Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Eru takmörk fyrir hvað stökkbreytingar geta afrekað?

Í dag þá er eins og fólk hefur frekar óraunhæfar hugmyndir um stökkbreytingar. Sumar þeirra koma frá myndum eins og X-Men eða þáttum eins og Heroes. Aðrar þeirra koma frá Þróunarkenningunni þar sem stökkbreytingar og náttúruval breytti bakteríum í fólk.  En hvað segja rannsóknir okkar á stökkbreytingum um getu þeirra til að búa eitthvað til?  Í stuttu máli sagt, lítið sem ekkert.  Í löngu máli þá er hérna viðtal við Michael Behe um akkúrat þetta efni.

 

 

mbl.is Ebóluveiran að stökkbreytast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ísrael tilraun til annarar helfarar?

Stundum þegar ég les fréttir af Ísrael Palestínu málinu þá vaknar upp þessi spurning upp hjá mér "Er Ísrael tilraun til annarrar helfarar".  Það sem ég á við með því er að ef einhver vill útrýma gyðingum þá er það mjög erfitt á meðan þeir eru dreifðir út um allan heiminn. Hvað væri sniðugra en að búa til stað þar sem þeir koma allir saman. Búa til stað sem síðan þú býrð til endalausan áróður fyrir hvað þeir eru vondir samanber Ísrael Palestínu rógherferðin.  Þannig ertu með fullkomin skilyrði til að útrýma langflestum gyðingum í einu öflugi stríði.

Sumir líklegast hugsa, það er enginn svo vondur en ég þekki persónulega fólk sem er svo blekkt af einhverjum áróðri á netinu að það vill útrýmingu gyðinga. Persónulega vildi ég helst sjá að það fólk auglýst sem nasista viðbjóðir og vera kastað út af samfélaginu í algjörri fyrirlitningu. Þá vaknar upp spurningin, er maður sekur um mann fyrirlitningu af því að maður fyrirlítur fólk sem vill útrýma öðru fólki; mitt svar er nei.

En hvað með að Ísrael er með öflugan her?  Ísrael á vini og sem betur fer er Ísrael með þó nokkuð öflugan her annars væri löngu búið að útrýma þeim.

Þetta eru svo sem bara vangaveltur og ég hallast helst að einni kenningunni sem segir að Ísrael hafi verið plantað þarna meðal arabana til að kveikja þriðju heimstyrjöldina. Tæla araba til að ráðast á Ísrael og tæla Evrópu og Bandaríkin að blanda sér í þau átök og búa þannig til stríð milli araba og vesturveldanna. Því miður hjálpa spádómar Biblíunnar ekki mér hérna svo þetta eru allt bara mínar persónulegar vangaveltur.


mbl.is Engin þýsk sjálfsmynd án Auschwitz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er fólk á Íslandi sem vill aðra helför

holocaust-a-mother-tries-to-save-her-childÞað kann að virka ótrúleg fyrir suma að heyra að það er til fólk á Íslandi sem telur að helförin í seinni heimstyröldinni var af hinu góða og það vantar bara eina í viðbót til að klára það sem Hitler byrjaði á.  Ég þekki fleiri en einn sem hafa þessa hugmynd; ekki lengur vinir mínir eftir að ég komst að þessu enda enginn möguleiki fyrir mig að vera vinur slíkra illmenna. Persónulega finnst mér að það eigi að loka slíkt fólk inni og aldrei hleypa því aftur út, reyna sitt besta að gleyma að það er til.

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að mér finnst ástandið í Palestínu ógnandi, ég sé fyrir mér undirbúning fyrir aðra helför og gífurlegan áróður til að réttlæta hana.


mbl.is Telur það skyldu sína að segja frá útrýmingarbúðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Churchill las Mein Kampf

401598Það eru áhugaverðar greinar um Churchill í dag eins og t.d. þessi: Churchill: As good as we think?  Forvitnilegt að lesa um hans mistök og hans sigra.  Eitt af því sem ég rak augun í var þessi athugasemd hérna:

Bill, Glasgow, Scotland
Churchill was unquestionably a national saviour, without whom we would perhaps even now be part of the Nazi empire. He was one of the few politicians who had troubled to read Mein Kampf and understood Hitler's true intentions. He tirelessly warned of the need to stand up to Hitler.
By force of personality he cajoled firstly the King and Parliament, and then the people as a whole, to do just that at enormous cost. The world is a better place for being rid of Hitler and Churchill, whatever his faults, was the leader who led while others succumbed.

Það sem mér finnst áhugavert hérna er að sá sem skrifar þessa athugasemd skilur tenginguna milli hugmyndafræði og gjörða. Samkvæmt honum þá las Churchill bók Hitler's "Mein Kampf" og skildi hans raunverulega áætlanir. Þetta er lexía sem stjórnmálamenn í dag þurfa að læra, helst af sögunni frekar en reynslunni okkar allra vegna.

Ein síðan góð tilvitnun í Churchill, hvaða álit sem fólk hefur á honum þá hljóta allir að vera sammála um það að hann var mælskur.

Winston Churchill
A pessimist sees the difficulty in every opportunity; an optimist sees the opportunity in every difficulty.


 


mbl.is Churchill „besti forsætisráðherra“ Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúin betri en einstaklingarnir sem henni fylgja

Því miður þá eru kristnir út um heim allan að láta Jesú líta illa út vegna þess sem þeir segja og gera.  Því miður er ég ekki undantekning á því en allt of oft þá reiðist ég því sem ég upplifi óheiðarleika eða viljandi heimsku en í staðinn fyrir að hafa ráðleggingar Biblíunnar að leiðarljósi þá tekur mannlega eðlið yfir og maður segir eitthvað ljót.

Aftur og aftur þá sé ég hvernig trúin er miklu betri en ég sem lætur rök þeirra sem vilja að Biblían sé ekki skilin bókstaflega hljóma frekar illa.

Efesusbréfið 4:29
Látið ekkert fúkyrði líða ykkur af munni heldur það eitt sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gerist, til þess að það verði til góðs þeim sem heyra. 30Hryggið ekki Guðs heilaga anda sem þið eruð innsigluð með til endurlausnardagsins. 31Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt ykkur og alla mannvonsku yfirleitt. 32Verið góðviljuð hvert við annað, miskunnsöm, fús til að fyrirgefa hvert öðru eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið ykkur.

 


mbl.is Las upp úr „kristilegum kærleik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okkar samviska segir til um tilvist Guðs

Alltaf þegar við segjum að eitthvað sé rangt þá erum við að staðfesta að það er eitthvað í þessum heimi sem er raunverulega rangt.  En hvað segir það um tilvist Guðs?  Ef að Guð er ekki til, ef að tilviljanir og baráttan til að lifa af er það sem bjó mannkynið til þá er ekkert raunverulega rétt eða rangt.  Fyrir neðan er myndband sem útskýrir þetta mjög vel.

 


mbl.is Álit um Hönnu Birnu kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru engin takmörk á illsku mannsins?

deadbaby19n-4-webMaður situr bara hljóður þegar maður les svona fréttir.  Við þetta bætist konan sem var drepin þegar hún var að færa barn í fjöldamorðum Boko Haram. Við að lesa fréttir í aðeins nokkra daga þá ætti það að vera öllum ljóst að aðal orsök voðaverka er illska mannsins. Við höfum fengið nasa sjón hvað gerist þegar heilu samfélögin hafna Guði og treysta á kærleika manna eða hugmyndafræði manna en það var á síðustu öld undir stjórn Stalíns, Maó og Pol Pott. Ef einhver heldur að næsta skipti, þegar samfélag verður guðlaust að þá verði það betri, þeir ætla ekki að læra af lexíum sögunnar en þetta er það sem margir vilja og þeir munu án efa uppskera svipað og menn uppskáru á síðustu öld.


mbl.is Kveikti í hvítvoðungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig brást Múhameð við móðgunum?

Það er ánægjulegt þegar múslími afneitar ofbeldi og styður trú og tjáningarfrelsi en... að gera það og segjast vera að gera það vegna fordæmis Múhameðs eru annað hvort lygar eða fáfræði um ævi Múhameðs. 

Hérna er farið yfir sögu Múhameðs að því er viðkemur þeim sem gerðu grín að honum og hvernig Múhameð brást við: Insulting and threatening Jesus and Muhammad 

Ég vil auðvitað að friðsamir múslímar afneiti trúnni þegar þeir átta sig á því að Múhameð var grimmur stríðsherra en ég skil vel að slíkt er erfitt þar sem afstaða meirihluta múslíma er að þeir sem yfirgefa trúna eigi að vera drepnir, sjá: Majorities of Muslims in Egypt and Pakistan support the death penalty for leaving Islam

 


mbl.is Hafa ekki næga þekkingu á trúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað sagði Múhameð að ætti að gera við þá sem móðga Íslam?

Ég einfaldlega veit ekki betur en þetta er það sem Múhameð sagði og gerði: http://www.thereligionofpeace.com/Quran/016-insulters-islam.htm

Ef þetta er ekki það sem Múhameð sagði og gerði þá hefði ég gaman að sjá gögn sem styðja það. 


mbl.is Voðaverkin ekki á ábyrgð múslíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 802783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband