Af hverju þurfti Jesú að deyja?

Kristnir segja oft, "Jesú dó fyrir þig því Hann elskaði þig svo mikið". Ég held samt að flestir þeirra sem eru ekki kristnir hrista bara hausinn við slíku og finnist það óskiljanlegt.  Ég skil þá mjög vel. Ein dæmisaga finnst mér útskýra þetta vel. Ímyndaðu þér að það komi til þín maður og segi við þig að hann seldi húsið sitt og allt sem hann átti til að kaupa handa þér meðal og hann væri núna að gefa þér það sem ókeypis gjöf frá honum.  Líklegast þægir þú gjöfina og þakkar fyrir þig en hristir síðan hausinn yfir vitleysunni í manninum.  En ef að sagan væri svona. Það kemur maður til þín og segir að þú hafir tíu einkenni sem sanni að þú hafir mjög alvarlegan sjúkdóm. Hann fer yfir þessi einkenni og þú sérð að þau eru öll rétt. Hann síðan sýnir þér greinar og myndir af fólki sem lést úr þessum sjúkdómi. Núna líklegast er hjartað byrjað að slá frekar hratt og ótti kominn yfir þig. Í örvæntingu spyr þú, hvað get ég gert, er til lækning. Maðurinn þá segir að hún sé til en hún sé mjög dýr en vegna þess að honum þyki vænt um þig þá mun hann selja allt sem hann á til að geta keypt handa þér lækninguna. 

skeleton.jpgEn getur þetta passað við sögu Biblíunnar af krossfestingunni?  Ég tel svo vera.  Biblían segir okkur að við höfum sjúkdóm sem hún kallar synd. Ef við höfum t.d. logið, stolið, öfundað eða hatað þá höfum við smitast. Afleiðingin er eitthvað sem við þekkjum mjög vel, dauði. Að verða eins og myndin hérna til hægri sýnir, eða eins og Guð orðaði þetta:

1. Mósebók 3
19
Í svita þíns andlitis skaltu brauðs þíns neyta
þar til þú hverfur aftur til jarðarinnar því af henni ertu tekinn. Því að mold ert þú og til moldar skaltu aftur hverfa.

Andspænis þessum raunveruleika kemur Biblían með boðskap vonar, að Guð myndi borga gjaldið með því að sonur Hans myndi deyja dauðanum sem við ættum skilið fyrir afbrot okkar svo við mættum lifa. Því síðan til sönnunar reisti Guð Jesú upp frá dauðum svo við mættum lifa í þeirri von að við verðum reist upp frá dauðum þegar að því kemur.

En svarar það spurningunni?  Ekki alveg. Málið er að á dómsdegi þá munu verða tveir hópar af fólki, báðir munu verða sekir um að ljúga, stela, öfunda og hata en einn hópurinn hlýtur eilíft líf á meðan hinum hópnum er refsað og deyr hinum seinni dauða en hann er eilífur. Með því að borga sjálfur gjaldið þá er Guð bæði réttlátur og kærleiksríkur. Þeir sem munu öðlast eilíft líf munu gera það þrátt fyrir eigin sekt en vegna þess að þeir meðtóku gjöfina sem Guð bauð þeim þá mun sýkna þá og gefa þeim eilíft líf. Þeir sem glatast munu gera það vegna þeirra eigin gjörða og dómurinn yfir þeim verður réttlátur. Þeir höfnuðu Guði, lögum Guðs og þeirrar fyrirgefningar sem Hann bauð þeim.

Mér þykir vænt um hvernig Jesaja lýsti þessum, mörg hundruð árum fyrir Krist:

Jesaja 53
1
Hver trúði því sem oss var boðað
og hverjum opinberaðist armleggur Drottins?
2Hann óx upp eins og viðarteinungur fyrir augliti Drottins,
eins og rótarkvistur úr þurri jörð.
Hann var hvorki fagur né glæsilegur ásýndum
né álitlegur svo að oss fyndist til um hann.
3Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann,
harmkvælamaður og kunnugur þjáningum,
líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir,
fyrirlitinn og vér mátum hann einskis.
4
En vorar þjáningar voru það sem hann bar

og vor harmkvæli er hann á sig lagði.
Vér álitum honum refsað,
hann sleginn og niðurlægðan af Guði.
5En hann var særður vegna vorra synda,
kraminn vegna vorra misgjörða.
Honum var refsað svo að vér fengjum frið
og fyrir benjar hans urðum vér heilbrigðir.
6Vér fórum allir villir vegar sem sauðir,
héldum hver sína leið
en Drottinn lét synd vor allra
koma niður á honum.
7Hann var hart leikinn og þjáður
en lauk eigi upp munni sínum
fremur en lamb sem leitt er til slátrunar
eða sauður sem þegir fyrir þeim er rýja hann,
hann lauk eigi upp munni sínum.
8Hann var fjötraður, dæmdur og leiddur burt
en hver hugsaði um afdrif hans
þegar hann var hrifinn burt af landi lifenda?
Vegna syndar míns lýðs var honum refsað.
9Menn bjuggu honum gröf meðal guðlausra,
legstað meðal ríkra
þótt hann hefði ekki framið ranglæti
og svik væru ekki í munni hans.
10En Drottni þóknaðist að kremja hann og þjaka.
Þar sem hann færði líf sitt að sektarfórn
fær hann að sjá niðja sína og lifa langa ævi
og vegna hans nær vilji Drottins fram að ganga.
11Að þjáningum sínum loknum mun hann sjá ljós
og seðjast af þekkingu sinni.
Þjónn minn mun réttlæta marga
því að hann bar syndir þeirra.
12Þess vegna fæ ég honum hlutdeild með stórmennum
og hann mun skipta feng með voldugum
vegna þess að hann gaf líf sitt í dauðann
og var talinn með illræðismönnum.
En hann bar synd margra
og bað fyrir illræðismönnum

mbl.is Árleg krossfesting á Filippseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. apríl 2012

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 802693

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband