Á ríkið að skipa fyrirtækjum fyrir hvernig þau reka sinn rekstur?

Ég er svo sannarlega hlynntur styttri vinnuviku. Mér finnst eins og núverandi fyrirkomulag er fyrir hendi þá á fólk almennt erfitt með að endurmennta sig eða vinna í sínum eigin verkefnum. Þegar maður vinnur átta tíma á dag, fimm daga vikunnar þá hefur maður ekki orku í mikið meira. En þótt ég sé hlynntur styttri vinnuviku þá er ég ekki hlynntur því að ríkið skipi fyrirtækjum fyrir varðandi þeirra rekstur. Ekki bara að ef ég ætti fyrirtæki þá tel ég að ég sé sá sem viti best hvernig ætti að reka fyrirtækið þá finnst mér þegar ríkið er að skipa fyrirtækjum fyrir þá er það eins og að búa í fangelsi. Ef þú vilt ráða hvernig þú lifir lífinu ( án þess auðvitað að skaða aðra ) þá ætti það að vera prinsip hjá þér að vera á móti ríkisafskiptum eins og hægt er.

Sögulega séð þá höfum við séð hvað gerist þegar ríkið skiptir sér af fyrirtækjum. Stórfurðulegt að þó að fólk vanalega hefur lítið sem ekkert traust á pólitíkusum þá er það alltaf tilbúið að gefa upp frelsi fyrir reglur frá þessum sömu pólitíkusum.

 


mbl.is Píratar vilja stytta vinnuvikuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Menntamálaráðherra mætti t.d. skipa útvarpsstjóra rúv

að hætta að sýna allt sem tengist mótorsporti í rúv sjónvarpi. 

Jón Þórhallsson, 12.5.2018 kl. 15:22

2 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Eða gera enn betur !

Menntamálaráðherra skipar útvarpsstjóra að hætta að sýna fótbolta í RUV.

Þá væri nú fyrst hægt að horfa á RUV !

Birgir Örn Guðjónsson, 13.5.2018 kl. 12:05

3 Smámynd: Mofi

Já, ef maður ímyndar sér hvað heimurinn gæti verið betri ef maður væri einræðisherra þá er auðvelt að falla í þessa gildru. Banna rapp og...  kannski bara byrja þar, ef það væri ekkert rapp til þá væri heimurinn svo miklu betri strax að maður þyrfti að sjá til hvort það þyrfti eitthvað meira.

Mofi, 14.5.2018 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 802782

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband