Af hverju þarf maður fyrirgefningu Guðs?

hungry_orphan_child.jpgÞessi frétt minnti mig á spurningu sem ég fékk fyrir nokkru en hún var af hverju þarf maður fyrirgefningu Guðs. Það sem viðkomandi var að velta fyrir sér, af hverju Guð væri að blanda sér inn í það þegar maður hefur gert eitthvað á hlut annars manns.

Eftir smá íhugun og spjall við vini þá mig að reyna að svara þessu.  Ef að maður drepur son eða dóttur annars manns, hefur hann þá ekki gert eitthvað á hlut foreldranna?  Svarið er augljóslega "já". Biblían segir mjög skýrt að við erum börn Guðs og þegar við meiðum eða særum eitt af þeim þá erum við að brjóta á móti Guði sjálfum.  Þegar við komum illa fram við einhvern, skiljum einhvern eftir út undan, ljúgum einhverju upp á einhvern annan og svona mætti lengi telja. Allt er þetta gert við einhvern sem er barn Guðs og þar sem Guð er alvitur þá þekkir Hann þjáningar hvers og eins.

Um þetta efni sagði Jesús:

Matteusarguðspjall 25:31-41
Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. 32Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun skilja þær að eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. 33Sauðunum skipar hann sér til hægri handar en höfrunum til vinstri. 34Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: Komið þér, sem faðir minn á og blessar, og takið við ríkinu sem yður var ætlað frá grundvöllun heims. 35Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, 36nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.
37Þá munu þeir réttlátu segja: Drottinn, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? 38Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? 39Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín? 40Konungurinn mun þá svara þeim: Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.
41Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld sem búinn er djöflinum og árum hans

 


mbl.is Sjúklingar pyntaðir í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sé ekki að pistill þinn hafi með fréttina að gera, það er allt í lagi.

En ég trúi því og treysti að þú læknist af þínum Guðsótta, get bætt því við að hann er óþarfi þar sem enginn guð er til...

Kveðja

Kaldi...

Ólafur Björn Ólafsson, 25.10.2011 kl. 17:17

2 Smámynd: Mofi

Ólafur, kannski dáldið óbeint en samt nokkuð greinilegt að þarna var verið að pynta börn Guðs. Fyrir mig er miklu ógnvænlegri tilhugsun að Guð sé ekki til. Leitt að þú skulir hafa þessa trú en á meðan það er lífsandi í þér þá er enn von. Í von að þér batni.

Kv,
Halldór

Mofi, 26.10.2011 kl. 12:29

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Ég er enn heill heilsu þrátt fyrir að vera laus við að hafa einhverjar ímyndaðar verur sem átrúnaðargoð. Fyrir mér erum við öll íbúar á jörðinni (alheiminum) og þurfum að haga okkur miðað við það. Sumir fara illa að ráði sínu og beita bellibrögðum til að ná völdum. Ég er á móti valdbeitingum sem eru á móti íbúum þessa heims sem við lifum í. Að þurfa að trúa á ímyndaðar verur er ekki til að hjálpa mér til að sjá það óréttlæti sem víða finst.

Það gæti heldur ekki hjálpað mér að sjá það góða í mönnum/konum. Ég er hinsvegar mikið fyrir réttlæti og get ég ekki fundið slíkt í trúarritum hverskonar.

Ekki nema ef vera skyldi að maður taki þessi svokölluðu boðorð sem guðstrúaðir tala svo mikið um en eru í miklum vandræðum með að fylgja.

Með kveðju og von um áframhaldandi skrif, ég trúi því að þú sért góður maður þó að þú hafir þessa trú.

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 26.10.2011 kl. 14:01

4 Smámynd: Mofi

Hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er gott fyrir samfélagið og hvað er slæmt fyrir það er eitthvað sem menn hafa rifist um í meira en þúsund ár. Minn punktur er að það er ekki eins auðvelt og margur heldur. Endilega rannsakaðu Nýja Testamentið og athugaðu hvað þú finnur þar. Það sem mér finnst slæmt við guðsafneitun er hvað það þýðir fyrir okkar tilvist, rænir hana tilgangi og von þar sem þetta líf verður upphafið og endir alls.  Vil engum svo illt að hans tilvera sé þannig þó að auðvitað margir hafa fundið leið til að lifa með þannig hugmyndum.

Endilega kíktu sem oftast við og ef þú ert með einhverjar hugmyndir um efni sem ég gæti fjallað um, láttu mig þá vita.

Mofi, 26.10.2011 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband