Endalaust óljósar rannsóknir um heilsu

ChinaStudyGallinn við þær rannsóknir sem hafa verið að koma upp þessa dagana og svo sem nærri því alltaf er að þær eru svo ónákvæmar.  Hvað er t.d. að vera mjór?  Sumir eru það grannir að þeir glíma við næringa skort svo það kæmi mér ekki á óvart ef þeir sem eru í því ástandi lifa skemur en þeir sem eru smá þybbnir.

Annað dæmi er rannsókn sem sagði að grænmetisætur lifa skemur en kjötætur.  Það er lítið mál að verða grænmetisæti og byrja að borða enn óhollara en að borða kjöt.  Það eina sem þeir þurfa að gera er að borða of mikið af fitu, annað sem hægt er að gera er að borða mikið af unnum grænmetismat, einhvers konar gervi kjöt og gervi ost og svo framvegis.

Í staðinn fyrir þessar mjög svo takmörkuðu rannsóknir þá mæli ég með þessari rannsókn hérna: http://www.thechinastudy.com/


mbl.is Er hættulegra að vera mjór en feitur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: admirale

Ég veit ekki afhverju þú heldur að það sé hugmynd að sækja sér heimildir um heilbrigðann lífstíl hjá aðilum sem eru augljóslega að hagnast á því að selja tiltekinn matarræðiskúr með því að selja uppskriftabækur og annað. 
Hvernig getur slíkur aðili verið hlutlaus? 

En það er þó alveg satt að maður þarf að passa sig á gervivísindum og ávallt öruggast að skoða það hvernig rannsóknin sjálf var framkvæmd áður en maður tekur fyrirsögninni sem staðreynd.  

admirale, 7.4.2014 kl. 23:04

2 Smámynd: Mofi

admirale, heldur þú að það sé samsæri bænda að ljúga til um hollustu ávaxta og grænmetis?

Mofi, 8.4.2014 kl. 08:09

3 Smámynd: admirale

Það er líka hollt að drekka vatn, það er samt ekkert endilega hollt að innbyrða ekkert annað en vatn. 

Heldurðu að þessi vefur myndi einhverntímann birta rannsókn sem sýnir fram á hollustu kjötáts?  (ef við gerum ráð fyrir að sú niðurstaða kæmi úr vísindalega unninni langtíma rannsókn)

admirale, 9.4.2014 kl. 03:13

4 Smámynd: Mofi

admirale, sumir hafa andúð á kjötáti vegna annara ástæðna en hollustu, eins og dýraverndunarsinnar svo það gæti verið rétt að jafnvel þó að rannsóknir sýndu fram á það þá væri það ekki birt. En, þar fór bænda samsærið þar sem bændur vanalega framleiða ávexti, grænmeti og kjöt.  Ég sé einfaldlega hóp fólks sem hefur ákveðna sannfæringu í þessum efnum og réttilega svo.

Mofi, 9.4.2014 kl. 07:51

5 Smámynd: admirale

admirale, sumir hafa andúð á kjötáti vegna annara ástæðna en hollustu, eins og dýraverndunarsinnar svo það gæti verið rétt að jafnvel þó að rannsóknir sýndu fram á það þá væri það ekki birt.
Einmitt, og þessvegna geturðu ekki treyst því að fá þaðan hlutlausar upplýsingar, eða bestu upplýsingarnar um heilsusamlegt matarræði. Þú færð aðeins einhliða upplýsingar sem samræmast fyrirframákveðinni skoðun. 

admirale, 11.4.2014 kl. 03:35

6 Smámynd: Mofi

admirale, og þeir sem eru að selja kjöt eða finnst kjöt gott, get ég treyst því sem þeir segja?

Mofi, 11.4.2014 kl. 09:24

7 Smámynd: admirale

Ég veit það ekki. 

Myndirðu treysta sölumanni í BMW umboðinu til þess að gefa þér hlutlausar og réttar um upplýsingar um áreiðanleika BMW bifreiða?  

admirale, 12.4.2014 kl. 04:50

8 Smámynd: Mofi

Þeir sem ég hlusta á varðandi að grænmeti og ávextir séu það sem er best fyrir okkur að borða eru ekki að selja mér neitt. Fyrst myndi ég benda á Ellen White sem er búin að vera dáin í meira en hundrað ár. Annar aðila er þessi gaur hérna: https://www.youtube.com/watch?v=LGuf3HTyn2g

Hann er nógu skemmtilega klikkur fyrir minn smekk, ég held að hann einfaldlega hafi þessa sannfæringu og deilir henni með fólki, hann hefur að minnsta kosti ekki fengið krónu frá mér.

Mofi, 12.4.2014 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 802783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband