Ef að Biblían styddi hugmyndina um helvíti

gates_of_hell.jpgMig langar að fara yfir nokkur vers í Biblíunni og hvernig þau ættu að vera ef að hugmyndin um helvíti, að kærleiksríkur Guð velji að kvelja sköpun sína í miljónir ára.  Svo það fari ekki fram hjá neinum, þessi vers eru ekki svona í Biblíunni en ættu að vera það ef þessi hugmynd væri kennd af Biblíunni.

1. Mósebók 2 - Gen 2:16
Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: "Af öllum trjám í aldingarðinum máttu eta eftir vild, en 2:17  en af skilningstrénu góðs og ills mátt þú ekki eta, því að ef þú etur af því mun ég kvelja þig og miljónir afkomenda þinna í eldi að eilífu.
1. Mósebók 3:19 
Í sveita andlitis þíns skalt þú neyta brauðs þíns, þangað til þú ferð til helvítis... Því að mold ert þú og þannig mun ég kvelja þig í eldi að eilífu
Ezekíel 18:20 
Sá maður, sem syndgar, Guð mun kveikja í honum og kvelja hann að eilífu.
Predikarinn 9:5
Því að þeir sem lifa, vita að þeir eiga að deyja, og hinir dauðu vita enn betur, þeir eru í helvíti og hljóta refsingu núna og á dómsdegi og síðan um alla eilífð. Já, og minning þeirra gleymist. 
Sálmarnir 115:17 
Andaðir menn lofa Drottin, þ.e.a.s. þeir sem fóru í faðm Abrahams; hinir kvarta og keina enda er verið að kvelja þá um aldur og æfi; meira að segja þeir sem hnignir eru í dauðaþögn,
Sálmarnir 37:20 
En það verður kveikt í hinum óguðlegu og þeir kvaldir að eilífu, og óvinir Drottins eru sem skraut vallarins: þeir kveljast og hverfa aldrei.
Sálmarnir 145:20
Drottinn varðveitir alla þá er elska hann, en kvelur að eilífu alla nýðinga.
Jóhannes 3:16 
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir verði ekki kvaldur í eldi að eilífu, heldur hafi eilíft líf... ekki í eldi auðvitað og ekki kvalinn eins og hinir verða sem öðlast eilíft líf líka en...
Jóhannesar guðspjall 12:48 
Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum, hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi. Að vísu er verið að kvelja alla sem hafa dáið í syndum sínum í Sheol en það verður ennþá verra þegar búið er að reisa þá upp frá dauðum og dæma þá.
Jakobsbréf 1:15 
Þegar girndin síðan er orðin þunguð, elur hún synd, og þegar syndin er orðin fullþroskuð, fæðir hún eilífar kvalir í eldi.
Hebreabréfið 2:14 
Þar sem nú börnin eru af holdi og blóði, þá hefur hann og sjálfur fengið hlutdeild í mannlegu eðli á sama hátt, til þess að hann með dauða sínum gæti að engu gjört þann, sem hefur mátt dauðans, það er að segja djöfulinn, 
1. Tímóteusarbréf 6:14 
Gæt þú boðorðsins lýtalaust, óaðfinnanlega allt til endurkomu Drottins vors Jesú Krists, 15  sem hinn blessaði og eini alvaldur mun á sínum tíma birtast láta, konungur konunganna og Drottinn drottnanna.
16  Hann einn hefur ódauðleika, ásamt öllum mönnum og öllum syndurum því að syndarar hafa eilífa, ódauðlega sál.
Opinberunarbókin 21:4
Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, syndarar aftur á móti harma og kveina enda munu þeir kvaldir verða að eilífu. Ef þú hélst að það voru þjáningar í hinu fyrra lífi, bíddu bara.

Þetta er bara brot af því sem ég gæti týnt til. Væri Biblían ekki uppörvandi og skemmtileg lesning ef hún væri svona?  Kæmi það ekki skínandi fram hve mikið Guð elskar börnin sem Hann skapaði?

Fyrir þá sem vilja vita hvað Biblían raunverulega kennir um helvíti þá er hérna síða sem ég mæli með, sjá: http://stjohnssdachurch.netadvent.org/death.html

Það er aðeins ein vera sem gæti innihaldið svo mikla illsku að vera til í að kvelja fólk í miljónir ára og það er djöfulinn. Ég hreinlega get ekki séð betur en þeir sem tilbiðja veru sem þeir trúa að muni kvelja fólk að eilífu, eru í rauninni að tilbiðja djöfulinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Gíslason

ef það er ekki til helvíti hvað verður þá um Guðleysingja og Dawinista eins og mig?

Jónatan Gíslason, 18.10.2010 kl. 11:38

2 Smámynd: Mofi

Jónatan, það sem þú þegar telur að muni gerast, mun gerast. Að vísu verður líka dómur, áður en það sem þú telur muni gerast, gerist.

Mofi, 18.10.2010 kl. 11:41

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Skemmtilegt að sjá þetta hjá þér Mofi, minnir mig á þýðingartillögurnar sem ég kom með fyrir nýju biblíuna ;)

Annars verð ég að benda á eitt í sambandi við 1Mós 2.17, þar er talað um að deyja á þeim degi sem hann borðaði af trénu. Það gerðist auðvitað ekki.

En það er líka gaman að pæla í því hve það væri miklu auðveldara ef biblían væri jafn auðskiljanleg og það sem þú skrifar. T.d. hefði verið fínt að hafa vers sem myndi segja: "Fólk verður ekki kvalið að eilífu. Því verður eytt, það verður ekki lengur til." Og það sama má segja um fleiri kenningar (t.d. þrenninguna). 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 18.10.2010 kl. 14:27

4 Smámynd: Mofi

Takk Hjalti :)

Hjalti
Fólk verður ekki kvalið að eilífu. Því verður eytt, það verður ekki lengur til.

Ég sé ekki betur en það er tekið fram nokkuð skýrt:

Malachi 4:1-3 For behold, the day cometh, that shall burn as an oven; and all the proud, yea, and all that do wickedly, shall be stubble: and the day that cometh shall burn them up, saith the Lord of hosts, that it shall leave them neither root nor branch." "And ye shall tread down the wicked; for they shall be ashes under the soles of your feet in the day that I shall do this, saith the Lord of hosts."

2 Thessalonians 1:9
They will be punished with everlasting destruction and shut out from the presence of the Lord and from the majesty of his power
Philippians 3:18-19
For I have told you often before, and I say it again with tears in my eyes, that there are many whose conduct shows they are really enemies of the cross of Christ.
Their destiny is destruction, their god is their stomach, and their glory is in their shame. Their mind is on earthly things
Sammála með þrenninginu...

 

Mofi, 18.10.2010 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 802756

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband