Svo það er þá svona sem prestar Vantrúar klæðast

300px-The_New_Dark_LordGaman að sjá Vantrú taka þátt í trúarlífi þjóðarinnar og senda boðbera þeirra trúar.

Nú er bara að stofna "kirkju" og vera með "messur" á reglulegum tímum. 

Ég veit að ég myndi hafa virkilega gaman að sjá og heyra Svarthöfða messa!

 


mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

hehehe ... já ... ég meira að segja sá þá svona fyrir mér! Kannski fá allir nýir meðlimir Vantrúar fái ókeypis geislasverð við inngöngu!  ;)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 12:55

2 Smámynd: Mofi

Ímyndaðu þér bara áhrifin... heil messa þar sem Darth Wader talar með sinni mögnuðu rödd. Ég myndi mæta... ekki kannski skýrast eða hvað það er sem þeir gera til að vígja nýja meðlimi í þeirra trúarsamfélag.

Mofi, 11.6.2008 kl. 12:58

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Össs ... Dóri, þeir myndi kirkja okkur báða með ósýnilegum mætti! Og henda okkur svo báðum í ormagryfju. tíhí ..

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:01

4 identicon

Arnar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:03

5 identicon

Góð hugmynd, Mofi. Innst inni eru þeir auðvitað söfnuður ákveðins guðs ... Gott að tekur að glitta í þeirra sanna eðli.

ÆvarAndi (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:05

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

hahahahahahahaha .... snilld Arnar!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:06

7 Smámynd: Mofi

Held það bara Haukur :)

Arnar,  góður! 

Ævarandi,  þeir eru að koma úr skápnum held ég bara!

Mofi, 11.6.2008 kl. 13:08

8 identicon

Þetta var góð ádeila á þessa kufla og peningaplokkara :)

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:09

9 identicon

Hey, ég fann þetta ekki upp.. það er hægt að kaupa svona t-shirt :)

Og varðandi..

Innst inni eru þeir auðvitað söfnuður ákveðins guðs

Hvaða 'ákveðni guð' er það?

Arnar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 13:20

10 Smámynd: Jón Ragnarsson

http://www.jedichurch.com/

Jón Ragnarsson, 11.6.2008 kl. 13:29

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 13:33

12 Smámynd: Mofi

Jón Ragnarsson, ætli Georg Lucas er meðlimur? 

Mofi, 11.6.2008 kl. 13:36

13 Smámynd: Mofi

Good luck with that Haukur :)

Mofi, 11.6.2008 kl. 13:52

14 identicon

Flestir trúaðir verða komnir inn í skápa á svona 20-30 árum, menn geta ekki sagt opinberlega að þeir trú á gömul ævintýr, að þeir telji sig púpast út og fljúga til himna til einhvers einræðisguðs.
Það getur varla verið mikill friður í himnaríki(Assuming here) þegar múslimar + kristnir + gyðingar hittast hjá guði sínum, guðinn er jú sá sami hjá þessum trúarhópum

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 14:05

15 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Einar, ég lá í gólfinu þegar ég sá þína athugasemd! Hahahahaha! Góður!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 11.6.2008 kl. 14:57

16 Smámynd: Mofi

Einar, þú ættir að vera ráðgjafa Vantrúar þegar þeir semja sitt sakrament! :)

DoctorE,  þar sem að sagan segir okkur að þeir sem trúa að Guð er ekki til hefur farið fækkandi síðan 1900 svo... virðist vera að náttúruvalið líkar ekki vel við ykkur.  Má segja að þarna sé frábært dæmi á kaldhæðni, guðleysingjar fórnarlömd náttúruvalsins! 

Mofi, 11.6.2008 kl. 15:00

17 identicon

 þar sem að sagan segir okkur að þeir sem trúa að Guð er ekki til hefur farið fækkandi síðan 1900 svo... virðist vera að náttúruvalið líkar ekki vel við ykkur.  Má segja að þarna sé frábært dæmi á kaldhæðni, guðleysingjar fórnarlömd náttúruvalsins

Jæja Halldór, ég sé að þú ert nú kominn með eitthvað æði fyrir talnaleikjum... nú skulum við skoða þessa tölfræði þína aðeins

Árið 1900 voru jarðabúar 1,650 miljónir, 1999 voru þeir 5,978 - það væri eitthvað mikið að ef þeim sem trúa á guð hefði fækkað á sama tíma og jarðabúar meira en tvöfaldast í fjölda

Hefur þú einhverjar upplýsingar um það hvort þeim sem trúa á guð hefur fjölgað eða fækkað sem hlutfalli af heildarfjölda?   

Skoðum áfram..

Árið 1900 var "kristni" hluti heimsins 34% af heildarfjölda - ég tek hér Evrópu ásamt norður og suður ameríku  - gróf ályktun en það verður að hafa það, þú getur þá hrakið það ef þú ert ekki sammála

Árið 1999 var sama hlutfall 25,8%

Þannig að ég spyr þig... getur verið þeim sem trúa á guð hafi fjölgað en þeir minnkað sem hlutfall af heildinni?

Sigmar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 15:17

18 identicon

Svo trúarskoðanir eru nú afgengar?  Vissi það ekki, þú ert alltaf að koma með nýjar og nýjar staðreyndir mófi.

Samkvæmt því eru allir íslendingar trúlausir.  Þar sem ég er trúlaus, þá hljóta foreldrar mínir sem og allir mínir forfeður að vera trúlausir.  Og þar sem allir íslendingar (amk. þeir sem eiga 'ættir að rekja' til landnáms) eru skyldir í svona c.a. 8 ættliði ..

Arnar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 15:17

19 identicon

Tækifæri frekar en ásteytingarsteinn!

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 16:27

20 Smámynd: Mofi

Sigmar
Árið 1900 voru jarðabúar 1,650 miljónir, 1999 voru þeir 5,978 - það væri eitthvað mikið að ef þeim sem trúa á guð hefði fækkað á sama tíma og jarðabúar meira en tvöfaldast í fjölda
Vitlaust orðað hjá mér; þeim fer hlutfallslega fækkandi, sjá: Hlutfallslega fleira fólk er trúaðra á Guð í dag en árið 1900 samkvæmt Economist 

Mofi, 11.6.2008 kl. 16:37

21 identicon

Má segja að þarna sé frábært dæmi á kaldhæðni, guðleysingjar fórnarlömd náttúruvalsins! 

Útskýrðu snöggvast fyrir mér hvaða kaldhæðni er fólgin í því.

Sveinn (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 00:44

22 identicon

Mofi þó svo að trúuðum hafi fjölgað þá verður þú að taka inn í dæmið að mannkyni hefur fjölgað gífurlega.
Mesta fjölgun í dag er hjá fólki sem er trúlaust, eina sem getur bjargað trú er að náttúruhamfarir komi okkur aftur á steinöld, nú eða manngerðar hamfarir

DoctorE (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 09:40

23 Smámynd: Mofi

Punkturinn er að hlutfallslega hefur þeim farið fækkandi, eitthvað sem vantaði þegar ég benti fyrst á þetta.

Sveinn,  af því að þið hafið þessa ofurtrú á náttúruvalinu, að það geti gert kraftaverk í formi snilldar hönnunar. Það virðist ekki vilja hanna fleiri trúleysingja.

Mofi, 12.6.2008 kl. 09:52

24 Smámynd: Theódór Norðkvist

Svarthöfði var fulltrúi myrku hliðar Kraftsins. Eigum við að skilja uppátæki vantrúarmanna þannig að þeir séu að lýsa því yfir að þeir líti á sig sem fulltrúa myrkraaflanna?

PS

Theódór Norðkvist, 12.6.2008 kl. 09:54

25 Smámynd: Theódór Norðkvist

PS Annars gott grín, átti að bætast við.

Theódór Norðkvist, 12.6.2008 kl. 09:55

26 identicon

Sveinn,  af því að þið hafið þessa ofurtrú á náttúruvalinu, að það geti gert kraftaverk í formi snilldar hönnunar. Það virðist ekki vilja hanna fleiri trúleysingja.

Því miður Halldór minn, þá geturðu ekkert fullyrt svona lagað um trúleysingja.  Það er engin trúleysishreyfing sem skyldar fólk til að samþykkja þróunarkenninguna.  

Æ, æ

Sveinn (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 21:40

27 identicon

Það virðist ekki vilja hanna fleiri trúleysingja.

Ef trúleysi er dragbítur í lífsbaráttunni væri það ekkert nema eðlilegt að svo færi, því miður fyrir þig hefur það ekkert með sannleiksgildi þróunarkenningarinnar að gera.

Sveinn (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 21:45

28 identicon

Ég skora á þig mofi til að horfa á þetta. 

http://www.youtube.com/watch?v=FoZW7-3YSns&feature=related

Annað sem ég vil segja. Að setja alla trúleysingja undir sama hatt er eins og að setja alla sem eru ekki kínverjar undir sama hatt. Að vera trúlaus þýðir að þú trúir ekki á neitt trúarbragð, hjátrú, drauga, miðla eða neitt þess háttar rugl. Það þýðir ekki neitt meira en það. 

Óli (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 22:19

29 identicon

Já og það voru sem sagt ekki trúleysingjar sem eltu prestana í svarthöfðabúning, heldur maður í svarthöfðabúning.

Óli (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 22:21

30 Smámynd: Mofi

Theódór
Svarthöfði var fulltrúi myrku hliðar Kraftsins. Eigum við að skilja uppátæki vantrúarmanna þannig að þeir séu að lýsa því yfir að þeir líti á sig sem fulltrúa myrkraaflanna?

Sumir darwinistar tala líka alltaf um "evilution". Líklegast bara framburður en mér finnst það alltaf jafn skondið :)

Sveinn
Því miður Halldór minn, þá geturðu ekkert fullyrt svona lagað um trúleysingja.  Það er engin trúleysishreyfing sem skyldar fólk til að samþykkja þróunarkenninguna. 

Ég var nú ekki að halda því fram en þetta er aðeins eitthvað sem þeir virðast allir eiga sameiginlegt.

Sveinn
Ef trúleysi er dragbítur í lífsbaráttunni væri það ekkert nema eðlilegt að svo færi, því miður fyrir þig hefur það ekkert með sannleiksgildi þróunarkenningarinnar að gera.

Það er rétt...

Óli
Ég skora á þig mofi til að horfa á þetta. 

http://www.youtube.com/watch?v=FoZW7-3YSns&feature=related

Rökin voru góð fyrir að tilvitnu um Arhceaoptics væri ekki góð og væri gott ef þeir myndu lagfæra það.  Þetta með quote mining er alveg réttmæt gagnrýni en það er aftur á móti ekkert að því að vitna í einhvern á meðan hans orð eru ekki látin þýða eitthvað annað en hann meinti. 

Óli
Annað sem ég vil segja. Að setja alla trúleysingja undir sama hatt er eins og að setja alla sem eru ekki kínverjar undir sama hatt. Að vera trúlaus þýðir að þú trúir ekki á neitt trúarbragð, hjátrú, drauga, miðla eða neitt þess háttar rugl. Það þýðir ekki neitt meira en það.

Á það við alla þá sem kalla sig trúleysingja? Myndu allir þeir sem flokka sig sem trúleysingja vera sammála þessari skilgreiningu?  Það er dáldið eins og þessi umræða er dáldið ung hérna svo fólk hefur ekki fengið almennann skilning á öllum þessum hugtökum.

Mofi, 13.6.2008 kl. 10:53

31 identicon

Á það við alla þá sem kalla sig trúleysingja? Myndu allir þeir sem flokka sig sem trúleysingja vera sammála þessari skilgreiningu?

Úps hér hleypurðu á þig enn eina ferðina.  Já þetta er það sem fellst í orðinu trúleysi.  Myndu allir sem telja sig vera trúleysingjar samþykkja allt ofangreint?  Nei, að öllum líkindum ekki.

Þú hefur sjálfur verið mjög duglegur að tala um "alvöru kristna".  Hitler, sem leit á sig sem rómversk-kaþólskan kristinn mann er það að þínu mati ekki, þar sem hann fór, að þínu mati, ekki eftir boðskapi krists.

Liggur það ekki í augum uppi, jafnvel meira svo en í tilfellum kristinna á borð við Hitler, að 'trúleysingi' sem trúir á drauga er í raun og veru ekki trúleysingi?

Þá getum við gripið til orðsins guðleysingi.  Þetta tvennt þýðir, þótt ótrúlegt megi virðast, nefnilega ekki hið sama, þó oftast sé orðið trúleysingi notað í samhengi við guðleysi. 

Sveinn (IP-tala skráð) 15.6.2008 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 802758

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband