Hvers konar rugl er þetta?

Breivik á að vera læstur inn í einhverri holu þar sem hann myndi upplifa það að vera gleymdur og trollum gefinn. Að hann og hans stefnuskrá væru sama sem gleymdar og enginn vill muna eftir honum. Þarna er verið að veita Breivik hans drauma, öll þessi athygli og að fá að tjá sínar brengluðu skoðanir er einmitt draumur hans. Það er algjörlega fáránlegt að uppfylla drauma fjöldamorðingja og hjálpa honum að dreifa hans hatursboðskap út um allan heim.
mbl.is Breivik á marga pennavini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bjarni Steinsson

Ég hélt að þú værir þeirrar skoðunar að menn mættu tjá sig eins og þeir vildu, í krafti tjáningarfrelsisins.

Eða á það bara við þegar þú ert sammála boðskap viðkomandi?

Jón Bjarni Steinsson, 23.2.2012 kl. 17:39

2 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, nei, Breivik hefur afsalað sér öllum rétti til að tjá sig; dáldið eins og þú hefur gert hið sama, að minnsta kosti á mínu bloggi.

Mofi, 23.2.2012 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband