Samt synd

Fáránleg hræsnin sem þarna er á ferðinni. Eins og það sé einhver munur á því að giftast konu, skilja við hana og fara til næstu eða að bara sofa hjá mörgum konum. Kristur gagnrýndi þennan sið gyðinga þegar Hann sagði þetta:

Matteus 5:31
Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf. 5:32En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður til þess að hún drýgir hór. Og sá sem gengur að eiga fráskilda konu drýgir hór.

Sumir hjá Vantrú hafa bent á eitthvað sem þeir sjá sem hræsni hjá kristnum þegar þeir gifta fráskilið fólk sem er synd samkvæmt orðum Krists en síðan neita samkynhneigðum um giftingu. Þetta er alveg gildur punktur hjá þeim. Það vantar að kirkjan taki þessi orð Krists miklu alvarlegra. Til þess að kirkja geti gift fólk sem er fráskilið með góðri samvisku þá ætti viðkomandi að hafa iðrast þess sem gerðist og biðjast fyrirgefningar.  Náðin á alltaf að vera til staðar fyrir þá sem iðrast og vilja gera betur.

Sumir kristnir náttúrulega vilja meina að núna lifum við undir náð og þess vegna megum við hegða okkur eins og við viljum en vonandi fara þeir að sjá að sér; fara að lesa ráðleggingar Biblíunnar og fara eftir þeim.


mbl.is Skilur við 11 eiginkonuna og slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Matteus 5:31
Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf. 5:32En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður til þess að hún drýgir hór. Og sá sem gengur að eiga fráskilda konu drýgir hór.

Þannig að ef hann passar sig á því að giftast alltaf nýrri hreinni mey að þá er hann ekki að drýgja hór? ...splendid

Mama G, 30.12.2009 kl. 11:27

2 Smámynd: Mofi

Mama G, búin að finna "loop hole" :)    Alls ekki slæmt. Hefðir kannski átt að fara í lögfræði?  Kannski ekki of seint?

Mofi, 30.12.2009 kl. 12:49

3 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Halló Mofi minn, gleðilega hátíð. Ein spurning því þetta er svolítið loðið :) Hvað finnst þér um giftingu samkynhneigðra, ég veit það svo sem en vildi sjá það svart á hvítu, við erum öll mannleg og ráðum ekki tilfinningum okkar, er það ekki rétt hjá mér.

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 31.12.2009 kl. 09:23

4 Smámynd: Mofi

Tara, hæ og gleðilega hátíð  :)   

Ég tel Biblíuna vera mjög skýra þegar kemur að kynlífi tveggja karla; kirkja sem leggur blessun sína yfir það er að blessa það sem Biblían bölvar. Hún talar að vísu ekki um konur og ég tel alltaf best að fara ekkert lengra en orðið segir. Ekki beint vinsæl afstaða eins og okkar samfélagi er í dag...

Varðandi tilfinningar þá hef ég í gegnum tíðina nokkrum sinnum haft tilfinningar til stelpna sem ég hef þekkt en ekki fengið að sofa hjá þeim. Óneitanlega sárt en maður lifir það af. Ekkert að því að tveir menn hafa tilfinningar til hvors annars en ef þeir vilja fylgja því sem Biblían segir þá sleppa þeir kynlífi með hvor öðrum.

Mofi, 31.12.2009 kl. 12:34

5 Smámynd: Jakob Andreas Andersen

Mofi,

Hvers vegna svarir þú ekki Mama G? Er það rétt hjá honum?

Og hvað með þetta: "And the man that committeth adultery with another man's wife, even he that committeth adultery with his neighbour's wife, the adulterer and the adulteress shall surely be put to death".Leviticus 20:10

Er það ekki nógu skýrt? Mér finnst það. Og þú hlítur að taka undir þetta ef þú tekur bíblíuna alvarleg.

Ég helt að þú vilt helst snúa tímann tilbaka til ársins 0. Svo gengur allt upp hjá þér.

Jakob Andreas Andersen, 31.12.2009 kl. 13:07

6 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Æi Mofi minn,  afhverju sögðu þær nei!! Þær vita ekki hverju þær misstu !! Sorry verður alltaf að vera smá stríðni með :) En það er svolítill karlrembingur í Biblíunni þarna, karlar mega ekki sofa saman, fullkomnar verur, þeim á ekki að koma það til hugar. En líklega mega konurnar vera samkynhneigðar fyrst Guð hefur ekkert um það að segja. Nema að þessi gamli rembingur nái líka til Guðs, konur eru svo saklausar að þær gera ekki svona, það hvarflar ekki að honum að slíkt gæti gerst, Guði sem sagt. En hver veit kannski er hann sáttur við samkynhneigðar konur. Sérðu nú ertu búinn að kveikja í púkanum í mér, það er fínt ;)

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 31.12.2009 kl. 13:51

7 Smámynd: Mofi

Jakob, náð og miskun var líka í hávegum höfð í GT og til þess að einhver fengi dauðadóm þá urðu tvö vitni að heimta þennan dóm frammi fyrir löglegum dómstólum.

Tara

Það er margt sem er aðeins beint til karla en manni finnst nokkuð augljóst að það á við konur líka. Málið er bara að vera hreinskilin varðandi hvað Biblían segir og hvað hún segir ekki.

Frábært að búið er að kveikja á púkanum í þér, besta kvöldið á árinu til að leyfa honum að fara út og leika sér :)

Mofi, 31.12.2009 kl. 17:34

8 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Takk elsku hjartað mitt

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 31.12.2009 kl. 18:10

9 Smámynd: Egill Óskarsson

Varðandi tilfinningar þá hef ég í gegnum tíðina nokkrum sinnum haft tilfinningar til stelpna sem ég hef þekkt en ekki fengið að sofa hjá þeim. Óneitanlega sárt en maður lifir það af. Ekkert að því að tveir menn hafa tilfinningar til hvors annars en ef þeir vilja fylgja því sem Biblían segir þá sleppa þeir kynlífi með hvor öðrum.
Það var ekki spurt um skoðanir þínar um kynlíf samkynhneigðra heldur hjónband. En útfrá þessu áliti þínu er þá skv. biblíunni í lagi að karlmenn elski hvorn annan og séu í sambandi, búi saman og þess vegna ali upp t.d. barn/börn sem annar/báðir hafa eignast í fyrri samböndum svo lengi sem þeir stundi ekki kynlíf?

Egill Óskarsson, 1.1.2010 kl. 15:19

10 Smámynd: Mofi

Egill, góður punktur; ég sé aðeins bann við kynlífi.

Mofi, 1.1.2010 kl. 15:22

11 Smámynd: Egill Óskarsson

Hvað stendur þá gegn því að kristnar kirkjur og trúfélög leyfi hjónaband samkynhneigðra? Er eitthvað talað um að hjónabandi verði að fylgja kynlíf í biblíunni?

Egill Óskarsson, 1.1.2010 kl. 16:45

12 Smámynd: Jakob Andreas Andersen

Ok, Mofi

Þú ert þá sammála um að dauðarefsing fyrir framhald er í lagi ef tvö vitni heimta þennan dóm frammi fyrir löglegum dómstólum.

Jakob Andreas Andersen, 1.1.2010 kl. 20:21

13 Smámynd: Mofi

Egill, ekki svo ég viti til um. Mig minnir að það eru vers sem tala um að annar aðilinn í hjónabandinu ætti ekki að neita hinum aðilanum um kynlíf; það er það eina sem ég man eftir.

Jakob, frekar þannig að þetta er dómurinn sem ég sé Guð gera í Biblíunni og ég sætti mig við hann. Ég get ekki lokað augunum fyrir því að framhjáhald er slæmt þó ég ætti erfitt með að vera sáttur við þannig dauðadóm hjá okkar jarðneskjum dómstólum.  Málið er að ef Guð vill búa til heim þar sem illska er ekki lengur til þá er þetta nauðsynlegt. Aftur á móti má heldur aldrei gleyma náðinni og fyrirgefningunni, sá sem er sekur um framhjáhald getur iðrast, snúið baki við þessari hegðun og öðlast eilíft líf.

Mofi, 1.1.2010 kl. 23:12

14 Smámynd: Óskar Arnórsson

jahérna!

Óskar Arnórsson, 2.1.2010 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband