Hvaða lag viltu að verði spilað við þína jarðaför?

Maður gat ekki annað en hlegið yfir sumum af þessum lögum eins og "skoðaðu í kistuna mína" fær allt aðra merkingu.

Einhvern tíman þá þurfti ég að horfast í augu við það að sumt af því sem ég var að hlusta á var í hrópandi andstöðu við það sem ég trúði og þá kvaddi ég nokkur lög eins og t.d. "Highway to Hell". 

En að spurningunni, hvaða lag myndir þú vilja að yrði spilað við þína jarðaför?

Einn vinur minn stakk upp á "The roof is on fire" við hans jarðaför; í smá stund efaðist ég um hvort viðkomandi væri kristinn í raun og veru en eftir að ímynda mér þetta lag spilað á orgel í jarðaför þá sá ég húmorinn í þessu hjá honum þó kolsvartur sé. 

Ég get ekki sagt að ég er búinn að ákveða neitt ákveðið lag en núna hallast ég mest að þessu lagi hérna:


mbl.is Á leið til heljar um hraðbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stjörnupenni

Ég er ekki hrifinn af þeirri tilhugsun að séu spiluð trúarleg lög í minni jarðarför, en ég væri alveg til í Hallelujah með Leonard Cohen eða Stairway to Heaven með Led Zeppelin.

In a gadda da vida eftir Iron Butterfly væri líka flott á orgeli.

Stjörnupenni, 16.4.2009 kl. 16:39

2 Smámynd: Arnþór Guðjón Benediktsson

who wants to live forever með Queen

Arnþór Guðjón Benediktsson, 16.4.2009 kl. 17:13

3 identicon

If you dont know me by know - með simply red kemur upp í hugann

Sigmar Magnússon (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 17:21

4 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Do you realize með Flaming Lips.

Textinn er afskaplega fallegur, sérstaklega línan "You realize the sun doesn't go down, it's just an illusion caused by the world spinning 'round"

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 16.4.2009 kl. 18:35

5 Smámynd: Þorsteinn Björnsson

Hallowed Be Thy Name með Iron Maiden! 

Þorsteinn Björnsson, 16.4.2009 kl. 21:01

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hvað segir þú um þetta lag Dóri?  Það á eftir að vekja lukku, því get ég lofað, sér í lagi ef þú færð dansarana! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 17.4.2009 kl. 00:50

7 identicon

Motörhead.  Killed by death.

Ási (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 04:00

8 Smámynd: Mofi

Margar góðar hugmyndir, sérstaklega er Hallowed be thy name lag sem skapar drungalega stemmingu ef maður vill það.  

Mér finnst eins og ég hafi verið andlega skemmdur af því að sjá þetta lag Haukur!      Svakalega var fólk skrítið í þá daga; well, ætli fólk eftir tíu ár muni ekki segja hið sama um það sem þykir "cool" í dag. 

Mofi, 17.4.2009 kl. 11:25

9 Smámynd: Mama G

Ég hélt að það væri alveg klassískt að nota Return to sender með Presley...

Mama G, 22.4.2009 kl. 10:23

10 Smámynd: Mofi

Mama G, þú ert fyrst að koma með þessa tillögu og hún hittir naglann á höfuðið!

Mofi, 22.4.2009 kl. 10:28

11 identicon

Yfir mér dauðum verður sungið „Cry me a river". Þar sem Julie London er ekki tiltæk vil ég að Ellen Kristjáns taki þetta að sér.

Hörður Björgvinsson (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 11:08

12 Smámynd: Mofi

Hörður, ég fatta ekki þá sem tala um að þeir vilji að það verði gleði og söngur í þeirra jarðarför. Mér þætti bara mjög fúllt ef fólkið væri ekki sorgmætt yfir því að ég væri farinn :)

Svo, "cry me a river" hljómar vel :)

Mofi, 22.4.2009 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband