Er kristin trú fáránleg?

isaiah_53-5.jpgÉg rakst á blog grein þar sem var mynd sem setti fram skrípamynd af kristni.  Það er mjög skiljanlegt að einhverjum finnist hin kristna trú vera fáránleg ef hann sér hana þannig.

Framsetningin var sirka á þessa leið:

  • Guð skapar mann og konu syndug ( original sin )
  • Guð lætur konu fæða sjálfan sig.
  • Guð drepur sjálfan sig sem fórn fyrir sjálfan sig til að bjarga þér frá syndinni sem Guð upprunalega fordæmdi mannkynið í.

Í mínum augum er þetta röng framsetning. Svona sé ég þetta:

  • Guð skapar mann og konu án syndar.
  • Maðurinn velur að óhlíðnast Guði og fellur í synd. Enginn samt fæðist syndugur, aðeins með möguleikan að brjóta lögmál Guðs sem er skilgreining á hvað synd er.
  • Guð gerist maður til að nálgast sköpunarverk Sitt. Þegar kemur að dómnum þá höfum við dómara sem gékk í okkar skóm, upplifði okkar þjáningar og erfiðleika og sýndi okkur betri leið til að lifa lífinu.
  • Jesú er drepinn af þeim sem Hann skapaði og þykir vænt um. Til að borga gjald syndarinnar sem hver og einn valdi að drýgja. Guð hefur ákveðið að þessi heimur sem er fullur af illsku mun ekki fá að vara að eilífu heldur mun hann enda. Til þess að vond verk, þjáningar og illska endi þá þarf að tortýma þeim sem valda þessu. Fyrir þær verur sem hafa aldrei fallið í synd vaknar upp sú spurning, af hverju fá sumir eilíft líf þrátt fyrir að hafa logið, stolið, hatað og öfundað?  Svar Guðs við þessu óréttlæti er að Hann sjálfur borgaði þetta gjald.
Vonandi munu einhverjir velta þessum málum fyrir sér því að þetta er eina vonin andspænis dauða og sektarkennd sem ég veit um í þessum heimi okkar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þín saga er alveg fyndin og ótrúleg og hin útgáfan. Í alvöru :-)

Skeggi Skaftason, 26.4.2012 kl. 22:03

2 Smámynd: Mofi

Skeggi, eitthvað vantar upp á rökstuðninginn. Af hverju eiginlega að vera móðgandi, bara til að vera móðgandi?  Færðu eitthvað út úr því að rakka aðra niður án þess einu sinni að útskýra af hverju þú ert að því?  Ég bara vorkenni fólki eins og þér, þú átt bara bágt.

Mofi, 26.4.2012 kl. 22:24

3 Smámynd: Stefan

"Maðurinn velur að óhlíðnast Guði og fellur í synd. Enginn samt fæðist syndugur, aðeins með möguleikan að brjóta lögmál Guðs sem er skilgreining á hvað synd er."

Sálmur 51:7 "Sjá sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig" 

Guð réttlætir okkur og gerir okkur vegsamleg fyrir Jesús Krist. Þessi gjöf hefur ekkert með verk okkar að gera. En frá þessu augnabliki sem þú endur-fæðist þá mun Guð ávalt sjá þig vegsamlegan og réttlættan. rom 8:16

Synd er fjarvera frá Guði og eða að trúa ekki á Krist. Joh 16:9

Stefan, 27.4.2012 kl. 08:13

4 Smámynd: Mofi

Shu Fen, hérna er grein sem fjallar um þessi vers og af hverju við ættum ekki að skilja þau á þann hátt að Guð gerir fólk að sakamönnum áður en þeir brotið neitt af sér: http://www.christiancourier.com/articles/793-does-psalm-58-teach-original-sin   Slíkt væri óréttlátt og er einmitt atriði sem lætur suma finnast kristni vera fáránleg svo endilega ekki reyna að hjálpa til með það með svona rugli.

Shu Fen
Guð réttlætir okkur og gerir okkur vegsamleg fyrir Jesús Krist. Þessi gjöf hefur ekkert með verk okkar að gera. En frá þessu augnabliki sem þú endur-fæðist þá mun Guð ávalt sjá þig vegsamlegan og réttlættan. rom 8:16

Hefur mjög mikið með verk okkar að gera í þeim skilningi að sekt okkar kemur út frá verkum okkar því að synd er lögmálsbrot 

1. Jóhannesarbréf 3:4
Hver sem synd drýgir fremur og lögmálsbrot. Syndin er lögmálsbrot.

Synd eða lögmálsbrot orsakar fjarveru frá Guði og án hjálpar Guðs getum við ekki sigrað syndina. Endilega hugsaðu vel um þetta því að þetta sem þú ert að boða hérna hjálpar guðleysingjum að mála kristni sem mjög heimskulega og órökrétta og óréttláta trú.

Mofi, 27.4.2012 kl. 09:16

5 Smámynd: Óli Jón

Mofi: Enn og aftur er það lán kristinna að Biblían er einstaklega illa skrifuð, jafnvel í málsgrein sem er jafn afdráttarlaus og sú sem er hér ofar. Er þetta virkilega ekki þreytandi að þurfa að túlka þessa bók með svona rökfræðilegum kollhnísum og töfrafræðilegum útskýringum svo hún gangi upp?

Svo er það vissulega umhugsunarefni að aldrei eru 'góðu' hlutar Biblíunnar settir í gegnum þessa 'sannleikskvörn', bara þeir óheppilegu. Þetta túlkunarkerfi kristinna virðist afar hentugt og gott fyrir málstaðinn.

Óli Jón, 27.4.2012 kl. 15:19

6 Smámynd: Mofi

Óli Jón, Biblían er frekar löng og saga hennar löng og miljónir sem lesa hana og fæstir lesa hana í heild sinni svo ekki nema von að einhverjir hafi mismunandi skilning á henni. Fólk er síðan sjálft mjög ólíkt, með ólíkan bakgrunn og oftar en ekki bætir fólk sinni eigin trú ofan í það sem Biblían segir og áttar sig ekki á neinu.  Ég er engan veginn á því að alvöru bókmenntir séu þannig að þær eru það einfaldar að aðeins einn skilningur sé mögulegur og menn komist að þeim skilningi við fyrsta lestur. Miklu frekar að Biblían er fjarsjóður sem fólk er búið að finna mis mikið af perlum í og þess vegna virkar fyrir marga utan að komandi að hún sé óskýr.

Óli Jón
Þetta túlkunarkerfi kristinna virðist afar hentugt og gott fyrir málstaðinn.

Af hverju ekki bara að mismunandi fólk hefur mismunandi sannfæringu og skilning?  Þessi sundrung að minnsta kosti í mínum augum virkar ekkert svakalega hentug og góð fyrir málstaðinn.

Mofi, 27.4.2012 kl. 16:25

7 Smámynd: Óli Jón

Mofi: Vissulega má finna margar perlur í Biblíunni, um það verður ekki deilt. Á sama hátt má þar finna marga taðköggla, t.d. á borð við þennan sem sem nú er um rætt.

Það sem ég geri athugasemd við er að það skuli vera talið hægt að snúa út úr jafn afdráttarlausri fullyrðingu og kemur fram í tilvitnunni hér ofar í Sálm 51:7. Þetta er ekki hægt að túlka nema á einn veg ef maður les orðin eins og þau koma fyrir. Svo er auðvitað hægt að byrja að fabúlera með einhverjar aðrar meiningar, en þá er líka búið að grafa undan öllu ritinu í heild sinni þegar reynt er að bjarga í horn á einum stað. Getum við verið sammála um það?

Svo segir þú:

Af hverju ekki bara að mismunandi fólk hefur mismunandi sannfæringu og skilning?

En af hverju er þetta grundvallarrit svo loðið í framsetningu sinni að hægt sé að túlka það eftir hentugleika? Að tveir einstaklingar skuli geta lesið tvær andstæðar meiningar út úr sömu setningunni? Hvaða tilgangi þjónar það? Það kemur t.d. fram í ritinu að halda skuli hvíldardaginn heilagan, en það er þó ekki nægilega skýrt þegar kemur að því að skilgreina hver sá dagur er eins og þú þekkir vel. Þetta er auðvitað afar undarlegt og ber höfundum ritsins né ritinu sjálfu ekki fagurt vitni.

Óli Jón, 27.4.2012 kl. 16:55

8 identicon

Kristin trú er svo sannarlega ekki kjánaleg, og heimurinn væri vafalaust betri staður ef fleiri tileinkuðu sér boðskap þann sem Jesús boðar..

En hún virkar kjánaleg oft á tíðum þegar ákveðinn hópur kristinna fer að reyna réttlæta eða skýra margt af því kjánalega og hreinlega grimma sem varla er þverfótað fyrir í gamla testamentinu

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 19:24

9 Smámynd: Mofi

Óli Jón
Mofi:
Vissulega má finna margar perlur í Biblíunni, um það verður ekki deilt. Á sama hátt má þar finna marga taðköggla, t.d. á borð við þennan sem sem nú er um rætt.

Málið er að þegar ég kem að einhverju sem ég skil ekki við fyrstu sýn þá læt ég ekki eins og ég sé sá sem veit allt og skil hvað höfundurinn var að meina af því ég er svo vel að mér í hans menningu, hans notkun á orðum og fleira. Þú virðist hafa mjög hátt álit á sjálfum þér sem kemur þannig út að ef þú rakst á eitthvað sem þér finnst skrítið eða skilur ekki að þá ert það þú sem ert hinn eina sanna mælistika á hvað er rétt og hvað sé satt og allt sem passar ekki við þig er rangt.  Mér finnst þetta voðalega undarleg leið til að nálgast hluti, hvort sem það er fólk eða rit eða tónlist eða myndlist eða hvað annað.

Óli Jón
Það sem ég geri athugasemd við er að það skuli vera talið hægt að snúa út úr jafn afdráttarlausri fullyrðingu og kemur fram í tilvitnunni hér ofar í Sálm 51:7. Þetta er ekki hægt að túlka nema á einn veg ef maður les orðin eins og þau koma fyrir.

Margt í Biblíunni er myndrænt, ljóðrænt eða skoðun einhverra manna eða hvað þeir gerðu eða sögðu. 

Óli Jón
Það sem ég geri athugasemd við er að það skuli vera talið hægt að snúa út úr jafn afdráttarlausri fullyrðingu og kemur fram í tilvitnunni hér ofar í Sálm 51:7. Þetta er ekki hægt að túlka nema á einn veg ef maður les orðin eins og þau koma fyrir

Vandamálið er oft þýðingarnar og það er ekki hægt að kenna Biblíunni um að einhver gaur þýddi eitthvað einhvern tíman undarlega. Sérstaklega er pirrandi að í gegnum árin hafa menn þýtt inn í Biblíuna sínar eigin kennisetningar þannig að ég get svo sem skilið pirringinn í þeim sem eru í þínum sporum. En endilega, sýndu smá umburðarlindi og þolinmæði; það er margt sem spilar hérna inn í.

Í þessu dæmi t.d. þá þýðir King James útgáfan þetta svona:

Psa 58:3  The wicked are estranged from the womb: they go astray as soon as they be born, speaking lies. 

Sálmaskáldið er að kvarta yfir því að hinir "vondu" eru varla fæddir áður en þeir byrja að ljúga.

Óli Jón
En af hverju er þetta grundvallarrit svo loðið í framsetningu sinni að hægt sé að túlka það eftir hentugleika?

Af hverju ekki sannfæringu frekar en hentugleika?

Óli Jón
Hvaða tilgangi þjónar það? Það kemur t.d. fram í ritinu að halda skuli hvíldardaginn heilagan, en það er þó ekki nægilega skýrt þegar kemur að því að skilgreina hver sá dagur er eins og þú þekkir vel. Þetta er auðvitað afar undarlegt og ber höfundum ritsins né ritinu sjálfu ekki fagurt vitni.

Það er mjög skýrt að það ber að halda hvíldardaginn. Það er ekkert vers í Biblíunni sem segir að hvíldardagurinn er ekki lengur heilagur eða að fjórða boðorðið er afnumið. Jesú tók skýrt fram að Hann kom ekki til að afnema boðorðin.  Vandamálið hérna er miklu frekar óhlýðni fólks, það vill halda í sínar gömlu hefðir svo það rembist að finna eitthvað til að réttlæta það.  Þetta ber kristnum ekki fagurt vitni en maður þarf ekki að lesa mikið í Biblíunni um Ísrael til að sjá nákvæmlega hið sama; fólk alltaf að reyna að finna leiðir til að fara sína eigin leið frekar en hlýða skýru boðorði Guðs.

Mofi, 27.4.2012 kl. 23:25

10 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, það er mjög skiljanleg afstaða.

Mofi, 27.4.2012 kl. 23:26

11 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Las ekki kommentin.

En áhugaverð framsetning hjá þér.

kv

sll

Sleggjan og Hvellurinn, 2.5.2012 kl. 01:29

12 Smámynd: Jón Ragnarsson

Svona álíka fáránleg eins og vísindakirkjan...

Jón Ragnarsson, 2.5.2012 kl. 13:17

13 Smámynd: Stefan


Sæll Mofi,

Það er ekki gjörningurinn sem gerir þig viðskila við Guð, það er að þú fæðist með syndugt eðli. Þú ert fæddur inní heim þar sem allt er hneppt undir synd og börnin líka, þau hafa bara ekki brotið af sér ennþá. 

Þú vilt meina að ytri helgun eða helgun á holdinu sé það sama og helgunin sem Drottinn Jesús Kristur hefur gefið þér?.

Þú gerir lítið úr trú þinni þegar þú prétikar lögmálið eins og þú gerir og ferð á mis við fagnaðarerindið. Þú kennir fólki að það sé nauðsýnlegt að halda hvíldardaginn. Samt segir ritningin að við eigum ekki að taka hrós fyrir Hans verk.(Rom3:19-31)

 Allt sem Boðorðin 10 gátu ekki gert er gert í Kristi Jesús. (post 13:39)

Stefan, 2.5.2012 kl. 15:46

14 Smámynd: Mofi

Sleggan, gaman að heyra.

Jón Ragnarsson, af hverju?

Shu Fen, að halda boðorðin tíu getur ekki gert mann saklausann fyrir að hafa brotið þau. Án lögmálsins er engin þörf á fyrirgefningu og frelsara. Án lögmáls sem búið er að brjóta og laun syndarinnar er dauði er ekkert fagnaðarerindi.

Mofi, 2.5.2012 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 802783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband