Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Ofsókna saga Kaþólsku kirkjunnar

Vegna ýmissa umræðna hérna um Kaþólsku kirkjuna þá langar mig að benda á síðu sem fjallar um þær ofsóknir sem hún stóð fyrir í gegnum aldirnar.  Kaþólikkar eiga í miklum vandræðum að sópa þessu undir teppið með því að segja að innan kirkjunnar voru af og til vondir menn því að þeirra eigin trú segir að páfinn sé óskeikull talsmaður Jesú á þessari jörð svo ef páfar til forna gerðu þessa hluti þá er eitthvað mikið að.

Þetta er aðeins það sem ég tel mig vita að sé rétt og fátt væri þægilegra en að fá að vita að þetta er allt ósatt.  Það er alls ekki að ég telji að fólk sem tilheyrir Kaþólsku kirkjunni eins og Jón Valur og Magnús Ingi sé slæmt fólk; ég tel að stofnunin sjálf hafi slæma sögu og hafi slæmar kenningar og að gott kristið fólk ætti ekki að tilheyra þessari stofnun.

Síðuna er að finna hérna: http://www.teachinghearts.org/dre04historynotes.html#papalpersecutions


Hvar fengu sjávar "anemones" mennsk gen?

Sea anemone at the Monterey Bay AquariumLangaði að benda á skemmtilegt blogg hjá William Demski þar sem fjallað er um rannsókn sem sýndi að "anemones" hefði ótrúlega flókin gen og mörg þeirra eins og þau væru mörg hver mjög lík genum manna.  Þeir sem vita íslenska heitið á "anemones" endilega látið mig vita.

Hérna er blogg færslan: http://www.uncommondescent.com/intelligent-design/where-did-sea-anemones-get-human-genes/

Blogg greinin fer vel yfir afhverju þetta passar engann veginn við darwinisma svo fróðleiksfúsir endilega kíkið á hana og segið mér hvað ykkur finnst.

Ég aftur á móti er að fara í stutt ferðalag og kem aftur eftir einn eða tvö daga.


Hollywood vaknar til varnar gegn hugsunarkúgun darwinismans

Í gegnum áratugina þá hefur Hollywood heilaþvegið kynslóð eftir kynslóð með Darwinisma. Ótrúlega margar myndir frá Hollywood eru gegnsýrðar af hugmyndum Darwins. Myndir eins og X-men, Spiderman, Jurasic Park, Superman og ótal fleiri.  Það er þess vegna mikið tilhlökkunarefni að það er mynd að koma út frá Hollywood sem ætlar að gagnrýna það að það má ekki gagnrýna Darwinisma.

Hérna er trailer af myndinni:  http://www.expelledthemovie.com/playground.php


Hver hannaði hönnuðinn? Hver skapaði Guð?

Stundum getur nýr vinkill á ákveðnu máli algjörlega breytt hvernig maður sér ákveðið umræðuefni. Einn af þannig vinklum eða hugsun gæti fyrir marga verið sú að tíminn á sér upphaf þegar alheimurinn varð til.  Fyrir það ef hægt er að tala um fyrir í þessu samhengi, þá var tíminn ekki til. Það sem þetta þýðir er að það sem orsökaði alheiminn gat ekki haft orsök því að til að eitthvað gæti orsakað eitthvað þá þarftu tíma. Til að eitthvað orsaki alheiminn þá þarf það að vera á tímalínu alheimsins en tíminn var ekki til áður en alheimurinn varð til.  Má í rauninni ekki nota orðið "áður" því það gefur til kynna að tíminn var til. 

Þannig að spurningin hver hannaði hönnuðinn á ekki við þegar kemur að alheimnum sjálfum því að hönnuðurinn verður að vera eilífur eða "Þá sagði Guð við Móse: Ég er sá, sem ég er". Meira um þessa merkilegu setningu hérna: http://en.wikipedia.org/wiki/I_am_that_I_am

Þetta gæti ruglað einhverja í ríminu, ruglaði mig töluvert, en með smá tíma... og íhugun þá ætti þetta allt að skýrast.


Þakklæti gott heilsunni

Rannsókn í "new science of gratitude" sýndi að þakklæti er góð heilsubót.  Vísindamenn við  UC Davis og "Mississippi University for Women" fylgdist með 12 kvenkyns sjúklingum sem héldu dagbók af þeirra dvöl á spítalanum.  Einn stýrihópur átti aðeins að skrá niður hvaða áhrif lyfin hefðu og hvernig þeim leið yfirhöfuð, hvernig þeim líkaði meðferðin og þess háttar.  Hinn hópurinn átti að skrifa um hið sama en áttu líka að segja frá fimm atriðum sem þau voru þakklát fyrir.

Eftir 21 dag þá hafði heilsu hópsins sem fékk spurningarnar um þakklæti batnað mælanlega.  Fréttin um þetta hérna: http://www.news.ucdavis.edu/search/news_detail.lasso?id=8288

Biblían er full af ábendingum um að við eigum að vera þakklát, sjá 1 Þessalóníku bréf 5, Fillipibréfið 4 og Kólossusbréfið 3.  Við höfum svo margt til að vera þakklát fyrir, sérstaklega við hérna á okkar friðsama velmegunarlandi.  Verðum að muna að hver dagur er gjöf frá Guði sem enginn okkar á skilið en fáum samt. Það sem við eigum skilið er dóm fyrir okkar verk, öll okkar brot á lögum Guðs, boðorðunum tíu.


Smá böggur hjá NASA, 1998 ekki lengur heitasta ár sögunnar heldur 1938

Ekki nóg með það heldur öll árin á tuttugustu og fyrstu öldinni ekki lengur á topp tíu listanum.  Það sem mér finnst aðalega merkilegast er hve mikið fjaðrafok myndast þegar eitthvað styður uppáhalds gæludýra hugmyndir einhverra manna, en síðan þegar það reynist vera vitleysa þá láta allir eins og ekkert sé. 

Langaði aðeins að benda á þetta en hérna er skemmtilegur pistill sem fjallar um þetta áhugaverða mál: 

http://www.ocregister.com/opinion/american-iraq-data-1804986-year-america


Að gagnrýna Darwin er alríkisglæpur!

Fyrir ekki svo löngu þá birtist frétt hérna á mbl þar sem sagt var frá því að nú mátti aftur kenna Darwin í skólastofum í Bandaríkjunum, nánar tekið í Dover.  Sannleikurinn er aftur á móti sá að dómstólar bönnuðu að Darwin væri gagnrýndur.  Skólanefndin þar og í fleiri stöðum vildu leyfa gagnrýni á hugmyndir Darwins en dómstólar komu í veg fyrir það með ACLU í fararbroddi.

Svo staðan í dag er að það er alríkisglæpur að gagnrýna Darwin í skólastofum í mörgum fylkjum Bandaríkjanna.

Maður getur ekki annað en spurt sig afhverju fréttamiðlar segja svona rangt frá og að mínu mati er það frekar ógnvekjandi. Í hvaða fleiri atriðum eru við að fá fréttir sem eru brenglaðar vegna þess að einhverjir eiga hagsmuni að gæta?  Minnir mig á lyga myndina "inherit the wind" þar sem Scopes réttarhöldin er snúið á haus og kristið fólk látið lýta út fyrir að vera geðsjúklingar.  Meira um það hérna: http://www.answersingenesis.org/creation/v19/i1/scopes.asp

Meira um dómstólana í Dover: http://www.evolutionnews.org/2007/08/questioning_darwins_theory_in.html#more


Afhverju Biblían er einstök

Flest fólk hefur mismunandi skoðanir á þessari bók, Biblíunni. Sumir segja "ha, lestu virkilega Biblíuna?" með blöndu af hæðni og undrun.  Aðrir segja stoltir að þeir eiga eintak af henni og hún er þarna meðal annara klassísku bóka eins og Hómers Odyssey og Rómeó og Júlíu eftir Shakespear.  Sumir hæða Biblíuna og það hefur líklegast aldrei verið meira um það hérna á Íslandi en í dag. Að lesa hana og hvað þá trúa henni er að mati þessa fólks merki um fáfræði og einfeldni.

Að mínu mati er Biblían einstök bók, bók bókanna. Hún ætti ekki að vera við hliðina á öðrum merkum bókmenntaritum hún ætti að hafa eina hillu út af fyrir sig fyrir ofan allar aðrar bækur. Prófessor að nafni M. Moniero-Williams orðaði þetta skemmtilega eftir að hafa rannsakað Biblíuna og önnur austræn forn rit þá sagði hann: "Pile them, if you will on the left side of your study table; but place your own Holy Bible on the right side-all by itself, all alone-and with a wide gap between it and the so-called sacred books of the East which severs the one from the other utterly, hopelessly and forever... a veritable gulf which cannot be bridged over by any science of religious thought."

Biblían er einstök að því leiti að hún var skrifuð yfir mjög langt tímabil eða eitt þúsund og fimmhundruð ár.

Skrifuð af fleirum en 40 höfundum frá öllum stigum þjóðfélagsins eins og kongar, bændur, hermenn, heimspekingar, skáld, fjárhirðar og fiskimenn.  Smá dæmi um höfunda:

  • Móse, þjóðleiðtogi og lærður dómari frá Egyptalandi sem skrifaði sín rit í kringum 1500 f.kr.
  • Jósúa, herforingi sem skrifaði Jósúa bók um 1400 f.kr.
  • Davíð konungur, skáld og hermaður. Skrifaði sálmanna um 1000 f.kr.
  • Nehemía, þjón heiðins konungs. Skrifaði sitt rit um 440 f.kr.
  • Amos, fjárhirðir.  Skrifaði sitt rit um 750 f.kr.
  • Daníel, forsetisráðherra í Babelón í kringum 540 f.kr.
  • Lúkas, læknir og sagnfræðingur í kringum 60-70 e.kr.
  • Pétur, fiskimaður í kringum 60-70 e.kr.
  • Páll, gyðinga rabbí í kringum 50-70 e.kr.

Skrifuð á mismunandi stöðum, Móse skrifaði í eyðimörkinni. Jeremía í dýflisu, Daníel í konungshöll, Páll í fangelsi og Jóhannes í útlegð á eyjunni Patmos.

Skrifuð af sumum sem upplifðu mikla gleði, af öðrum sem upplifðu miklar sorgir og örvæntingu.  Þrátt fyrir að hafa svona marga ólíka höfunda þá skrifa þeir af ótrúlegu samræmi sín á milli um mörg mjög fjölbreytt og umdeild umræðuefni eins og fjölskylduna, heiður, líf eftir dauðann, menntun, stjórnvöld og Guð. 

Skrifuð á þremur tungumálum, hebresku, aramísku og grísku.

Biblían er einstök í sinni útbreiðslu.  Það er alltaf sérstakt þegar bók kemst á metsölulista. Mjög merkilegt ef hún selts í meira en miljón eintökum og mjög fáar seljast í fleiri en tíu miljón eintökum.  Með það í huga þá er alveg magnað að Biblían hefur selst í miljörðum eintaka!  Biblían er einfaldlega mest útbreiddasta bók í sögu mannkyns.

Biblían er einstök þegar kemur að þýðingu.  Flestar bækur eru ekki þýddar á önnur tungumál. Merkilega bækur eru kannski þýddar á þrjú fjögur tungumál.  Þegar kemur að Biblíunni þá er hún þýdd á fleiri tungumál en nokkur önnur bók í sögunni.  Wycliffe stofnunin hefur það að markmiði að þýða Biblíuna á önnur tungumál og hefur meira en 6000 manns að vinna að þessu verkefni.  Miðað við hvernig gengur þá ætti Biblían að vera þýdd á öll tungumál heimsins milli 2010 og 2020.

Biblían hefur náð að lifa af í mjög langann tíma, eitthvað sem mjög mörg forn handrit gerðu ekki. Við höfum aðeins heimildir um mörg fræg handrit en þau eru fyrir löngu glötuð en ekki Biblían. Þrátt fyrir miklar þrengingar og ofsóknir á hendur henni þá stendur hún upp úr sem risi á meðal forna bókmenntaverka.  Gyðingar höfðu sér stétt sem sá um að búa til afrit af hinum helgu ritum þar sem hver stafur var talin og ef mistök voru gerð þá var handritinu eytt. Enginn gerði nokkuð slíkt við önnur forn handrit, hvorki við handrit Hómers eða Aristótelesar.  John Lea í bók sinni "The greatest book in the world" bar saman Biblíuna við handrit Shakespears og sagði eftirfarandi:

In an article in the North American Review, a writer made some interesting comparisons between the writings of Shakespeare and the scriptures, showing how much greater care must have been bestowed upon the biblical manuscripts than upon any other writings, even when there was so much more opportunity of preserving the correct text by means of the printed copy than when all the copies had to be made by hand.  He said: 

"It seems strange that the text of Shakespeare, which has been in existence less than two hundred and eight [years], should be far more uncertain and corrupt than that of the New Testament, now over eighteen centuries old.

"During nearly fifteen of which it existed only as a manuscript...with perhaps a dozen or so exceptions, the text of every verse in the New Testament may be said to be so far settled by general consent of scholars, that any dispute as to its readings must relate rather to the interpretation of the words than any doubts as to the words themselves.

"But in every one of Shakespeare's thirty-seven plays there are probably a hundred readings still in dispute, a large portion of which materially affects the meaning of the passages in which they occur

Eitt af því sem gerir Biblíuna sérstaka er hvað hún er hreinskilin um þá sem hún fjallar um og jafnvel þá sem skrifa hana.  Hún er ekki að fela beiskleika manna eins og Abrahams, ættföðursins mikla eða syndir Davíðs, mesta konungs Ísraels.  Aftur og aftur þá koma spámenn og tala um hið illa sem Ísrael hafði framið. Merkilegt hvað gyðingar voru duglegir við að varðveita handrit sem láta þjóðina engann veginn lýta vel út.

Áhrif Biblíunnar á bókmenntasögu mannkyns eru gífurleg. Ef öll eintök af Biblíunni myndu hverfa í dag þá væri samt hægt að endurskrifa hana út frá tilvitnunum í hana frá öðrum bókum. Hið sama á við menningu, tónlist og byggingarlist, engin önnur bók hefur haft jafn mikil áhrif og Biblían.

Það er hægt að bæta svo mörgu öðru við þetta eins og spádómar í Biblíunni, mögnuð þekking á læknisfræði og vísindum og margt fleira sjá: http://www.answersingenesis.org/home/area/faq/bible.asp

Allir ættu að skoða þessa merku bók og íhuga vel hvort að sá boðskapur sem hún hefur fram að færa sé sannur.  Hún boðar bæði möguleika á eilífu lífi öllum til handa en einnig að það munu margir glatast og deyja.  Sömuleiðis er sorglegt að sjá hve margir kristnir eru til í að bæta við Biblíuna alls konar ritum sem eiga engann veginn heima í henni.

Vonandi verður þessi lestur einhverjum til blessunar.


Lífið ekki mögulegt án nanó véla, flott myndbönd frá Harvard af hönnun í fruminni

Maður að nafni David Bolinsky er hér að kynna skuggalega flott myndband af starfseminni inn í frumunni.  Þetta er gert af fyrirtæki hans XVIVO til að kenna læknanemum í Harvard.  Myndböndin einbeita sér að því að sýna ekki bara það sem við vitum um frumuna heldur einnig að sýna fegurðina í sköpunarverkinu. 

Myndbandið er hérna: http://www.ted.com/index.php/talks/view/id/147

Takið sérstaklega eftir því að Bolinsky segir að "ekkert líf væri mögulegt án þessara véla". Vonandi áttar hann sig á því hvaða þýðingu það hefur fyrir hugmyndir manna um uppruna lífs. Hann kallar einnig þessa hluti vélar og það er ekki samlíking því þetta eru vélar.  Það sem guðleysingjar og darwinistar ættu að íhuga að ef lífið er ekki mögulegt án þessara véla, hver er þá rökréttasta skýringin á uppruna þessa véla?  Tilviljun eða tilgangur?  Svari hver fyrir sig...


Apokrýfu bækurnar, afhverju kristnir eiga ekki að vilja þær í Biblíunni

Það eru góðar ástæður fyrir því að kristnir ættu ekki að vilja apokrýfurnar innan um aðrar bækur Biblíunnar.  Ætla aðeins að benda á þessar ástæður og síður sem fjalla um málið ýtarlegar:

  • Bækurnar voru aldrei hluti af hebreska Gamla Testamentinu eða kanonum. Veit ekki íslenska orðið en "canon" er heiti yfir þær bækur sem voru álitnar heilagar í GT. 
  • Hvorki Jesú né nokkur af lærisveinunum vitnar í þessar bækur.  Í Nýja Testamentinu er vísað í Gamla Testamentið um 1000 sinnum en aldrei í þessar bækur.
  • Fyrstu kirkjufeðurnir vitna ekki í þessar bækur.
  • Enginn af þessum bókum heldur því fram að vera innblásin af Guði eins og önnur rit Biblíunnar.
  • Margar af apokrýfu bókanna innihalda mótsagnir við megin boðskap NT og GT.

http://www.biblebelievers.net/BibleVersions/kjcapocr.htm

http://www.apologeticspress.org/articles/1817

Mér finnst aðalega að þessar bækur eiga ekki að vera tengdar Biblíunni. Þær eru áhugaverðar á sinn hátt og hafa sögulegt gildi en eiga ekki erindi í Biblíuna sjálfa.


Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband