Spádómurinn um Föstudaginn Langa

Þegar ég segi "Föstudaginn Langa" þá á ég auðvitað við að spádómurinn á við það sem gerðist á Föstudaginn Langa, sem sagt krossfestingu Jesú Krists.  Í Gamla Testamentinu er bók sem kölluð er Daníels bók eftir höfundi hennar, Daníel. Saga bókarinnar gerist þegar Ísrael er í útlegð í Babelón um 605 til 536 f.Kr. Þegar Daníel er aðeins táningur, eða í kringum 15 ára þá er honum rænt frá fjölskyldu sinni í Júda og er tekinn til Babelónar. Þar lifði hann restina af sinni ævi og varð hátt settur embættismaður og mikils metin af konungi Babelónar.

Spádómar Daníels fjalla aðalega um hvernig veldi heimsveldi þessa tíma yrðu að Evrópu okkar tíma en hérna vil ég benda á spádóm sem fjallar um hvenær Messías yrði drepinn. Sem sagt spádóm um hvenær Kristur yrði krossfestur eða Föstudaginn Langa.

Þennan spádóm er að finna í 9. kafla Daníels bókar og byrjar þar sem Daníel er í bæn að biðja Guð um að fyrirgefa Ísrael fyrir hegðun þeirra sem leiddi til herleiðingarinnar.  Þegar Daníel er að biðja þá kemur til hans engillinn Gabríel til að útskýra þær sýnir sem Daníel hafði fengið. 

Daníel 9
21  já, meðan ég enn var að tala í bæninni, kom að mér um það bil, er kveldfórn er fram borin, maðurinn Gabríel, sem ég hafði áður séð í sýninni, þá er ég hné í ómegin.    
22  Hann kom og talaði við mig og sagði: "Daníel, nú er ég út genginn til þess að veita þér glöggan skilning. 
23  Þegar þú byrjaðir bæn þína, út gekk orð, og er ég hingað kominn til að kunngjöra þér það, því að þú ert ástmögur Guðs. Tak því eftir orðinu og gef gætur að vitraninni.     24  Sjötíu sjöundir eru ákveðnar lýð þínum og þinni heilögu borg til þess að drýgja glæpinn til fulls og fylla mæli syndanna og til þess að friðþægja fyrir misgjörðina og leiða fram eilíft réttlæti, til þess að innsigla vitrun og spámann og vígja hið háheilaga.

Svo Gabríel segir við Daníel að sjötíu sjöundir voru gefnar Ísrael til að "fylla mæli syndanna", eitthvað sem verður skýrara á eftir.  Þegar kemur að spádómum í Biblíunni þá táknar einn dagur eitt ár ( 4. Mósebók 14:34 og Ezekíel 4: 6 ), sjá meira um það hérna.  Næst kemur fram hvenær þetta tímabil á að byrja.

Daníel 9
25 
Vit því og hygg að: Frá því, er orðið um endurreisn Jerúsalem út gekk, til hins smurða höfðingja, eru sjö sjöundir, og í sextíu og tvær sjöundir skulu torg hennar og stræti endurreist verða, þó að þrengingartímar séu. 

Þessa tilskipun um hvenær Jerúsalem yrði endurreist er að finna í Ezra 7: 21-28

Hérna kemur tilvitnun sem útskýrir afhverju við vitum að þessi tilskipun var gerð 457 f. Kr.

  • http://www.teachinghearts.org/dre17hdan09a.html
    Olympiad Dates. Classical historians accurately preserved Olympiad dates for Artaxerxes. These were transmitted from Xenophon and Thucydides through Plutarch to the Christian chronographer Julius Africanus.
  • Ptolemy's Canon. Documents the reigns of kings as far back as the seventh century B.C.
  • Cuneiform Text. (Compiled by Parker and Duberstein), Archeological findings of Babylonian Cuneiform texts providing a relatively complete catalog of dates for kings who ruled there from 626 B.C to A.D. 75.
  • Elephantine Papyri. Records written by Jews who lived on the island of Elephantine, in southern Egypt, during the Persian period. The dates were recorded with both the Persian-Babylonian lunar calendar and the Egyptian solar calendar dates. So this helps to fix the time of reign of Artaxerxes to our dating system. 7

Næst kemur fram hvað á að gerast á þessum 70 vikum eða sem sagt 70 sinnum 7 eða 490 árum.

Daníel 9
26  Og eftir þær sextíu og tvær sjöundir mun hinn smurði afmáður verða, og hann mun ekkert eiga, og borgina og helgidóminn mun eyða þjóð höfðingja nokkurs, sem koma á, en hann mun farast í refsidómsflóðinu, og allt til enda mun ófriður haldast við og sú eyðing, sem fastráðin er. 
27  Og hann mun gjöra fastan sáttmála við marga um eina sjöund, og um miðja sjöundina mun hann afnema sláturfórn og matfórn, og á vængjum viðurstyggðarinnar mun eyðandinn koma, en eftir það mun gjöreyðing, og hún fastráðin, steypast yfir eyðandann.

new_ark3Messías var oft kallaður hinn smurði og þegar Kristur dó á krossinum þá afnam Hann slóturfórnar kerfið sem benti til krossins. Þeir sem vita ekki hvað sláturfórnarkerfi gyðinga var geta lesið um það hérna og hérna.  Sáttmálinn sem þarna er fjallað um er skírnin sem markaði byrjunina á starfi Krists og síðan um miðja vikuna eða sem sagt þremur og hálfu ári seinna þá væri Kristur "afmáður" eða drepinn og þar með búinn að uppfylla það sem fórnarkerfi gyðinga benti til. 

Þannig að þegar við reiknum þetta út þá var tilskipunin gerð 457 f.Kr. og ef við bætum 490 árum við það þá vitum við að þetta tímabil endaði 34 e.Kr.  Hérna sjáum við töflu sem útskýrir þetta.

69 Spádóms vikur 1 Spádóms vika483 Years7 Years
Daníel 9: 25, 26 (70 teknar af) Daníel 9: 27  
7 Vikur62 vikur3½ dagar31 A.D. - Crucifixion3½ dagar 
49 Ár 434 ár3½ ár3½ ár
457 f.Kr. tilskipunin um að endurreisa Jerúsalem27 e.Kr. 
Skírn Krists

31
e.Kr. Krossfestingin
Föstudagurinn
Langi 

 34
e. Kr.
Stefán er drepinn
og fagnaðarerindið
er boðað út fyrir Ísrael
 

Ef einhver vill vera með tilkall um að vera Messías sem Gamla Testamentið spáði fyrir um þá varð hann að deyja á þessum tíma og aðeins Kristur uppfyllti það. 

Hérna er síða sem útskýrir þetta í miklu meiri smá atriðum: http://www.teachinghearts.org/dre17hdan09a.html

Í von um að meðlimir Vantrúar njóti dagsins og skemmti sér við bingó spil. Þótt ég persónulega dettur ekkert í hug sem gæti gert daginn leiðinlegri og lengri en að spila bingó.


mbl.is Vantrúaðir spila bingó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert semsagt að segja að mannsfórnir séu hluti af kristni.
Það var enginn myrtur fyrir mig takk fyrir.

DoctorE (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 14:06

2 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi - "Ef einhver vill vera með tilkall um að vera Messías sem Gamla Testamentið spáði fyrir um þá varð hann að deyja á þessum tíma og aðeins Kristur uppfyllti það."

Eins og ég kem að í bloggi mínu í dag, þá dó Jesús alls ekki við krossfestinguna. Hann var svæfður og lifði af.

Að auki má benda á að fæðingarár Jesú er tölvuvert á reiki, þ.e. 6 f.Kr. 4 f.Kr árið 0 og svo 4 e.Kr. og 6 e.Kr.  Krossfestinginarárið er einnig á reiki, þ.e. 29 e.Kr. 31 e.Kr. 34 e.Kr o.s.frv.

Matt, Mark og Lúk hafa krossfestinguna degi á undan krossfestingu Jóhannesar og svona má lengi telja.

Varðandi Daníelsbók 9. kafla þar sem talað er um töluna 7 og 70 sjöundir, þá er hér vissulega um skemmtilegan talnaleik að ræða. En hvers vegna ætti þinn Guð að vera með svona dulspekileg skilaboð til sinnar elskuðu þjóðar, Ísrael?

Er hann í "Gettu betur" leik?

Sigurður Rósant, 21.3.2008 kl. 15:12

3 Smámynd: Mofi

Hafþór
Ég get hugsað mér eitt leiðinlegra en að spila Bingó, og það er að fara í kirkju til að hlusta á messu

Að fara í kirkju ætti að vera að ræða við aðra um trú mál og hlusta á góðann fyrirlestur. Ég hef upplifað fátt leiðinlegra en að fara í messu í þjóðkirkjunni.

Rósant
Eins og ég kem að í bloggi mínu í dag, þá dó Jesús alls ekki við krossfestinguna. Hann var svæfður og lifði af. 

Maður á erfitt með að vita hvort þú ert að meina þessa hluti eða ekki.  Getum við verið sammála um að við getum aðeins valið að trúa því sem okkur þykir trúlegast?  Þú þarna flokkar öll guðspjöllin sem lygi en ég trúi því sem í þeim stendur.  Hvaða heimildir eru það sem þú telur trúlegri og afhverju?

Rósant
Varðandi Daníelsbók 9. kafla þar sem talað er um töluna 7 og 70 sjöundir, þá er hér vissulega um skemmtilegan talnaleik að ræða. En hvers vegna ætti þinn Guð að vera með svona dulspekileg skilaboð til sinnar elskuðu þjóðar, Ísrael?

Það er oftar en ekki að það er eins og Guð vilji að aðeins þeir sem leggja sig eftir að skilja fái skilning og leyfi þeim sem rembast við að misskilja að misskilja.

DoctorE
Þú ert semsagt að segja að mannsfórnir séu hluti af kristni.
Það var enginn myrtur fyrir mig takk fyrir.

Þegar kemur að dómsdegi þá verða allir sem hafa logið, stolið, hatið og verið sekir um illsku teknir af lífi.  Til þess að Guð gæti verið réttlátur og kærleiksríkur þá býður Hann öllum fyrirgefingu en aðeins ef þeir samþykkja þá borgun sem Hann útvegaði.  Sá eini sem gat borgað gjald syndarinnar er sá sem er saklaus.

Mofi, 21.3.2008 kl. 15:47

4 Smámynd: Mofi

Páll, hefur Guð rétt á að dæma?   Ætti Guð að gefa morðingjum, nauðgurum og þjófum eilíft líf og inngöngu inn í himnaríki?

Mofi, 21.3.2008 kl. 17:38

5 Smámynd: Egill Óskarsson

Smá af umburðarlindi[sic] sköpunarsinna: http://scienceblogs.com/pharyngula/2008/03/expelled.php

Egill Óskarsson, 21.3.2008 kl. 18:20

6 Smámynd: Mofi

Egill
Smá af umburðarlindi[sic] sköpunarsinna: http://scienceblogs.com/pharyngula/2008/03/expelled.php

Flutt yfir á blogg sem passar við þetta innlegg, sjá: http://mofi.blog.is/blog/mofi/entry/476818/#comment1191308

Mofi, 21.3.2008 kl. 18:47

7 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Hver er Stefán? *Klórar sér í hausnum*

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 22.3.2008 kl. 02:18

8 identicon

Stefán píslarvottur.

Þú getur lesið um hann hér:

http://www.biblegateway.com/passage/?search=acts%206-11;&version=18;

Postulasagan 6-11

Stefán var kosinn djákni eða einhverskonar aðstoðarmaður postulanna (sjá kafla 6) en var nokkrum köflum síðar myrtur fyrir trú sína af félögum Páls postula (sem kallaðist þá Sál).  Eftir þennan atburð hófust miklar ofsóknir gegn kristnum og þeir dreyfðust um Júdeu og Samaríu. 

Það sem óvinurinn ætlaði til ills varð svo til góðs því þeir sem dreifðust fóru að boða fagnaðarerindið í nýjum heimkynnum og fleiri tóku trú.

Það er reyndar merkilegt að það var sama hvað Páll postuli gerði, hvort sem hann reyndi að tortíma kristnum eða hann reyndi að boða trú, bæði leiddi til til þess að fólk tók trú.

Andri (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 802778

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband