31.3.2011 | 16:56
Guðleysi og siðferði - William Lane Craig vs Lewis Wolpert
Það virðist vera afspyrnu erfitt að útskýrir fyrir guðleysingjum að án trúar á Guð þá er ekki lengur góður grundvöllur fyrir siðferði. Hérna er William Lane Craig að útskýra þetta fyrir Lewis Wolpert, kannski það hjálpi einhverjum að skilja þetta. Ég býst við því að ég þarf að taka það fram að þetta þýðir ekki að guðleysingjar geti ekki haft mjög sterka réttlætiskennd og mjög sterka siðferðisvitund, þeir sannarlega geta haft það en það kemur málinu ekkert við.
30.3.2011 | 14:25
Hugleiðing um bókstafstrú og guðleysi
Ég var að rekast a grein eftir einn af mínum uppáhalds bloggurum, hann Kristinn en hérna er greinin:Hugleiðingar um bókstafstrú og leiðréttingaráráttu
Ég vildi að ég hefði sömu gáfu og Kristinn að geta látið gamminn bara geysa, því miður er ég meira þannig að ég vil koma á framfæri ákveðnum punktum eða rökum en á erfiðara með koma með langlokur. Þannig að ætla ég að svara þeim punktum sem Kristinn kemur með í grein sinni.
Kristinn
Séu menn ekki að reyna að greiða úr hugmyndum sínum mótsagnirnar held ég að megi fullyrða að þeir hafi engan áhuga á sannleikanum og fellur þá umræðan um sjálfa sig - og gerir það augljóslega alltaf frá upphafi í tilfelli bókstafstrúaðra.
Þessu er ég mjög sammála en hérna finnst mér Kristinn vera þann sem er með bjálkann í auganu að reyna að fjarlægja flísina í auga nágrannans. Í fyrsta lagi þá segir Jesú að Hann er sannleikurinn og þar af leiðandi hafa kristnir mikla ástæðu til að vita sannleikann því það er í sjálfu sér að kynnast Guði. Þetta er líka eitthvað sem bergmálar í orðum kristnu vísindamanna sem lögðu grunninn að nútímavísindum eins og t.d. sagði Louis Pasteur að vísindin færa menn nær Guði. Í öðru lagi þá hlýtur það að fara eftir hvaða bókstaf er verið að trúa hvort að mótsagnir eru innifaldar í hugmyndum manna. Síðan er það oft þannig að þegar menn skoða hlutina á yfirborðskenndann hátt þá geta þeir virkað mótsagnakenndir en þegar nánar er skoðað þá stenst það ekki. Þegar kemur að Biblíunni þá er mjög margt sem þarf að skoða, menningu, frumtextann og samhengið og tilgang ritsins svo dæmi séu tekin.
Kristinn
Hér á blogginu hafa menn töluvert reynt að fá Mofa bókstafstrúarmann til að gangast við villum í málflutningi sínum, sem er nokkuð sem hann gerir nánast aldrei, og lítið orðið ágengt þrátt fyrir að innleggin séu orðin vel yfir 200 talsins við síðust umræðu þar sem hann kemur við sögu
Þegar tveir hópar rökræða og hvorugur gengst við villum í málflutningi þá eru greinilega báðir aðilarnir jafn sekir um að gangast ekki við villum. Ég persónulega hef alveg nokkrum sinnum þurft að draga hluti til baka. Alltaf blendnar tilfinningar þegar það kemur upp, leiðinlegt að sjá að maður misskildi eitthvað en síðan gott að geta sýnt heiðarleika og auðmýkt og viðurkenna að maður hafði rangt fyrir sér. Ég man ekki eftir mörgum dæmum, ef einhverjum, þar sem Kristinn viðurkennir að hann hafði rangt fyrir sér.
Kristinn
Mofi er trúmaður af því tagi sem jafnan tínir Stalin, Hitler og Pol Pot til sem dæmi um afleiðingu guðleysis. Honum er síðan jafnan bent á að það megi deila um hvort þessir menn hafi allir verið guðlausir og í framhaldi er honum bent á að ekkert sem þeir gerðu má með góðu móti rekja til trúarafstöðu þeirra - þar sem það eitt að trúa ekki er ekki boð um að gera eitt né neitt - hvað þá drepa trúaða
Á ég bara að flokka þetta undir tilviljun að mestu fjöldamorðingjar sögunnar voru guðleysingjar? Ég bara get ekki gert það, það er svo órökrétt að það nær engri átt. Ég viðurkenni síðan alveg að Hitler var ekki guðleysingi, man ekki eftir að hafa verið að reyna að sannfæra einhvern um að Hitler hafi verið guðleysingi. Síðan er spurningin hvort að þeirra guðleysi hafi haft áhrif á gjörðir þeirra þá finnst mér Dostoevsky orða þetta mjög vel, "If God doesn't exist, everything is permissible". Það er nokkuð ljóst að guðleysinginn hefur engan trúarlegan texta sem segir honum að það er rangt að myrða, stela eða ljúga eða skipun frá Guði sjálfum að elska náungan eins og sjálfan sig. Það er líka nokkuð ljóst að guðleysinginn óttast ekki réttlæti Guðs þegar þessu lífi er lokið. Allt þetta ætti að gera öllum ljóst sem eru ekki blindaðir af trú að guðleysi hefur áhrif á hvernig menn sjá lífið og tilveruna og hvernig menn sjá lífið og tilveruna hefur áhrif á gjörðir þeirra.
Ég er ekki að segja að guðleysingjar hafa ekkert siðferði eða viti ekki muninn á réttu og röngu. Ég tek frekar undir orð Páls þegar hann fjallar um þetta atriði:
Rómverjabréfið 2:14-15
Þegar heiðingjar, sem þekkja ekki lögmál Móse, gera það eftir
eðlisboði sem lögmál Guðs býður, þá eru þeir sjálfum sér lögmál þótt þeir hafi
ekki neitt lögmál. Þeir sýna að krafa lögmálsins er skráð í hjörtum
þeirra með því að samviska þeirra ber þessu vitni og hugrenningar þeirra sem
ýmist ásaka þá eða afsakaKristinn
Það að hann skuli eilíflega endurtaka vitleysuna með þessum óheflaða hætti og jafnvel bæta um betur með því að gera Darwin ábyrgan fyrir þjóðhreinsunarstefnu Nasista ætti í sjálfu sér að gera mönnum ljóst að Mofi hefur engan áhuga á sannleikanum
Ég hef aldrei sagt að Darwin væri ábyrgur fyrir þjóðhreinsunarstefnu Nasista. Ég tek aðeins undir orð þróunarsinnans Stephen Jay Gould um áhrif Darwins á nasistana:
Stephen Jay Gould
We cannot understand much of the history of late 19th and early
20th century anthropology unless we appreciate its obsession with
the identification and ranking of racesStephen Jay Gould
Biological arguments for racism may have been common before 1859, but they
increased by orders of magnitude following the acceptance of evolutionary theory
Síðan einn þróunarsinni í viðbót sem að mínu mati hitti þarna naglann á höfuðið:
Arthur Keith
The German Fuehrer, as I have consistently maintained, is an evolutionist; he has consciously sought to make the practice of Germany conform to the theory of evolution.
Kristinn
Hvers vegna er það sem menn reyna að tala um sannleikann við fólk sem hefur engan áhuga á honum?
Ég tel mig hafa algjörlega sannað að ég hef mikinn áhuga á sannleikanum og reglulega geri ég greinar þar sem ég bendi á atriði sem styðja mína trú. Ég sé mjög lítið af slíku hjá Kristni. Endalausar greinar sem eru aðeins hugleiðingar um hitt og þetta en aldrei bent á eitthvað raunverulegt sem styður hans trúar afstöðu. Ég er einfaldlega á því að sannleikann er að finna út í raunveruleikanum, maður þarf ekki bara að hugleiða heldur líka rannsaka. Kristinn að þessu leiti minnir mig á munkana á miðöldum sem hugleiddu hve margir englar gætu staðið á hausnum á títuprjóni.
Ég held ég haldi áfram að benda á vísindarannsóknir og hvernig ég sé þær styðja mína trú og tek opnum örmum öllum þeim sem vilja benda á rannsóknir sem þeir telja passa ekki við mína trú. Bara svo það komi fram þá auðvitað passar ekki allt við mína trú, auðvitað eru hlutir sem ég skil ekki og óleystar ráðgátur en málið er hvert benda megnið af gögnunum.
Kristinn
Það er áhugavert í þessu samhengi að velta því fyrir sér hvort þessir sömu aðilar myndu hafa jafn mikinn áhuga á að leiðrétta málflutning Mofa ef hann væri búinn að ganga af trúnni og orðinn darwinisti, en færði eftir sem áður jafn hörmulega mótsagnarkennd rök fyrir hugmyndum sínum
Greinin sem slík inniheldur aðeins tvö dæmi um það sem Kristinn telur verið mótsagnakennd rök en ég tel mig hafa svarað þeim báðum. Það er aftur á móti Kristinn sem hefur trú sem mér finnst svakalega mótsagnakennd, trú sem heldur fram að dauð efni, tilviljanir og tími hafi orsakað vitsmuni, siðferði og meðvitund þrátt fyrir að hafa ekkert af þessum eiginleikum og enga þekktar leiðir til að orsaka jafn mögnuð fyrirbæri og þessi.
Kristinn
Ég varpa þessum vangaveltum bara fram til gamans. Kannski menn hafi áhuga á að ræða heimspekilegar forsendur þess að bókstafstrúarmaður geti opnað augun fyrir mótsögnum, í stað þess að ergja sig á einstökum mótsögnum sem hann lokar augunum fyrir...
Ég hefði mikinn áhuga á því að skilja til hlítar þær heimspekilegu forsendur sem guðleysingjar hafa svo þeir geti opnað augun fyrir mótsögnunum í þeirra trú. Sumir hafa þó tjáð sig um þær og viðurkenna að þeir taka afstöðu guðleysis og efnishyggju sama hvað tautar eða raular vegna þess að í þeirra huga er það skilgreiningin á vísindum. Þessu til stuðnings vil ég benda á það sem Dawkins skrifaði:
The Blind Watchmaker (1996) p.249
My argument will be that Darwinism is the only known theory that is in principle capable of explaining certain aspects of life. If I am right it means that, even if there were no actual evidence in favour of Darwinian theory (there is, of course) we should still be justified in preferring it over all rival theories
Fyrir forvitna þá er ég er nýbúinn að skrifa grein þar sem ein af sterkustu rökum Dawkins ( að hans eigin mati ) fyrir þróunarkenningunni eru byggðar á einhverju sem er ekki satt, sjá: Bestu rök Dawkins, lygi?
Annað líkt dæmi sem sýnir hvernig guðleysi er tekið fram yfir staðreyndirnar og leitina að sannleikanum kemur frá
Richard Lewontin
We take the side of science in spite of the patent absurdity of some of its constructs, in spite of its failure to fulfill many of its extravagant promises of health and life, in spite of the tolerance of the scientific community for unsubstantiated just-so stories, because we have a prior commitment, a commitment to materialism.
It is not that the methods and institutions of science somehow compel us to accept a material explanation of the phenomenal world, but, on the contrary, that we are forced by our a priori adherence to material causes to create an apparatus of investigation and a set of concepts that produce material explanations, no matter how counter-intuitive, no matter how mystifying to the uninitiated. Moreover, that materialism is an absolute, for we cannot allow a Divine Foot in the door.
Þetta tel ég hljóti að vera ein af aðal ástæðum guðleysis, að fyrirfram ákveða að vísindin eða sannleikurinn er guðleysi og síðan meta allt út frá því. Ég fyrir mitt leiti tel að vísindin eigi að leita að sannleikanum og eins og Louis Pasteur sagði þá færa vísindin okkur nær Guði.
Hérna svarar Ravi Zacharias spurningu varðandi illskuna og hvort hun sé orsök slæms umhverfis eða hvort hún er inn í okkur. Einnig var mjög forvitnilegt að hlusta a Os Guiness segja söguna af þvi hvernig skáldið W. H. Auden komst til kristinnar trúar.
28.3.2011 | 22:31
Viðgerða kolkrabbinn inn í þér
24.3.2011 | 17:32
Rebekka: Atheist now accepts Intelligent Design
Trúmál og siðferði | Breytt 25.3.2011 kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
22.3.2011 | 10:04
C.S. Lewis og frjáls vilji og illskan
21.3.2011 | 14:36
Hollusta og fegurð
18.3.2011 | 15:02
Vísindi og kraftaverk
18.3.2011 | 11:45
Fimm klukkustundir eða milljón ár?
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
16.3.2011 | 10:42
Vísindi eru byggð á trú
Vísindi og fræði | Breytt 18.3.2011 kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
15.3.2011 | 10:49
Pssst! Ekki segja sköpunarsinnunum en vísindamenn hafa ekki hugmynd um hvernig lífið byrjaði
14.3.2011 | 11:47
Lífið í hnotskurn
10.3.2011 | 16:52
Henry Morris og Genesis flóðið
9.3.2011 | 16:44
Trú vs vísindi - John Lennox
8.3.2011 | 13:49
John Lennox um uppruna erfðamengi mannsins
7.3.2011 | 12:46
Evolution: The Grand Experiment
3.3.2011 | 15:17
Svör varðandi steingervinga hvala
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.3.2011 | 16:05
Víngarður Nóa fundinn?
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 803359
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar