Held að okkur vantar fólk í Ríkisstjórn með smá vit á fjármálum

bildeÞó að ég hafi ekki mikið fjármálavit þá hélt ég samt alltaf að það væri ákveðin aula regla sem stjórnvöld eiga að fara eftir. Sú regla er að þegar það er uppsveifla í samfélaginu þá á ríkið að halda að sér höndunum en þegar kemur niðursveifla þá á ríkið að reyna að blása lífi í samfélagið.  Einhvern veginn sé ég ekki betur en að okkar stjórnvöld hafa gert akkúrat hið öfuga síðustu tíu ár eða svo. Núna þegar kólnar all verulega í atvinnulífi landsmanna þá dregur ríkið svo úr öllum framkvæmdum að það nær varla nokkurri átt. 

Hvað segir blogg heimur, er ég hérna alveg úti að aka og það er ég sem hef ekki hundsvit á fjármálum? 

Held að gáfulegra væri að lækka laun þeirra hæst launuðu og auka við starfsfólk hjá RÚV. Í rauninni ætti að mínu mati að gera þannig þvert yfir allt sem ríkið sér um.  Samkvæmt þessari frétt hérna: http://www.visir.is/article/20071017/FRETTIR01/71017093  þá eru laun Páls ein og hálf miljón á mánuði sem mér finnst  persónulega vera fáránlegt bruðl! 

Ég hef lítið að gera þessa daganna svo ég alveg taka að mér starfið fyrir einn þriðja af því sem hann er með núna Smile


mbl.is Boðað til starfsmannafundar hjá RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Okkar ríkisstjórn virðist einmitt hafa mjög gaman af því að surfa bara með öldum hagsveiflunnar, ekkert sérstaklega mikið um einmitt þetta aulaverkefni, að jafna þær út

Mama G, 28.11.2008 kl. 13:03

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Mofi:

Þó að ég hafi ekki mikið fjármálavit þá hélt ég samt alltaf að það væri ákveðin aula regla sem stjórnvöld eiga að fara eftir. Sú regla er að þegar það er uppsveifla í samfélaginu þá á ríkið að halda að sér höndunum en þegar kemur niðursveifla þá á ríkið að reyna að blása lífi í samfélagið.

Mér sýnist þetta lýsa meiri viti á fjármálum en ríkisstjórnin er að fylgja. 

Marinó G. Njálsson, 28.11.2008 kl. 13:23

3 identicon

Reyndar er Geir Hagfræðingur en það virðist ekki hafa skilað sér....

 En það er rétt að skv. kenningunni ætti ríkið að minnka umsvif sín og byggja upp varasjóði í góðæri en auka umsvif og ganga á sjóði í kreppu. Eitthvað virðast menn hafa gleymt sér.

Guðmundur Steinbach (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 13:28

4 Smámynd: Mofi

Mama G, já, er það ekki?  Var hreinlega forvitinn hvort að ég væri hérna að sýna hve lítið vit ég hef á þessu en gott að fleiri en ég telja þetta vera rétt.

Marinó, það er eitthvað mikið búið að vera að en vonandi eru breytingar fram undan.

Guðmundur, ég svo sem efast ekki um að Geir vissi betur en eitthvað virðist hafa komið í veg fyrir að það kæmi fram í því verkum hans. Að vísu má ekki kenna honum svo alvarlega um því að hann ber ekki ábyrgð á síðustu tíu árunum; samt alveg nógu mörgum af þeim.

Mofi, 28.11.2008 kl. 14:04

5 identicon

Fyrir fáum misserum síðan var lagfæringum á vegum í Barðastrandarsýslu frestað vegna þenslu...

Fyrir stuttu síðan var þessum framkvæmdum frestað aftur

Í þetta skipti vegna kreppu

Kristmann (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 14:21

6 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll Halldór!

Sammála síðasta ræðumanni!

Takk.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 29.11.2008 kl. 15:24

7 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Held að okkur vanti fólk í ríkisstjórn með smá vit á fjármálum

Sindri Guðjónsson, 30.11.2008 kl. 03:15

8 Smámynd: Mofi

Kristmann
Í þetta skipti vegna kreppu

Mér finnst það meika ekkert sens...

Dóra litla
En hvað með litla sæta ofur skuldsetta samfélagið sem við búum í? Ber hinn almenni skuldari enga ábyrgð, líkt og allir hinir sem þetta samfélag byggja?

Jú, hann ber ábyrgð og ég er hræddur um að margir sem hafa farið út í að kaupa stórar og eða rándýrar íbúðir sem það hafði ekki efni á munu líklegast tapa þeim. Erfitt kannski að tala um að það fólk missi íbúðina sem það hafði aldrei efni á...

Það er alveg rétt að það eru margir sem hafa sett sig í skuldir og ég tel þá bera ábyrgð og sú ábyrgð mun líklegast taka allt af þeim.  Verst að þeir sem lifðu hófsamlega munu núna súpa seiðið af óábyrgri hegðun annara.

Spámaðurinn
Ég "Berð þú ekki ábyrgð á því? Og ætlarðu að axla þá ábyrgð?"
Hann "Ég er að bera ábyrgð með þessum aðgerðum."

Hann s.s. heldur jeppanum, 1.350.000 kallinum rekur 44 manns
og kallar það ábyrgð?

LOL  að minnsta kosti hefur hann kímnigáfu

Vonandi hefur hann kímnigáfu ef einhver með viti rekur hann

Vil honum ekkert illt en það er bara eðlilegt að taka ábyrgð þegar hlutirnir fara í steik.

Sindri
Held að okkur vanti fólk í ríkisstjórn með smá vit á fjármálum

Okkur vantar kosningar, engin spurning í mínum huga.

Mofi, 30.11.2008 kl. 17:20

9 Smámynd: Mofi

Eða við verðum að treysta þjóðinni til að kjósa fólk sem veit hvað þarf að gera?

Mofi, 1.12.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 802695

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband