Þetta er ekki að standa á sínu

Ef að einhver getur sagt eitthvað við þig sem móðgar þig og þú flýrð í fússi þá er það ekki að standa á sínu. Að virkilega standa á sínu er að vera alveg sama hvað aðrir segja um þig, þeir geta hvorki breytt þínum áætlunum né hvernig þér líður.

Þetta er miklu frekar að leyfa einhverjum að taka burt tækifæri frá þér og líða illa af því að einhver hefur ákveðna skoðun á þér; í þessu tilfelli eitthvað sem dæmis sig sjálft sem alveg fáránlegt.

Ég hefði gaman af því að hafa séð hana Örnu svara eigendum svona "Æ sæt af þér að segja að ég sé of feit. Mig langar að spyrja facebook vini mína hvort þeir séu sammála þér um að ég sé of feit".  Eitthvað segir mér að eigendurnir hefðu áttið sig á því að þetta myndi láta þá líta mjög illa út og einfaldlega grátbiðjast afsökunar og biðja hana um að ekki segja neinum frá þessu.


mbl.is Arna Ýr: Ég er hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar almenningur er einfaldur

Mér finnst eitt af aðal vopnum fjölmiðla er að taka málefni sem eru aðeins flóknari en gengur og gerist og mála einfalda mynd sem hentar þeim svo fólk sem nennir ekki að setja sig inn í hlutina, fólk sem nennir ekki að taka sér tíma og skoða málefnin frá fleiri en einni hlið. Það er til leið til að segja satt frá en samt gera það á þann hátt að þú ert að ljúga og blekkja og það er list sem fjölmiðlar eru að reyna að fullkomna og ég hef sjaldan séð það jafn greinilega og í þessum Bandarísku forsetakosningunum. Guð sér í gegnum fólk sem fylgir einhverjum reglum og bókstöfum, jafnvel bókstöfum Biblíunni, en er í rauninni að ljúga, svíkja og stela. Að segjast vera kristinn og heiðarlegur þegar þú ert í rauninni einhver sem blekkir og svíkur fólk er miklu verra en guðleysingjar sem segjast vera glæpamenn.

Ég hef blendnar tilfinningar gagnvart Trump en mér finnst alveg greinilegt að fjölmiðlar eru ekki sanngjarnir í þeirra umfjöllun á honum. Hérna fyrir neðan er fjallað um skattamál Trumps, fyrir þá sem vilja meira en skyndabita áróður fjölmiðla.

 


mbl.is „Þegar Trump greiddi síðast skatta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Okt. 2016
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband