Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2014

Hverju trúa venjulegir múslímar?

 


mbl.is Vopnahlé framlengt á Gaza
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Það sem þú þarft að gera til að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma

Áhugaverður fyrirlestur sem var haldinn í Suðurhlíðaskóla þar sem Don Miller fjallaði um hjartasjúkdóma og hvað við getum gert til að koma í veg fyrir þá.

 

 

10553404_10154564108590314_7344358052746193333_n_1244071.jpg


mbl.is Ótímabær dauðsföll eru óásættanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er hægt að laga sjónina með æfingum

eyes.jpgFyrir nokkru síðan þá rakst ég á bók sem hélt því fram að maður gæti lagað sjónina með því aðeins að gera augnæfingar.  Að ástæðan fyrir lang flestum vandræðum með sjónina væri vegna þess að við notum þau rangt, erum með ranga siði og síðan æfum aldrei augun en augun stjórnast af vöðvum.

Ég er núna búinn að upplifa þetta á eigin skinni, þetta er virkar mjög vel og ég mæli með því að fólk skoði þetta og gefi þessu nokkra mánuði áður en það fer í rándýrir aðgerðir sem gætu skemmt sjónina.

Hérna er eitt svona dæmi um prógramm sem kennir hvernig maður getur bætt sjónina: http://www.rebuildyourvision.com/blog/rebuild-your-vision-program-tips/how-to-improve-your-eyesight-naturally-and-fast/ 

Það er líklegast best að taka fram hið augljósa að auðvitað tel ég ekki að allir geta lagað alla þá kvilla sem geta verið að hrjá þá þegar við kemur augunum.


mbl.is Mörg þúsund láta laga í sér sjónina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berstu fyrir mannréttindu eða hatar þú bara Ísrael?

screen-shot-2014-08-10-at-4_13_55-pm.pngÉg rakst á beitta tilvitnun um daginn sem mér fannst virkilega komast að kjarnanum í því sem mér finnst vera að í umfjöllun fjölmiðla og viðbrögð almennings síðustu daga.

“If in the past year you didn’t CRY OUT when thousands of protesters were killed and injured by Turkey, Egypt and Libya, when more victims than ever were hanged by Iran, women and children in Afghanistan were bombed, whole communities were massacred in South Sudan, 1800 Palestinians were starved and murdered by Assad in Syria, hundreds in Pakistan were killed by jihadist terror attacks, 10,000 Iraqis were killed by terrorists, villagers were slaughtered in Nigeria, but you ONLY cry out for GAZA, then you are not pro HUMAN RIGHTS, you are only ANTI-ISRAEL.”

 — Hillel Neuer, Executive Director of UN Watch, July 15, 2014

Sífelt algengara verða núna raddirnar sem segja að Hitler hefði átt að klára verkið og vonandi kemur annar Hitler sem getur útrýmt þessum hræðilegu gyðingum.  Einn vinur minn, sem er núna fyrrverandi vinur sagði þetta við mig um helgina.  Við lifum í heimi þar sem lygar drjúpa af hverju strái og ég get ekki neitað því að það er erfitt að vita hverjum maður á að trúa.


mbl.is Grófu fólk lifandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers konar fólk býr í Ísrael?

Ég hef rekist á töluvert hatur á gyðingum undanfarna daga. Auðvitað hryllir eðlilegu fólki við dauðsföllum á Gaza og ég fyrir mitt leiti er á móti því að Ísrael svari svona fyrir sig því ég tel að þetta sé aðallega áróðursstríð og Ísrael er að tapa því með því að láta Hamas spila svona með sig.

En hvers konar fólk býr í Ísrael?  Fyrst ber að nefna að ein og hálf miljón Araba býr sem venjulegir borgarar Ísraels með kosningarétt. Arabar sem búa við lýðræði, hafa tjáningarfrelsi og trúfrelsi þótt það væri samt stór hættulegt af þeim að hafna Islam vegna annarra múslíma.  Þetta fólk lifir í Ísrael og sumir eru dómarar, sumir eru þingmenn, sumir eru í lögreglunni og enn aðrir í hernum.  Gyðingar mega ekki einu sinni ferðast um Arabaheiminn. 

Hérna er stutt myndband yfir það sem Ísrael hefur lagt af mörkum til okkar nútíma samfélags og hvað einhver þyrfti að gera ef hann ætlaði að ekki nota neinar vörur frá Ísrael.

 


mbl.is Semja ekki meðan árásir halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúrulega rökvilla

Að benda á að samkynhneigð finnst í náttúrunni og þar af leiðandi er hún náttúruleg og rétt er rökvilla.  Ástæðan er sú að við finnum margt í náttúrunni sem við erum flest öll sammála um að sé rangt. Við finnum dýr sem borða sín eigin afkvæmi, morð og nauðganir.  Þýðir það að það sé ekkert að því að gera slíka hluti?  Augljóslega ekki.

Ef við gerum ráð fyrir að Þróunarkenningin sé rétt þá ætti samkynhneigð að deyja út frekar fljótlega þar sem að samkvæmt kenningunni þá erum við að dansa samkvæmt okkar DNA. Við erum bara vélar sem DNA notar til að margfalda sig.  Samkynhneigðir einstaklingar sem halda sig við aðeins sama kyn þeir eignast engin afkvæmi svo samkynhneigð ætti að deyja út frekar hratt ef Þróunarkenningin er rétt.


mbl.is Samkynhneigð í náttúrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 802776

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband