Bloggfærslur mánaðarins, september 2014

Illska í Biblíunni?

revenge_1246745.jpgÍ spjalli við Aztec þá kom upp sú fullyrðing að Biblían er full af hræðilegum hlutum, svona orðrar Aztec þetta:

Aztec
Ég hef nú farið á netið og leitað að þessum köflum í Gamla testamentinu. Og tilvitnanirnar í athugasemdum mínum voru réttar. Saklaust fólk er drepið unnvörpum, hreinum meyjum nauðgað, hús rústuð eða brennd til ösku, litlum börnum stútað af þjónum Guðs, ýmist í hans nafni, skv. eiði til hans eða eftir skipun frá honum. Gamla testamentið er sannarlega einn blóðugasti glæpareyfari allra tíma! 

Svo, áður en ég glími við sérhvert atriði þá vil ég útskýra þær forsendu sem ég gef mér.  

Þar sem Guð er almáttugur þá sér Hann stóru myndina. Hann veit hvað er rétt að gera í hvaða stöðu, Hann þekkir hjörtu þeirra sem Hann er að glíma við.  Þar sem Hans takmark er að sem flestir glatist ekki heldur öðlist eilíft líf þá getur margt virkað skrítið í augum þeirra sem líta á þessi örfá ár sem við höfum hérna vera aðal atriðið. Á meðan í augum Guðs þá munar voðalega litlu hvort einhver lifir tíu árum styttra eða lengra í lífi sem er engan veginn gott í Hans augum. Þegar einhver deyr á þessari jörð þá er það aðeins stuttur svefn þangað til allir verða reistir upp til eilífs lífs eða dóms.

Guð refsar Davíð og þjóðinni fyrir það sem þeirra leiðtogi gerði. Ég einfaldlega treysti að það sem Guð gerði leiddi til góðs og þeir sem dóu munu mjög líklega öðlast eilíft líf:

2. Pétursbréf 3:9
The Lord is not slow in keeping his promise, as some understand slowness. Instead he is patient with you, not wanting anyone to perish, but everyone to come to repentance. 

Aztec
https://www.biblegateway.com/passage/?search=Deuteronomy%203 

https://www.biblegateway.com/passage/?search=Joshua%206

Ég sé lítið að því að Guð refsi þjóðum sem eru sekar um mikla illsku. Sumir líklegast eru ekki sáttir við að konur og börn eru þar á meðal en í fyrsta lagi eru konurnar mjög líklega með sama hugarfarið sem Guð var að ráðast gegn og ég veit ekki hvort það væri eitthvað góðverk að dæma þessi börn til lífs þar sem þau hefðu engan til að hugsa um þau og þeirra líf myndi líklegast snúast um að hefna foreldra sinna.

Biblían segir oft frá voðaverkum fólks, segir frá því t.d. þegar Davíð hélt fram hjá og síðan drap til að fela glæpinn. Það er ekki hið sama og að segja að slíkt sé góð hegðun

Hérna er um að ræða stríð milli þeirra sem fylgja Baal og þeirra sem fylgja Jehóva. Þeir sem fylgdu Baal voru búnir að drepa presta Jehóva og að halda því áfram var þeirra vilji og ég sé ekkert að því að fara í stríð gagnvart þeim sem eru að reyna að útrýma þér.

Það eru mjög góðar ástæður til að álykta að Jefta brenndi ekki dóttur sína á báli. Í fyrsta lagi þá er Biblían alveg skýr að það er Guði viðurstyggð að fórna fólki ( 3. Mósebók 18:21; 20:2-5; 5. Mósebók 12:31; 18:10 )

Það væri mjög fáránlegt að láta Jefta bjóða Guði eitthvað sem Guð var búinn að segja að væri hræðilegt.  Það eru dæmi þar sem móðir gaf son sinn til Guðs eða "fórna" honum en það þýddi að sonurinn átti að þjóna í musteri Guðs en ekki að vera brenndur á báli. 

Ef að þetta var síðan mannfórn þá kemur það hvergi fram í textanum að Guði líkaði þetta.

Það sem síðan dóttirin harmaði var að hún myndi aldrei vera með manni en ekki að hún ætti að deyja sem passar við að hún átti að þjóna Guði.

Þetta er spádómur um hvað myndi gerast fyrir Babýlón vegna þeirra glæpa. Orðalagið er eins og Guð mun gera þetta en minn skilningur er að þetta er frekar hvað Guð leifir að aðrir gera við þjóðina enda tekur spádómurinn fram að það eru Medar sem munu framkvæma þetta.

Þetta er sorgar sálmur þar sem skáldið er að harma hið illa sem Babýlon hafði gert við Ísrael og vill hefnd. Þetta er ekki hið sama og að, að hefna sín sé í lagi.

Romans 12:19 
Beloved, never avenge yourselves, but leave it to the wrath of God, for it is written, “Vengeance is mine, I will repay, says the Lord.”  

 
Romans 12:17-21
Repay no one evil for evil, but give thought to do what is honorable in the sight of all. If possible, so far as it depends on you, live peaceably with all. Beloved, never avenge yourselves, but leave it to the wrath of God, for it is written, “Vengeance is mine, I will repay, says the Lord.” To the contrary, “if your enemy is hungry, feed him; if he is thirsty, give him something to drink; for by so doing you will heap burning coals on his head.” Do not be overcome by evil, but overcome evil with good.

Mark 11:25 
And whenever you stand praying, forgive, if you have anything against anyone, so that your Father also who is in heaven may forgive you your trespasses.”

Maður verður að gera greinarmun á milli þess sem fólk segir, fólk upplifir eða sögur af því sem fólk gerði og síðan hvað Biblían segir að við eigum að gera.  Biblían væri virkilega gagnslaus bók ef hún fjallaði ekkert um mannkynssöguna, fjallaði ekkert um hið illa sem fólk hefur gert og hvaða lexíur við getum lært af því. 

 

 

 


Fer það ekki eftir hvað trúin boðar?

Fáfrótt fólk virðist halda að öll trúarbrögð í kjarnanum snúist um náungakærleika, gera öðrum gott og trúa að Guð sé til.  Víkingarnir til forna litu á það sem sína skyldu að hefna og að deyja í bardaga var lykillinn að þeirra himnaríki. Þannig trú mun án nokkurs efa ýta fólki til að gera hræðilega hluti.  Ef menn trúa því að ef að dóttir þeirra hegðar sér ekki samkvæmt þeirra vilja þá vanheiðri hún fjölskylduna og eina leiðin til að verja heiður fjölskyldunnar er að drepa dótturina, þá mun slík trú leiða af sér eitt af því hræðilegasta sem ég get ímyndað mér, feður og bræður að myrða sínar dætur og systur.

Punkturinn er að það skiptir máli hver trúin er og sumir eru ekkert að misnota trúna, stundum er raunverulega vandamálið að sjálf trúin er hryllingur. 


mbl.is Páfinn segir öfgamenn misnota trú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæðan sem Guð skapaði handa okkur

Alveg strax í upphafi Biblíunnar er að finna þetta vers:

1. Mósebók 1:29
Og Guð sagði: „Nú gef ég ykkur allar sáðjurtir jarðarinnar og öll aldintré sem bera ávöxt með fræi. Þau skulu vera ykkur til fæðu.

Þetta var maturinn sem Guð hannaði handa okkur.  Jafnvel ef menn eru svo vitlausir að trúa þróunarkenningunni þá er sirka 70% af fæðu apa ávextir svo hvernig maður lítur á þetta þá ættu ávextir að vera okkar aðal fæða.

Hérna er höfundur bókarinnar að útskýra þetta:


mbl.is Borðaði tíu banana í morgunmat á meðgöngunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju sumar grænmetisætur lifa ekki lengur en kjötætur

fruitsandveggies.jpgVá hvað þetta er ljótur titill á bloggi en vonandi fælir það ekki fólk frá því að fyrirlesturinn sem ég er að benda á hérna því ég trúi því að hann getur bætt líf þitt og lengt það um fjöl mörg ár.  Fyrirlesarinn fer yfir þau mistök sem margar grænmetisætur gera.  Þessi mistök gera það að verkum að hjartaáföll og aðrir bannvænir sjúkdómar eru jafn algengir meðal þeirra og þeirra sem borða kjöt.

 

Fyrir þá sem vilja bara þetta í skyndibita formi þá er hérna listinn sem maður á að gera:

  • Gerast grænmetisæta.
  • Vera viss um að fá góðan skammt af ávöxtum á hverjum degi.
  • Borða tvær skeiðar af hörfæum á hverjum degi til að fá góðan skammt af Omega 3.
  • Fá reglulega skammt af B-12 vítamíni. 
  • Fá sitt D vítamín.
  • Borða smá skammt af hnetum reglulega.
  • Forðast unna matvöru.
  • Forðast að steikja mat í olíu.

mbl.is Allir megrunarkúrar keimlíkir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þróunarkenningunni að kenna

Sumum finnst að ég kenni þróunarkenningunni um of margt og án efa finnst mörgum þetta vera allt of langsótt en, ég er ósammála.  Ef menn hafa engan grun fyrir að það sé til raunverulegt rétt og rangt þá auðvitað munu margir komast að þeirri niðurstöðu að það sé í lagi að stela.  Þeirra samviska gæti angrað þá eitthvað en þeir þagga niður í henni með því að sannfæra sig um að þetta sé í lagi út frá þeirri trú að það sé í rauninni ekkert raunverulegt rétt eða rangt.

Auðvitað hefur alltaf verið til óheiðarlegt fólk en stóra spurningin er hvort að þeirra trú hafi ýtt undir þá trú að það sé rangt að stela eða hvort að þeirra trú hafi réttlætt þjófnað.  Til dæmis á tímum víkingana þá var trúin að það var rétt að hefna sín jafnvel með því að myrða einhvern en í dag er sú trú sem betur fer sjaldséð.  Menn geta ekki haldið að það hafi engar afleiðingar að heilt samfélag trúi því að rétt og rangt sé ímyndun af því að tilviljanir og náttúrulegir ferlar bjuggu okkur til.


mbl.is Stolið úr búðum fyrir fimm milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 802756

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband