Biblían í nýju ljósi - námskeið í Aðvent kirkjunni í vetur

Það verða "námskeið" í Aðvent kirkjunni í vetur sem miðast við þá sem eru að kynna sér trúmál. Þetta er til þess að þegar fólk utan kirkjunnar mæti þá er eitthvað fyrir það í staðinn fyrir hina týpísku Biblíulexíu sem er hönnuð fyrir þá sem þegar tilheyra Aðvent kirkjunni.

Námskeiðið verður á laugardögum klukkan 11-12. Þá verða valin efni úr Biblíunni rannsökuð og opnar umræður um þau. Það verða nokkrir aðilar sem taka að sér að leiða umræðurnar og ég mun vera einn af þeim.  Skemmtilegt barnastarf verður í boði á sama tíma.


Staður: Hliðarsalur Aðventkirkjunnar, Ingólfsstræti 19, 101 Rvk.

24/10 - Sköpun: Móðir náttúra eða Guð Faðir?
31/10 - Er Guð þögull eða hefur Hann talað?
7/11 - Reis Jesú virkilega upp frá dauðum og af hverju skiptir það mig máli?
14/11 - Getur Guð verið góður en heimurinn vondur?
21/11 - Endurkoma konungsins
28/11 - Hvað er frelsun?
5/12 - Ritað í stein (lög Guðs)
12/12 - Að skilja Gamla Testamentið - Helgidómur gyðinga, fyrsti hluti
16/01 - Hin óverðskuldaða gjöf Guðs til þín (náðin)
23/01 - Að skilja Gamla Testamentið - Helgidómur gyðinga, annar hluti
30/01 - Hvíldardagurinn
6/02 - Himnaríki er alvöru staður
13/02 - Það sem Faróarnir vissu ekki (ástand hinna dauðu)
20/02 - Að upplifa lífið til fullnustu (heilsa)
27/02 - Að þekkja vilja Guðs í lífi þínu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Og þú munt hvað? Það vantar eitthvað í setninguna held ég...

Annars geturðu svo kíkt á næsta fyrirlestur í fyrirlestrarröðinni um þróun lífsins í tilefni af afmæli Darwins í Háskólanum að þessu loknu.

Þú ættir að hafa mikinn áhuga á honum, hann er um steingervinga og er milli kl. 13 og 15.

Sjá nánar hér

Sveinn Þórhallsson, 22.10.2009 kl. 16:11

2 Smámynd: Mofi

Takk Sveinn, smá klúður þarna. Takk fyrir ábendinguna, mun pottþétt reyna að mæta.

Mofi, 22.10.2009 kl. 16:47

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Leiðinlegt, kemst ekki 7. nóvember á fyrirlesturinn sem ég myndi helst vilja hlusta á. Sjáumst samt kannski núna á laugardaginn í HÍ ;)

Hjalti Rúnar Ómarsson, 22.10.2009 kl. 16:58

4 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Er þetta svona 'walk-in' eða þarf að skrá sig fyrirfram? Hvernig er þessu háttað? Eins og fyrirlestur eða sitja allir í hring og spjalla saman?

Sveinn Þórhallsson, 22.10.2009 kl. 17:09

5 Smámynd: Mofi

Hjalti, alltaf velkominn :)

Sveinn,  þetta er svona 'walk-in' dæmi.  Ekki fyrirlestur en samt hugsað að efnið sé kynnt í tiltulega stuttum inngangi, kannski 15-20 mínútur og síðan spjall um efnið.

Mofi, 23.10.2009 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 802693

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband