér finnst hún fjalla um mjög mikilvægt efni fyrir kristið fólk og vona að einhverjir njóti góðs af lestrinum. Hafnafjarða kirkjan - ungleg kirkja Þegar við...

Frábært framtak Ögmundar

Það er auðvitað miklu betra að það sem er hollt og eykur hreysti þjóðarinnar og minnkar kostnað í læknisþjónustu sé ódýrt. Þessu má koma til leiðar með sköttum og ég sé ekkert við rangt við það; nema það fari í eitthvað óhóf. Eins og Ingibjörg Sara segir...

Er þetta kaldhæðni?

Það virkar á mig sem frekar kaldhæðnislegt að maður sem má ekki stunda kynlíf samkvæmt skipun kirkjunnar sinnar er að gefa öðrum ráðleggingar um kynlíf. Þetta er svona eins og að lesa bók í læknisfræði eftir mann sem hefur aldrei og má ekki stundað...

Getur Guð orðið að manni?

Í umræðunni " Kristur heimsækir helvíti " þá útskýrir bloggarinn Svanur af hverju það er órökrétt það sem við lesum í trúar játningunni að Kristur eyddi heilum degi í logum vítis og rökstuddi það vel og var ég honum hjartanlega sammála í þeim efnum....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband