Af hverju þurfti Jesú að deyja?

Kristnir segja oft, "Jesú dó fyrir þig því Hann elskaði þig svo mikið". Ég held samt að flestir þeirra sem eru ekki kristnir hrista bara hausinn við slíku og finnist það óskiljanlegt.  Ég skil þá mjög vel. Ein dæmisaga finnst mér útskýra þetta vel. Ímyndaðu þér að það komi til þín maður og segi við þig að hann seldi húsið sitt og allt sem hann átti til að kaupa handa þér meðal og hann væri núna að gefa þér það sem ókeypis gjöf frá honum.  Líklegast þægir þú gjöfina og þakkar fyrir þig en hristir síðan hausinn yfir vitleysunni í manninum.  En ef að sagan væri svona. Það kemur maður til þín og segir að þú hafir tíu einkenni sem sanni að þú hafir mjög alvarlegan sjúkdóm. Hann fer yfir þessi einkenni og þú sérð að þau eru öll rétt. Hann síðan sýnir þér greinar og myndir af fólki sem lést úr þessum sjúkdómi. Núna líklegast er hjartað byrjað að slá frekar hratt og ótti kominn yfir þig. Í örvæntingu spyr þú, hvað get ég gert, er til lækning. Maðurinn þá segir að hún sé til en hún sé mjög dýr en vegna þess að honum þyki vænt um þig þá mun hann selja allt sem hann á til að geta keypt handa þér lækninguna. 

skeleton.jpgEn getur þetta passað við sögu Biblíunnar af krossfestingunni?  Ég tel svo vera.  Biblían segir okkur að við höfum sjúkdóm sem hún kallar synd. Ef við höfum t.d. logið, stolið, öfundað eða hatað þá höfum við smitast. Afleiðingin er eitthvað sem við þekkjum mjög vel, dauði. Að verða eins og myndin hérna til hægri sýnir, eða eins og Guð orðaði þetta:

1. Mósebók 3
19
Í svita þíns andlitis skaltu brauðs þíns neyta
þar til þú hverfur aftur til jarðarinnar því af henni ertu tekinn. Því að mold ert þú og til moldar skaltu aftur hverfa.

Andspænis þessum raunveruleika kemur Biblían með boðskap vonar, að Guð myndi borga gjaldið með því að sonur Hans myndi deyja dauðanum sem við ættum skilið fyrir afbrot okkar svo við mættum lifa. Því síðan til sönnunar reisti Guð Jesú upp frá dauðum svo við mættum lifa í þeirri von að við verðum reist upp frá dauðum þegar að því kemur.

En svarar það spurningunni?  Ekki alveg. Málið er að á dómsdegi þá munu verða tveir hópar af fólki, báðir munu verða sekir um að ljúga, stela, öfunda og hata en einn hópurinn hlýtur eilíft líf á meðan hinum hópnum er refsað og deyr hinum seinni dauða en hann er eilífur. Með því að borga sjálfur gjaldið þá er Guð bæði réttlátur og kærleiksríkur. Þeir sem munu öðlast eilíft líf munu gera það þrátt fyrir eigin sekt en vegna þess að þeir meðtóku gjöfina sem Guð bauð þeim þá mun sýkna þá og gefa þeim eilíft líf. Þeir sem glatast munu gera það vegna þeirra eigin gjörða og dómurinn yfir þeim verður réttlátur. Þeir höfnuðu Guði, lögum Guðs og þeirrar fyrirgefningar sem Hann bauð þeim.

Mér þykir vænt um hvernig Jesaja lýsti þessum, mörg hundruð árum fyrir Krist:

Jesaja 53
1
Hver trúði því sem oss var boðað
og hverjum opinberaðist armleggur Drottins?
2Hann óx upp eins og viðarteinungur fyrir augliti Drottins,
eins og rótarkvistur úr þurri jörð.
Hann var hvorki fagur né glæsilegur ásýndum
né álitlegur svo að oss fyndist til um hann.
3Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann,
harmkvælamaður og kunnugur þjáningum,
líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir,
fyrirlitinn og vér mátum hann einskis.
4
En vorar þjáningar voru það sem hann bar

og vor harmkvæli er hann á sig lagði.
Vér álitum honum refsað,
hann sleginn og niðurlægðan af Guði.
5En hann var særður vegna vorra synda,
kraminn vegna vorra misgjörða.
Honum var refsað svo að vér fengjum frið
og fyrir benjar hans urðum vér heilbrigðir.
6Vér fórum allir villir vegar sem sauðir,
héldum hver sína leið
en Drottinn lét synd vor allra
koma niður á honum.
7Hann var hart leikinn og þjáður
en lauk eigi upp munni sínum
fremur en lamb sem leitt er til slátrunar
eða sauður sem þegir fyrir þeim er rýja hann,
hann lauk eigi upp munni sínum.
8Hann var fjötraður, dæmdur og leiddur burt
en hver hugsaði um afdrif hans
þegar hann var hrifinn burt af landi lifenda?
Vegna syndar míns lýðs var honum refsað.
9Menn bjuggu honum gröf meðal guðlausra,
legstað meðal ríkra
þótt hann hefði ekki framið ranglæti
og svik væru ekki í munni hans.
10En Drottni þóknaðist að kremja hann og þjaka.
Þar sem hann færði líf sitt að sektarfórn
fær hann að sjá niðja sína og lifa langa ævi
og vegna hans nær vilji Drottins fram að ganga.
11Að þjáningum sínum loknum mun hann sjá ljós
og seðjast af þekkingu sinni.
Þjónn minn mun réttlæta marga
því að hann bar syndir þeirra.
12Þess vegna fæ ég honum hlutdeild með stórmennum
og hann mun skipta feng með voldugum
vegna þess að hann gaf líf sitt í dauðann
og var talinn með illræðismönnum.
En hann bar synd margra
og bað fyrir illræðismönnum

mbl.is Árleg krossfesting á Filippseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú reynir, Mofi. Góður.

Þó mega kristnir ekki deyja í alvarlegri synd. Það jafngildir því að hafna gjöfinni.

Jón Valur Jensson, 7.4.2012 kl. 04:32

2 Smámynd: Skeggi Skaftason

Biblían segir okkur að við höfum sjúkdóm sem hún kallar synd. Ef við höfum t.d. logið, stolið, öfundað eða hatað þá höfum við smitast.

Við þurfum ekki að ljúga eða stela. Biblían kennir að við fæðumst syndug. Tveggja daga ungabarn er syndugt og fer til helvítis ef það fylgir ekki Jesúm. Falleg trú eða hitt þó heldur.

Málið er að á dómsdegi þá munu verða tveir hópar af fólki, báðir munu verða sekir um að ljúga, stela, öfunda og hata en einn hópurinn hlýtur eilíft líf á meðan hinum hópnum er refsað og deyr hinum seinni dauða en hann er eilífur.

Finnst þér ekkert athugavert við svona trú sem gengur út á hótun og kúgun? Í mínum augum er þessi Guð þinn ljótur og vondur.

Skeggi Skaftason, 7.4.2012 kl. 09:15

3 Smámynd: Mofi

Sammála Jón, kristnir þurfa daglega að ganga með Guði því allir geta villst af veginum.

Mofi, 7.4.2012 kl. 09:46

4 Smámynd: Mofi

Skeggi
Við þurfum ekki að ljúga eða stela. Biblían kennir að við fæðumst syndug. Tveggja daga ungabarn er syndugt og fer til helvítis ef það fylgir ekki Jesúm. Falleg trú eða hitt þó heldur.
Það er ekki mín trú og ég kannast ekki við vers í Biblíunni sem kennir þetta. Biblían segir að synd er lögmálsbrot ( 1. Jóhannesarbréf 3:4 ) og ungabörn hafa ekki brotið lögmálið viljandi.
Skeggi
Finnst þér ekkert athugavert við svona trú sem gengur út á hótun og kúgun? Í mínum augum er þessi Guð þinn ljótur og vondur.
Ég sé aðeins réttlæti. Hvers konar framtíðar heimur væri það ef að þeir sem vilja ekki hætta að ljúga, stela og hata fá eilíft líf? Paradís yrði fljótlega að helvíti ef að þannig fólk fengi að komast þar inn. Ég tel þetta mjög eðlilegar kröfur sem Guð gerir; miklu frekar ótrúlega umburðarlindur gagnvart okkur að gefa þeim sem hafa gert þessa hluti samt séns.

Mofi, 7.4.2012 kl. 09:50

5 Smámynd: Skeggi Skaftason

Mofi,

kannastu ekki við syndafallið?

þetta stendur í Ágsborgarjátningunni:

Eftir fall Adams fæðast allir menn, sem getnir eru á eðlilegan hátt, með synd, en það merkir án guðsótta, án guðstrausts og með girnd. Þessi upprunasjúkdómur eða spilling er raunveruleg synd, sem dæmir seka og steypir í eilífa glötun þeim sem ekki endurfæðast fyrir skírn og heilagan anda.

Skeggi Skaftason, 7.4.2012 kl. 18:51

6 Smámynd: Mofi

Skeggi, Orð Guðs er það sem skiptir máli; ekki það sem menn hafa skáldað upp. Ég veit ekki um neinn sem trúir að börn sem deyja fara til helvítis fyrir utan þá trúi ég ekki á helvíti:

Hvað og hvar er helvíti?

Hugmyndin um Helvíti á ekki heima í Biblíunni

Hvað gerist þegar maður deyr, hvað er helvíti?

Mofi, 7.4.2012 kl. 19:13

7 Smámynd: Skeggi Skaftason

Hvað merkir erfðasyndin í þínum huga?

Skeggi Skaftason, 7.4.2012 kl. 19:21

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Lútherska skilgreiningin á þessari syndsemi OG afleiðingum hennar er mjög hörð, eins og sést á Ágsborgarjátningunni. Þeir kusu þetta í stað hinna mildari viðhorfa kaþólskunnar, en hvað um það, þeir töldu sig þurfa að fylgja sinni prívattúlkun og hafna kennivaldi kirkjunnar -- stofnuðu þá bara nýja! Svo byrjuðu strax hjá þeim vandræði með sakramentin, hve mörg þau væru, hringlað milli þriggja eða tveggja, unz Lúther var orðinn svo óskeikull á efri árum, að þeir gátu leyft sér að hafna skriftunum sem sakramenti. En það var líka hringlað með það, hvort tala mætti um biskupa í kirkju þeirra og postullega vígsluröð slíkra sem nauðsyn; ennfremur um signinguna, það varð dauðasök að signa sig í Svíþjóð! Svo bætast við alls konar skrýtnar trúvilluáherzlur á seinni öldum, jafnvel pelagíanskar á 20. öld, en einna verstar á 21. öld, eins og allir hér ættu að vita. Harðlínu-lútherska kirkjan er þannig búin að taka gagntækri umbreytingu yfir í ofurlíberala, princíplausa módernistakirkju, og svo boða skoðanafantar þar eins og Baldur í Þorlákshöfn, að gera eigi prestum þar SKYLT að vígja saman samkynhneigða, ella beri að svipta þá kjóli og kalli !!! Afar heimskulegt af þeim karli, en sýnir, að harðlínumennskan hefur ekki yfirgefið þetta trúfélag hans, þótt nú sé með öfugum formerkjum miðað við það, sem áður var! Og hann er ekki einn um þessa stjórnsemi, jafnvel gamall KFUM-ari og áður mikill gnesio-lutheran (hreinlútherskur), prófessorinn í kirkjusögu, hefur talað í þessa átt líka og það á kirkjuþingi!!

Jón Valur Jensson, 7.4.2012 kl. 23:39

9 Smámynd: Mofi

Skeggi, miðað við skilgreiningu Biblíunnar að synd er lögmálsbrot þá eru börn ekki syndug þegar þau fæðast. Ég skil þetta þannig að við fæðumst í syndugan heim og við höfum tilhneigingu til að syndga og þurfum að beita okkar til að falla ekki synd. Fyrirgefningin og eilíft líf stendur síðan öllum til boða sem falla í synd.

Mofi, 7.4.2012 kl. 23:54

10 Smámynd: Skeggi Skaftason

Mofi,

fyrirgefningin og eilíft líf standa einungis þeim til boða sem eru tilbúnir að trúa á Jesú og Guð. Jesús hótar hinum að hann muni svo snúa aftur á hinsta degi og dæma þá.

situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða

Segið þið mér aftur, hvað ætlar hann að gera við okkur á þessum hinsta degi þegar hann snýr aftur, okkur sem neitum að hlýða þessum hótunum og trúum því ekki að hann raunverulega sé hálf-Guð?

Skeggi Skaftason, 8.4.2012 kl. 00:27

11 Smámynd: Skeggi Skaftason

Kostulegt að sjá hér sakramentisfræðingin Jón Val mæta og fræða okkur. Er það ekki einn helsti munur á kaþólsku kirkjunni og þeirri lútersku, að kaþólskir kenna að oblátan og vínið bókstaflega breytist í blóð og hold Jesú? Eigum við að taka þá alvarlega?

En fyrirgefið mér að láta svona. Hlaupinn páskapúki í mig. Eigið gleðilega páska með ykkar hætti.

Skeggi Skaftason, 8.4.2012 kl. 00:31

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við kaþólskir trúum orðum Krists.

Jón Valur Jensson, 8.4.2012 kl. 00:40

13 Smámynd: Mofi

Skeggi
fyrirgefningin og eilíft líf standa einungis þeim til boða sem eru tilbúnir að trúa á Jesú og Guð. Jesús hótar hinum að hann muni svo snúa aftur á hinsta degi og dæma þá.

Já, ef einhver vill ekki þá fyrirgefningu og gjöf sem Jesú býður þeim þá bíður þeirra réttlæti eða dómur. 

Skeggi
Segið þið mér aftur, hvað ætlar hann að gera við okkur á þessum hinsta degi þegar hann snýr aftur, okkur sem neitum að hlýða þessum hótunum og trúum því ekki að hann raunverulega sé hálf-Guð?

Sá sem vill ekki vináttu við þann sem er lífið sjálft mun deyja því laun syndarinnar er dauði ( Róm 6:23 )

Ég myndi ekki festa mig of mikið í ákveðnum trúarsetningum eins og að það sem skipti máli væri að hafa hátt skor á prófi.

Mofi, 8.4.2012 kl. 00:47

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jesús er Guð, Skeggi, Guð og maður, en ekki hálfguð.

Hann hótar engu, heldur segir fyrir um það sem verður.

Jón Valur Jensson, 8.4.2012 kl. 02:59

15 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Maðurinn þá segir að hún sé til en hún sé mjög dýr en vegna þess að honum þyki vænt um þig þá mun hann selja allt sem hann á til að geta keypt handa þér lækninguna."

Guð borgaði fyrir syndirnar en síðan tók hann greiðsluna til baka. Sonurunn reis jú upp aftur.

Maðurinn selur allt sem hann á til að geta keypt handa þér lækningina en tekur síðan allt tilbaka sem hann seldi. Hver verður þá lækningin? Hvers konar maður gerir slíkt? Hann gefur allt sem hann á svo að þú megir læknast en hann tekur síðan all til baka allt sem hann gaf. Hefur hann þá í raun gefir eitthvað? Guð gaf son sinn til að lækna syndirnar en síðan tók hann soninn aftur. Komu þá ekki syndirnar tilbaka?

Þessi páskasaga er falleg en hún er ekki rökrétt. Sá sem borgar gjaldið en tekur síðan greiðsluna til baka getur ekki annað en talist óheiðarlegur.

Upprunalega sagan segir að vetur og dauði komi, og lífið legst í dvala eða deyr. Síðan kemur vor og dýr og jurtir lifna við aftur, rísa upp frá dauðum. Þetta er gangur náttúrunnar en í þessu felst enginn lækning eða fyrirgefning...

Hörður Þórðarson, 8.4.2012 kl. 07:25

16 Smámynd: Mofi

Hörður, ég sé þetta ekki þannig að greiðslan var tekin til baka og ekki heldur að lækningin var tekin til baka.

Mofi, 8.4.2012 kl. 09:55

17 Smámynd: Skeggi Skaftason

Jæja félagar.

Ég maula glaður mitt páskaegg og óttast ekki eldsdíkið. Ég trúi því ekki að ég verði sendur þangað fyrir þær sakir að trúa ekki á Guð og Jesú.

Veit ekki hverju þið trúið.

Skeggi Skaftason, 8.4.2012 kl. 11:01

18 Smámynd: Mofi

Skeggi, trúir þú því að þú munir deyja?

Mofi, 8.4.2012 kl. 11:04

19 Smámynd: Skeggi Skaftason

Mofi,

nei ég "trúi" því ekki að ég muni deyja. Ég VEIT það fyrir víst að ég muni deyja. Og óttast það ekki.

Skeggi Skaftason, 8.4.2012 kl. 11:37

20 Smámynd: Stefan

"Þó mega kristnir ekki deyja í alvarlegri synd. Það jafngildir því að hafna gjöfinni."

Þannig Kristur dó ekki fyrir alvarlegar syndir? Þetta er svo kaþolskt að það er eins og sé sé stödd aftur heima í Singapore í kirkjunni sem ég ólst uppí að tala við prestinn. 

Það er svona boðskapur sem er heimskulegur og heldur syndurum frá því að geta eignast Guðs gjöf. Annað hvort Dó Kristur fyrir allar syndir eða enga. 

Þú getur lesið í Jóhannes þegar Jesús útskýrir hvað er synd, synd er að trúa ekki á hann. Annað hvort ertu syndari eða þú ert Guðs Barn. Hvernig getur þitt verk eiðilagt eilíft verk Guðs? 

í 1 jóhannesb 3:9 segir að börn Guðs geti ekki drýgt synd. þú ert of kaþolskur til að skilja þetta Jón, þú ættir að leifa Kristi að útskyra þetta fyrir þér. 

Stefan, 8.4.2012 kl. 12:13

21 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta orti ég í nótt, er ég bjóst við hinu versta frá Skeggja, en hann hefur reyndar sýnt sig með friðsamara móti og jafnvel vinsamlegu, þannig að þetta á síður við núna en oft áður, þótt ekki sé hann laus við villuna:

.

Don't kill me with your unbelief

on Easter morning!

If you're that bad, you'd better leave.

Such sounds my warning.

.

No thought can ever your points prove.

Opinionated,

you never see through your own roof

in things debated.

.

Jón Valur Jensson, 8.4.2012 kl. 13:45

22 Smámynd: Mofi

Skeggi
nei ég "trúi" því ekki að ég muni deyja. Ég VEIT það fyrir víst að ég muni deyja. Og óttast það ekki.

Ef þú ert sáttur við dauðann þá hefur Guð lítið að bjóða þér, ef þú vilt ekki líf með Honum þá virðir Guð það val þitt.

Mofi, 8.4.2012 kl. 21:44

23 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Ég held að það sé hægt að koma með miklu betri samanburð heldur en sjúkdóm. 

Guðinn þinn er eins og konungur sem setur lög í ríkinu sínu og refsingin við því að brjóta lögin hans er dauði. Guðinn þinn vill síðan ekki drepa sumt af fólkinu sem brýtur reglurnar hans, þannig að hann lætur drepa sjálfan sig (en eiginlega ekki, það er bara plat-dauði) svo að það sé þegar búið að refsa einhverjum fyrir brotin þeirra. Ótrúlegt rugl!

Mofi, svo finnst mér alltaf jafn merkilegt að sjá hve miklu nær þú ert kaþólsku kirkjunni heldur en siðbótarmönnum eins og Lúther.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 9.4.2012 kl. 18:27

24 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það var ekkert "plat" við það, hvernig Jesús var píndur og síðan deyddur með hryllilegum hætti. Hann dó dauða manns, ekkert minna en við hin eigum eftir að gera. Hins vegar eigum við öll eftir að rísa upp -- til lífs með þeim Guði, sem er ekki bara konungur okkar, heldur bæði skapari og frelsari, og þó frelsumst við því aðeins, að við viljum þiggja gjöfina, og það þýðir líka að vilja samverka með henni, þótt mátturinn og dýrðin séu Guðs.

Jón Valur Jensson, 9.4.2012 kl. 19:38

25 Smámynd: Mofi

Hjalti, þú sérð dauða og þjáningu Krists sem plat, ertu alveg viss?  Þú vonandi skilur af hverju ég sé mjög svo raunverulega þjáningu og dauða þó að dauðinn var ekki eilífur.  Til að það geti verið réttlæti að sumir deyja og aðrir deyja ekki þrátt fyrir að vera sekir um sömu afbrot þá þarf einhver að borga fyrir þau afbrot.  Ég skil ekki hvað þú sérð að þessu.

Hvað akkúrat lætur þig finnast ég vera nær Kaþólsku kirkjunni en Lúther?

Mofi, 10.4.2012 kl. 10:01

26 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, ég kalla það plat-dauða að vera bara dáinn í nokkra klukkustundir. 

Hvað akkúrat lætur þig finnast ég vera nær Kaþólsku kirkjunni en Lúther?

Myndin sem þú hefur af guði er guð sem er að reyna eins og hann getur að bjarga öllu fólki, en að það sem að ræður úrslitum er hvort að fólk noti frjálsan vilja sinn til að trúa guði eða ekki.

Lúther skrifaði heilt rit gegn frjálsum vilja, og í því riti talar hann um að það sé 100% verk guðs að frelsa fólk. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 11.4.2012 kl. 10:29

27 Smámynd: Mofi

Ég lít á þjáningar Krists og dauða sem allan pakkann, einfaldlega sú refsing sem Guð leit á sem uppfyllingu á lögmálinu. Sömuleiðis að andlegu kvalirnir og aðskilnaður frá Guði var aðal atriðið. 

Hjalti
Myndin sem þú hefur af guði er guð sem er að reyna eins og hann getur að bjarga öllu fólki, en að það sem að ræður úrslitum er hvort að fólk noti frjálsan vilja sinn til að trúa guði eða ekki.

Nota sinn frjálsa vilja til að iðrast, snúa við blaðinu og setja traust sitt á Jesú.

Hjalti
Lúther skrifaði heilt rit gegn frjálsum vilja, og í því riti talar hann um að það sé 100% verk guðs að frelsa fólk.

Ég kannast ekki við þá afstöðu Lúthers, ef þetta er afstaða Lúthers þá er ég sammála að það er verk Guðs að frelsa fólk en Guð brýtur ekki á þeirra sjálfstæða vilja til að gera það. Kannski er ég hérna alveg ósammála Lúther, ég er að minnsta kosti á því að frjáls vilji skiptir miklu máli í þessu máli.

Mofi, 11.4.2012 kl. 13:24

28 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjalti með sina margföldu lygi (jafnvel í tvíþættri merkingu): "Mofi, ég kalla það plat-dauða að vera bara dáinn í nokkra klukkustundir."

Jón Valur Jensson, 11.4.2012 kl. 19:28

29 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Ég kannast ekki við þá afstöðu Lúthers, ef þetta er afstaða Lúthers þá er ég sammála að það er verk Guðs að frelsa fólk en Guð brýtur ekki á þeirra sjálfstæða vilja til að gera það. Kannski er ég hérna alveg ósammála Lúther, ég er að minnsta kosti á því að frjáls vilji skiptir miklu máli í þessu máli.

Já, þú ert ósammála mótmælendanum Lútheri, en sammála kaþólikkanum Erasmusi. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.4.2012 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 802695

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband