Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Sjúkdómar vegna mjólkurneyslu

Eina sem ég skil það er erfitt að hætta að borða súkkulaði og ost en...restin af mjólkurvörum er eitthvað sem ætti ekki að vera neitt mál fyrir fólk að hætta að borða. Hérna er stutt myndband yfir hvaða sjúkdómar við höfum tengt við mjólkurneyslu.

 

Enn lengri fyrirlestur um hvaða sjúkdómar mjólkurvörur geta orsakað


mbl.is Þurfa að fjölga mjólkurkúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarneðlisfræðingur fjallar um sína trú á Biblíulega sköpun

Því miður er ég of latur til að þýða alla greinina sem er viðtal við mann sem er kjarneðlisfræðingur þar sem hann útskýrir af hverju hann trúir á sköpun en ekki Þróunarkenninguna. 

Hann heitir Brandon van der Ventel og hefur gefið út fjölda vísindagreina í ritrýndum tímaritum og vinnur sem prófessor við Stellenbosch University í Suður Afríku. Hann fjallar um margt í þessu viðtali eins og t.d. hvernig hin kristna trú er ekki blind trú þar sem hún byggist á sögulegum atburðum og miklu fleira.  Hann fjallar um hvernig kristni byggist á 1.Mósebók og mikilvægi þess að taka hana á orðinu.  Hann fjallar einnig um geislaefna aldursgreiningar og af hverju hann tekur þær ekki alvarlega. 

Hérna er greinin: Nuclear physicist embraces biblical creation


Kannski hjálpar þetta?

Ég er á því að flesta af okkar vandamálum leysast ef við borðum holt og hreyfum okkur, en í mínum augum, að borða holt er að borða aðalega ávexti og grænmeti. Hérna er samt eitthvað sem gæti létt lund einhverra :)


mbl.is Yfir 10% þjóðarinnar á þunglyndislyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins nasasjón af því sem syndaflóðið hefur verið

Það sem fæstir virðast skilja varðandi syndaflóð Biblíunnar er að það voru hamfarir á algjörlega óþekktri stærðargráðu miðað við allt sem við þekkjum. Til dæmis eru sumir að leita í setlögunum að ummerkjum um flóð Biblíunnar en málið er að lang flest setlög jarðarinnar voru mynduð af flóðinu en flestir vonandi vita að öll setlög mynduðust í vatni eða þegar jarðvegur blandaðist við vatn.

Hérna fyrir neðan er myndband af áhrifum flóðbylgju.

Hérna er svo fyrirlestur um hvernig það sem við finnum í dag í jarðfræðinni passar við sögu Biblíunnar.


mbl.is Aldan braut niður hús á örskömmum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað hvernig ein Aðvent kirkja slapp ósködduð frá fellibylinum

1456071_543840232366623_1480714280_n.jpgÞað er eins og Guð hafi verndað þessa kirkju til þessa að geta þjónað í hörmungunum og kannski líka áminning að Guð verndar þig ekki nema þú biðjir um verndun. Enn frekar að þegar kemur að hinu eilífa lífi, þá veitir Guð aðeins þeim eilíft líf sem biðja um eilíft líf.

Enn frekari umfjöllun um þetta hérna: https://www.facebook.com/dougbatchelor

ADRA ( hjálpar aðventista ) er byrjað með hjálparstarf til Filippseyja og þeir sem vilja styrkja það geta gert það hérna:  http://www.adra.ph/donate


mbl.is Streyma til Filippseyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þeir sem eru á móti dauðarefsingum, fylgjandi fóstureyðingum?

unbornÞetta er bara spurning, ég veit ekki svarið.  Ég þekki fólk sem er einmitt hlynnt fóstureyðingum en síðan á móti dauðarefsingum og... mér finnst það dáldið klikkað.  Vera á þeirri skoðun að barn sem hefur ekki gert neitt rangt, að vilja drepa það en síðan maður eða kona sem hefur valið að gera eitthvað svo rangt, eins og að drepa aðra manneskju að það sé ekki réttlætanlegt að taka þann aðila af lífi.

Mér finnst þetta alveg glórulaust og alveg laust við eitthvað sem mætti kalla réttlátt eða kærleiksríkt.


mbl.is Tveir teknir af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 802781

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband