Hin heillandi Jimmy Savile

Jimmy_Savile,_HeadstoneSumir kannski taka andköf við að heyra einhvern segja að Jimmy Savile hafi verið heillandi þar sem núna vitum við að hann var eins illa innrættur og menn geta orðið. En þegar maður les wikipedia greinina um hann, sjá hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Jimmy_Savile  þá er nokkuð ljóst að hann átti langan feril að baka og var mikilsmetinn og dáður af mjög mörgum. Ótal heiðursdoktorsgráður og viðurkenningar, hérna til hægri er mynd af legsteininum hans þar sem hans afrek eru upp talinn.  Var Savile heillandi, ég held að hann hefði aldrei komist upp með þetta eða náð að tæla svona margar konur nema hann hafi verið einmitt heillandi.

Kannski hélt Savile að hans góðu verk gætu vegið upp á móti því slæma sem hann gerði en á dómsdegi þá er ekki spurning um að vega góð verk og síðan vond verk og ef að góðu verkin eru fleiri en hin vondu þá færðu sakaruppgjöf og eilíft líf. Alveg eins og í dómssölum hérna hjá okkur þá ef þú ert sekur um nauðgun þá skiptir ekki máli þótt þú gafst helling til góðsgerðamála; það skiptir heldur ekki hve mikið þú sérð eftir glæpnum, ekkert af þessu getur gert þig saklausan eða borgað sekt þína.

Við erum öll í svipaðri stöðu og Savile, við erum flest ekki sek um jafn svakalega illsku og hann en höfum við ekki flest gerst sek um að ljúga, stela, reiðast, öfunda, verið gráðug, hata og fyrirlíta meðbræður okkar?  Ef þú heldur að það eigi ekki við þig þá þarftu ekki að lesa neitt meira sem ég hef að segja. Ef ef þú ert eins og ég og veist að þú ert sekur og veist að þú munt deyja þá veistu að þín staða er ekki góð.


mbl.is Tók táninga með sér á spítalann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sammála þér um margt MOFI, enn langt í frá öllu. Enn svakalega fer þér illa að blanda Guði inn í svona mál. Hugarfarsleg nauðgun með hjálp Biblíutexta er líka "synd", er það ekki?

Ég veit ekki hversu mikið þú hefur "syndgað" í gegnum lífið, enn berðu þig sjálfan ekki saman við Savile í einhverri asnalegri biblíulegri móralkeppni. Savile var fársjíkur maður og honum var hjálpað af óteljandi fólki sem krefst þess að vera kallað í lagi...menn geta ekki gert svona nema með stuðningi ...

Óskar Arnórsson, 31.10.2012 kl. 22:22

2 Smámynd: Mofi

Hugarfarsleg nauðgun?  Ég er einmitt á því að maður á ekki að bera sig saman við einhvern eins og Savile, ef allir gerðu það þá kæmust þeir að þeirri niðurstöðu að þeir væru bara mjög góðir og ekki sekir um neitt.

Í þessu máli já þá fékk þessi maður hjálp frá alls konar fólki og án efa af því að hann var heillandi karakter.

Mofi, 1.11.2012 kl. 08:20

3 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, ég er löngu búinn að banna þig vegna þess að ég er löngu búinn að fá nóg af þér, endalaust rugl og leiðindi.  Ef að ég fengi málefnalegar athugasemdir frá þér sem eru ekki að rakka allt niður með leiðindum þá væri hægt að íhuga að tala við þig.

En jú, ég er sekur um allt þetta og ef ég myndi mæta Guði þá væri ég sekur um allt þetta og ætti ekki skilið að fara til himna.

Mofi, 1.11.2012 kl. 10:25

4 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, hvernig væri að í staðinn fyrir að skipta um ip-tölur að þá frekar gera málefnalegar athugasemdir, hætta að reyna að rakka mig eða það sem ég er að segja heldur reyna að koma með eitthvað efnislegt í umræðuna. Og áður en þú gerir þetta að þá lesa það sem ég skrifaði með opnum huga og reyna að skilja hvað ég var að segja í staðinn fyrir að lesa það á þann hátt að þú ert að reyna að finna leið til að rakka það niður.

Ég hef löngun til að tala við nokkvurn veginn alla sem ég hef bannað en stundum verður maður að gefast upp á að maður mun eiga gott spjall við viðkomandi og þá er best að halda áfram.

Mofi, 1.11.2012 kl. 11:25

5 Smámynd: Mofi

Endilega reyndu að fatta þetta Jón, ég er búinn að fá nóg; ef þú vilt gera heiðarlega tilraun þá verður þú að sleppa þessu endalausa skítkasti og leiðindum. Það getur vel verið að ég eigi það skilið en ég hef enga þolinmæði gagnvart neinu sem þú segir svo athugasemdin þarf að vera góð.

Mofi, 1.11.2012 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 802693

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband